Tíminn - 29.04.1977, Síða 5
Föstudagur 29. aprll 1977
5
KVERNELANDS
kvíslar
Söngfélagið Glóð skemmti á Húnavöku og var þetta I fyrsta sinn, sem kórinn söngutan sinnar
heimasveitar. Félagar ikórnum eru úrÞingi og Vatnsdal og stjórnandi kórsins erSigrún Grims-
dóttir. Myndin eraf kórfélögum þegar kórinn skemmti á Húnavöku og er Sigrún fremst á mynd-
inni. Timamynd MÓ.
Húnavökunni lauk
á mánudagskvöld
— verölaun í skólamóti U.S.A.H. afhent
á unglingadansleiknum
Mó-Reykjavik — Húnavökunni
lauk á Blönduósi sl. mánudags-
kvöld. Hafði hún þá staðið frá
þvi á miðvikudag i fyrri viku.
Margt var til skemmtunar á
Húnavöku og m.a. var þar söng-
skemmtunþar sem söngfélagar
úr söngfélaginu Glóð og karla-
kórnum Vökumönnum sungu.
Þá heimsótti leikfélag Sauðár-
króks Húnavöku og sýndi
gamanleikinn „Er á meðan er”.
Dansað var öll kvöld Húna-
vökunnar og lék hljómsveitin
Gautar fyrir dansi. A mánu-
dagskvöldið var unglingadans-
leikur og þá voru veitt verðlaun
i skólakeppni Ungmennasam-
bands Austur-Húnvetninga.
Keppni þessi hófst i fyrravetur
og er ráðgerð árlega og er á
milli allra skólanna i Austur-
Húnavatnssýslu. Að þessu sinni
urðu úrslit þau aö barnaskólinn
á Blönduósi sigraði i frjálsum
iþróttum, sundi og knattspymu
og unglingaskólinn á Blönduósi
sigraöi i frjálsum iþróttum og
sundi. Nemendur unglingaskól-
ans á Húnavöllum sigruöu slöan
i keppni i knattspyrnu.
Mikið f jör var i dansinum á Húnavöku, enda lék hljómsveitin
Gautar frá Siglufirði fyrir dansinum af miklu fjöri. Timamynd MÓ
Tæki, sem
allir
bændur
þekkja
tenginga
d dmoksturstæki og þrítengi drdttarvéla
VERÐ CA. KR. 80.000
Væntanlegar í vor
G/obus/
LÁGMÚLI 5. SlMI 81555
Jörðum í ábúð
f j ölgaði á síóasta ári
F.I. Reykjavik. — Jörðum I
ábúð f jölgaði um átta árið 1976
og náöu þær tölunni 4812.
Eyöijaröir eru taldar vera
1391, en þá eru eingöngu tekn-
ar með jarðir, sem fallið hafa
úr ábúð á s.l. 25 árum. Þessar
tölur eru fengnar i jarðaskrá
Landnáms rfkisins, en sam-
kvæmt þeirra útreikningum
eru bændur taldir 5778 árið
1976, þar af 658 búlausir og 118
garðyrkjubændur. Hefur
bændum fækkað um 206 frá
þvf áriö 1975.
Flesta gripi eiga bændur i
Landmannahreppi. Þar var
meöalbústærð á s.l. ári 744 ær-
gildi. Næststærstu búin voru i
Þverárhliðarhreppi, 725 ær-
gildi. Að meðaltali yfir allt
landið vrou aðeins 351 ærgildi
á jörð, sem var i ábúð. Verð-
lagsgrundvallarbúið er nú 440
ærgildi. Hlutfallslega hafa
fæstar jarðir farið i eyði I
Eyjafjarðarsýslu á s.l. 25 ár-
um. Þar voru taldar 336 jaröir
i ábúð, en 50 eyöijarðir. Hlut-
fallslega eru flestar eyöijarðir
i Vestur-ísafjarðarsýslu eða
62, en i ábúð eru 66 jarðir.
e
CHEVROLET TRUCKS
Höfum til sölu
Tegund: Arg. Verð i Þús.
Volvo 244 de luxe '76 2.600
Volvo 142 '70 1.000
G.AA. Rally Wagon '74 2.700
Pontiac Le Mans Coupe '77 3.600
Toyota Crown station '74 2.100
Chevrolet Malibu Classic '75 2.500
Chevrolet Chevette sjálf sk. '76 2.000
Mazda station 929 '76 2.000
Chevrolet Nova '74 1.700
Opel Delvan '71 500
Saab96 '71 800
Sunbeam 1250 '72 650
Chevrolet Vega station '74 1.550
Opel Caravan '72 1.250
Chevrolet Blazer skuldabr. '72 1.900
Chevrolet Malibu '73 1.700
Saab96 '72 950
Opel disel '74 1.600
Skania Vabis vörubif r. '66 1.500
Austin Mini '76 850
Mazda 616 '74 1.250
Chevrolet Blazer Cheyenne '74 2-. 900
Vauxhan Viva de luxe '75 1.150
Audi 100 L S '76 2.500
Fiat 125 special '70 400
Samband
Véladeild
ARMULA 3 SIMI 38900
Ráðstefna um matar-
venjur og heilsufar
Ráðstefna um neyzluvenjur og
heilsufar verður haldin i Domus
Medica i dag og á morgun, og
hefur þangað verið boðið læknum,
manneldisfræðingum og öðrum,
sem áhuga hafa á manneldismái-
um, sem og framieiðendum
matvæla og fulltrúum stjórn-
valda.
Markmiðið með ráðstefnunni er
að safna saman þeirri vitneskju,
sem til er um heilbrigðisástand
og fæðuval Islendinga og
uppbyggingu heilbrigðisþjón-
ustunnar og markaðskerfis mat-
vælaframleiðslunnar, fá innlenda
sérfræðinga til þess að kanna
möguleika á sameiginlegri
stefnumörkun til þess að stuðla að
hollari neyzluháttum og velja
leiðir að settu marki, ef kostur er.
Auglýsið í Tímanum
Irland
7. til 14. maí
Verð kr. 46.200
SÉRSTAKUR
FJÖLSKYLDUAFSLÁTTUR
Fjölbreyttir
ferðamöguleikar
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077