Tíminn - 29.04.1977, Blaðsíða 24
28644
v
28645
fasteignasala öldugötu 8
Fasteignasalan sem sparar hvorki
tima né fyrirhöf n til að veita yður sem
bezta þjónustu
Sölumaður: Finnur Karlsson Valgarður Sigurðsson
heimasími 4-34-70 lögf ræðingur
UREYFILL
Sfmi 8 55 22
-
fyrir gódan mai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
^ i... *
Þvrlan, semsaknaft er, er af sömu gerö og sú á þessari mynd, en
in inni.
HV-Reykjavik. — Við vorum aö
bcra saman bækur okkar núna og
niöurstaðan er sú aö i dag cr búiö
að kemba þetta svæði fram og
aftur úr lofti án þess aö nokkuö
liafi fundi/.t. Þaö segir þó ekki, aö
þyrlan sé ekki á svæöinu, þvl
þctta er litill hlutur að miklu leyti
úr plasti og gleri og erfitt að sjá
hann úr lofti. Viö munum þvi
halda áfram leitinni þegar i
fyrramálið en siöustu vélárnar
eru aö hætta leit núna, sagöi Guö-
mundur Matthiasson, hjá Flugör-
yggisstjórn i viötali viö Timann ,
um klukkan hálf ellefu I gær-
kvöldi.
í gærdag hófst viötæk leit úr
lofti, aö litilli þriggja sæta þyrlu,
af gerðinni Hughes 269C, sem fór
frá Reykjavik á mánudagsmorg-
un, áleiöis til bæjarins Foss á
Síðu, en til hennar hefur ekkert
spur/t siöan flugmaöur hennar
fór út af mörkum flugstjórnar-
sviös Reykjavikur.
t þyrlunni, sem ber skrásetn-
ingarmerkiö TF-Agn, eru tveir
menn, flugmaöur og einn farþegi.
Hún er i einkaeign, keypt hingaö
tillands á siöastliðnu ári. Ifún var
framleidd hjá fyrirtækinu Hughes
Helicopters, þaösama ár, i verk-
smiöjum þess i Culver-City i Kali-
forniu. Kom hún hingaö beint frá
verksmiöjunum, ónotuö meö öllu.
Þegar vélin kom hingaö reynd-
ist nauösynlegt að láta gera við
hana, en hún var skráð þann 19.
nóvember 1976 og flughæfnisvott-
orð hennar var gefiö út sama dag.
— Við munum jafnframt leggja
mikla áherzlu á leitá landi, sagði
Guðmundur Matthiasson enn-
fremur i gærkvöldi og hjálpar-
sveitir fara þvi af stað snemma i
fyrramálið i þeim tilgangi. Við
höfum fengið allmikið af upplýs-
ingum frá fólki sem hefur heyrt
til þyrlunnar eða séð hana þannig
að við höfum getað rakið feril
hennar og munum þvi leggja
aðaláherzluna á svæðið að fjalla-
baki.
t'lugmaiastjórn gaf i gær út eft'
irfarandi fréttatilkynningu:
uSaknað er litillar þriggja sæta
þyrlu, af gerðinni Hughes 269C,
og ber hún skrásetningarmerkið
TF-Agn. Þyrlan, sem er i einka-
eign, fórfrá Reykjavikurflugvelli
siðastliðinn mánudag, klukkan
10:22 og mun hafa ætlað að fljúga
til Vikur i Mýrdal og fleiri staða i
V-Skaftafellssýslu. Auk flug-
manns var einn farþegi i þyrl-
unni. Flugþol hennar var skráö
þrjár -klukkustundir og fjörutiu
minútur. Flugmaðurinn „lokaði”
flugáætlun sinni klukkan 10:29,
við mörk flugstjórnarsviðs
Reykjavikurflugvallar.
Eftir að flugáætlun er lokað
annast flugumferðarstjórn ekki
lengur viðbúnaöarþjónustu fyrir
hlutaðeigandi flug, þ.e. að til-
kynna björgunaraðilum, ef við-
komandi loftfar hefur ekki komið
fram innan þrjátiu minútna frá
áætluðum lendingartima. Skylt er
að láta flugumferðarstjórn i té
flugáætlun fyrir allt blindflug,
fyrir alltmillilandaflug, fyrir flug
i og úr flugstjórnarsviði (Kefla-
vik, Reykjavik, Akureyri, Vest-
Þyrlu
saknað
með
tveim
mönn-
um
mannaeyjarogEgilsstaðir), fyrir
flug inn í öræfi (hér skilgreint
sem svæði, sem eru 25 kilómetra
eða meira frá byggðu bóli), far-
þegaflug i atvinnuskyni, svo og
allt flug, sem flugmaðurinn óskar
að verði fylgzt með til að auð-
velda leitar- og björgunarstarf.
Um klukkan 11.00 i morgun
(fimmtudagsmorgun) barst flug-
stjórnarmiðstöðinni fyrirspurn
um þyrluna og var þá eftir-
grennslan þegar hafin og björg-
unaraðilar boðaðir út. 1 dag hafa
ellefu flugvélar og tvær þyrlur
tekið þátt i viðtæku leitarflugi.
Upplýsingar um ætlað flug þyrl-
unnarhafa borizt frá fjölmörgum
aðilum. Svo virðist sem þyrlan
hafi ætlaö að fljúga fyrir norðan
jökla, þvi að til hennar sást á flugi
i austurátt á milli Búrfells og
Heklu. Hvöss austan- til norð-
austanátt var rikjandi en skyggni
gott.
Leit úr lofti veröur haldið á-
fram fram á kvöld meðan bjart
er, og veðurskilyröi til leitar eru
góð. Ef nauðsyn krefst verður leit
úrloftihaldið áfram strax I fyrra-
málið, og þá hefst einnig viðtæk
þátttaka leitarflokka flugbjörg-
unarsveita, hjálparsveita skáta
og Slysavarnafélags Islands”.
Þrátt fyrir mikla leit úr lofti
spurðist ekkert til þyrlunnar i
gær. Af flugþoli hennar má ráða,
að hún hafi ekki verið á lofti leng-
ur en til rúmlega tvö á mánudag.
Engar fyrirspurnir voru gerðar
um hana, af hendi aðila á þeim
stöðum sem þyrlan ætlaði til, fyrr
en I gærmorgun.
1 leitinni i gær tóku þátt tvær
Hercules HCl-30 vélar frá
Varnarliðinu á Keflavikurflug-
velli,svoog ein Jolly Green Giant
þyrla þaðan. Þyrla landhelgis-
gæzlunnar leitaði á stóru svæði
við Heklu og umhverfis Sigöldu i
gærdag.
Auk þessara véla voru svo
margar aðrar við leit, eins og
fram kemur i tilkynningunni.
, 111,11 —.................................
Ólafur Jóhannesson í útvarpsumræðum í gærkvöldi
k: Fy] r.lf ■gj ja: m El a di ir] L 11 ksl 0( Lai ) u: Þ n ú u ,s. m
Ólafur Jóhannesson
MÓ-Reykjavik — Ég hef áður
lýst því yfir, aö ég er fylgjandi
þeirri stefnu, sem mörkuð var á
siðasta þingi Alþýðusambands
tslands, að mánaðarlaun hinna
lægstlaunuðu hækkil 100 þúsund
kr. miðað við verðlag, sem gilti
siðastliðið haust, sagði Ólafur
Jóhannesson dómsmálaráð-
herra i útvarpsumræðum frá
Alþingi i gærkvöldi — Menn
geta ekki með góðu móti lifað af
lægri launum. Hitt vil ég jafn-
framtundirstrika, að ég tel ekki
unnt að láta tilsvarandi launa-
hækkun ganga i gegnum allt
launakerfið. Þeir, sem hafa
hærri laun verða að láta sér
nægja minna. Það verður sam-
kvæmt minu mati að stefna að
nokkurri launajöfnun.
Síðar i ræðu sinni sagði Ólaf-
ur, að hann teldi langsamlega
stærsta vandamál okkar eða
viðfangsefni nú, að tryggja
skynsamlega nýtingu islenzkra
fiskimiða og koma i veg fyrir of-
veiöi á fiskistofnum i fiskveiöi-
landhelgi okkar. Lifsafkoma
þjóðarinnar á næstu árum og
áratugum ræðst af þvi, hvort
sókn i fiskistofnana umhverfis
iandið veröur haldiö innan
þeirra marka, sem þeir stofnar
þola.
Auk ólafs töluöu i útvarpsum-
ræðunum: Halldór E. Sigurðs-
son landbúnaðarráðherra, Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra,
Sverrir Hermannsson (S), Lúð-
vik Jósefsson (Ab), Eðvarð
Sigurðsson (Ab), Benedikt
Gröndal (A), Gylfi Þ. Gislason
(A), Magnús Torfi ólafsson
(Sfv) og Karvel Pálmason
(Sfv).
Ræða Ólafs Jóhannessonar
verður birt i heild I Timanum á
morgun.
HV-Reykjavik. —í gærdag kom
varðskipið Ægir til hafnar i
Reykjavik, með hluta þann af
flugvélarflaki, sem skipverjar
fundu á floti suður af Reykja-
nesi á miðvikudagsmorgun.
Þessi brakhluti virðist vera
hluti af flugvélarvæng, svo-
nefndur flaps, en eins og fram
kom i' Tlmanum i gær eru fram-
leiðslunúmer og heiti framleið-
enda litið máð á honum. Einnig
er skýr áletrun ofan á honum,
þar sem mönnum er bannað að
ganga á honum.
Þessi brakhluti er af vél sem
framleidd er af Grumman Aro-
space Corporation. Islenzka
flugöryggisstjórnin sendi þegar
upplýsingar um áletrunina,
númer og annað, til þeirra verk-
smiðja, og bað um upplýsingar
um hvaðan þetta væri komið.
1 gær hafði svar ekki borizt, en
verksmiðjur þessar framleiða
meðal annars mikið fyrir
bandariska herinn.
Væri mögulegt að þetta væri
e.t.v. hluti af ónýtri vél, sem
notuð hefði verið fyrir skot-
mark.
Á myndina hér að ofan sem
Róbert tók i gær, liggur flak-
hlutinn á þyrluþilfari Ægis, en
við hann stendur Gunnar Ólafs-
son, skipherra.
Ægir til haf n-
ar með brakið
PALLI OG PESI
— Það er ekkert
skritið, þó að
krakkarnir læri lit-
ið i skúlanum.
— Hvers vegna 1
ekki?
\ O inormal-kúrfa.
Þetta er bara
^7*7ó»