Tíminn - 29.04.1977, Síða 12
12
Föstudagur 29. aprll 1977
Wívsúwí
Hér
má
heyra
söng...
Nú í aprll héldu tveir helztu
karlakórar Reykjavíkur söng-
skemmtanir I bænum, fyrst
Karlakór Reykjavíkur I
Háskólablói, og síöan Karlakór-
inn Fóstbræöur I Austurbæjar-
biói. Karlakór Reykjavlkur
haföi nýlega haldiö hátlölegt 50
ára afmæli sitt meö söng-
skemmtunum, pompi og pragt,
og nú var hann enn kominn á
kreik, ásamt stjórnanda slnum
Páli P. Pálssyni og finnskum
einsöngvara, Boris Borotinskij.
A efnisskránni voru 6 íslenzk
lög, eftir Sigurö Þóröarson,
Karl O. Runólfsson og Jón Þór-
arinsson, kórverkiö Sámesiidat
eftir John Persen, samiö sér-
staklega fyrir Karlakór
Reykjavikur á fimmtugs-
afmælinu, og 6 skandinavísk lög
önnur, amerlskur negrasálmur,
rússneskt þjóölag, og syrpa af
þýzkum lögum I útsetningu
stjórnandans.
Karlakórar og lúörasveitir
koma mér alltaf I gott skap. A
þessum tónleikum rlkir jafnan
mikil stemmning, áheyrendur
eru afar velviljaöir og klappa
upp I ákafa, þvi þarna syngur
þeirra fólk þeirra lög. Efnis-
skráin var byggö upp eins og
thallenzkur matseöill, þar sem
hver réttur I 32-rétta máltlö er
með nýju kryddi, sem ræðst á
áöur-ódofinn staö á tungunni.
Fyrst söng kórinn mjög hressi-
lega Island Siguröar Þóröarson-
ar viö ljóö Huldu, þá Kvöldljóö
sama tónskálds viö texta
Siguröar B. Gröndal, síöan
magnaö lag Karls O. Runólfs-
sonar viö ljóöiö Þjóötrú eftir
Þorstein Glslason, o.s.frv. Sér-
lega Ismeygilegt lag og texti er
Ef þú vilt koma eftir Jón Þór-
arinsson og Hannes Hafstein,
sem jafnframt var endurtekiö I
lok hljómleikanna sem siöasta
aukalagiö (af fimm).
Síöast fyrir hlé var Sáme-
siidat, kórverk sem John Per-
sen samdi meö styrk frá Nor-
ræna Menningasjóönum I tilefni
af 50 ára afmæli kórsins, og
frumflutt var aö Kjarvalsstöö-
um I júnl 1976. Verkiö, er eins og
söngskráin segir, margslungiö
og flókiö, krefst mikillar hæfni
og leikni söngmanna, er
sex-raddaö og yfirleitt
óharmonískt, og er seiöiríagnaö
og töfrandi. Textinn er
„samísk” þjóövlsa frá
Noröur-Noregi.
og í blíðum
blæ
Eftir hlé tóku skandinavlsku
tónskáldin viö — fyrst hressilegt
lag, þá kvöldlag, sem Hreiöar
Pálmason, einn af bössum kórs-
ins, söng einsöng I, þá Svanur-
inn viö ljóö Runebergs, sem
Matthlas geröi frægan hér á
landi. Finninn Boris llkist
viökunnanlegu bjarndýri, meö
skemmtilega sviösframkomu,
hljómmikla bassarödd, og
ágætan textaframborö á
sænsku, ensku, Islenzku og rúss-
nesku (?) Einkum naut hann sín
vel í negrasálminum My Lord,
what a morning, og rússneska
þjóölaginu Náöuga frú. Hann
var klappaöur upp á þessu stigi
málsins, og söng þá Bára blá —
þar fannst mér vanta ögn á
hljóm I röddinni, og votta fyrir
isafoldarhl jómi hjá kór-
tenórunum, — síðan endur-
tók Boris Náöuga frú til aö tón-
leikarnir mættu halda áfram.
Páll P. Pálsson hefur útsett
laglega 5 alkunn þýzk þjóölög
(þ.á.m. Lorelei og Góöa tungl)
fyrirkarlakór, 2 klarinettur, tvö
fagott og hörpu, sem flutt voru I
samfelldri syrpu. Þetta tókst
ágætlega að ööru leyti en því, aö
miöaö viö hina björtu hljóma
klarinettanna virtust kór-
raddirnar dálltiö strlðar. Þessi
syrpa vakti aö sjálfsögöu inikla
gleöi, Góöa tungl var endur-
tekiö, slöan kom Boris og endur-
tók negrasálminn, og loks söng
kórinn Ef þú vilt koma (kæra
mln/ I kvöld er nokkuö rökkva
fer, o.s.frv.) eftir Jón Þórarins-
son og Hannes Hafstein.
Félagar I Karlakór Reykja-
víkur eru 41, hann er 51 árs, og
Páll P. Pálsson hefur stjórnaö
honum undanfarin ár. Efnis-
skrá tónleikanna var heföbund-
in, meö Islenzk og skandinavlsk
ættjaröarlög aö meginuppi-
stööu. Ég hefi oröið þess var, aö
gamaireyndir karlakóra-aödá-
endur eru orönir þreyttir á ætt-
jaröarlögum. Enda hafa fram-
sæknir karlakórar I seinni tlö
leitaö út fyrir þennan ramma,
meö misjöfnum árangri þó, og
þá einkum til Rússlands og
Bandarikjanna. En þar fyrir ut-
an má mikiö vera ef Bretland og
fleiri lönd geyma ekki fjársjóöi
af lögum, sem vel henta kórum
sem þessum. Hins vegar er þaö
svo sem ekkert sáluhjálparatr-
iöi aö fara aö breyta Islenzkum
karlakórum — þaö sýndi sá
mikli hugur sem var I áheyr-
endum Karlakórs Reykjavlkur
á þessum tónleikum.
blakta fánar
á stöng
1 Fóstbræörum eru 43 söng-
menn, Jónas Ingimundarson
stýrir kórnum, en Lára Rafns-
dóttir leikur meö á píanó þar
sem viö á. Þá sungu þrlr ein-
söngvarar meö á tónleikunum I
Austurbæjarbtói, Svala Nielsen,
Kristinn Hallsson og Siguröur
Björnsson.
Karlakórinn Fóstbræöur er
afsprengi Karlakórs KFUM,
sem stofnaöur var áriö 1916.
Stofnandi þess kórs, og slöan
Fóstbræöra var Jón Halldórs-
son. Forveri karlakórs KFUM
var karlakór Sigfúsar Einars-
sonar „17. júni”, en aldaraf-
mæli Sigfúsar var 30. janúar á
þessu ári. 1 tilefni af öllu þessu
hófst efnisskrá tónleikanna nú á
tveimur lögum Sigfúsar, Bæn
fyrir fööurland (texti Stein-
grlms Thorsteinssonar) og
Sefur sól hjá ægi (ljóö Siguröar
frá Arnarholti). Um þau segir
Jón Þórarinsson I söngskránni:
„Þau tvö lög Sigfúsar Einars-
sonar sem hér eru flutt, eru
meöal þeirra viöfangsefna, sem
oftast hafa veriö sungin á meira
en hálfrar aldar söngferli Fóst-
bræðra. Og þau munu, ásamt
öörum tónsmlöum hans, jafnan
veröa tiltæk kórnum, meöan
hann heldur tryggö viö þá köllun
slna og hugsjón aö halda til
haga og sýna sóma þvl bezta og
fegursta, sem samið hefur verið
af íslenzkum karlakórslögum”.
Ég vil heyra
Þriöja Islenzka lagiö á tón-
leikunum var Þetta land eftir
söngstjórann Jónas Ingimund-
arson, sem hann samdi og gaf
Fóstbræröum aö lokinni söngför
til Sovétrlkjanna. Þarna kennir
ýmissa grasa og margra stlla,
og lagiö (verkiö) endar meö
miklum krafti, þar sem segir I
texta Kristjáns frá Djúpalæk:
„Þetta land skamma stund bjó
mér staö. Ég er strá I þess mold.
Ég er þaö”. Nú tóku við ýmis út-
lend lög viö Islenzka texta, og
slöast fyrir hlé söng Siguröur
Björnsson Rósina, rússneskt
þjóölag viö ljóö Guömundar
Danlelssonar. Þetta er afar
undarlegt kvæöi, svo athygli
vekur, og rennir stööum undir
þaö sem Steinn Steinarr og aörir
hafa sagt um þetta sunnlenzka
skáld. Þetta er annaö erindiö af
f jórum:
Ég er hinn krýndi konungur
viö kvöldsins nautnaborö.
Þar teyga ég hin trylltu vln
og tala skáldleg orö.
Ogkonuna,sem kysstimig
og kom meö þessa rós,
ég sveik I dag. Þá drekkti
, hún sér
I dalafljótsins ós.
Lagið er heldur alls ekki nógu
gott, og þau áhrif, sem vafa-
laust er veriö aö sækjast eftir,
nefnilega áhrif ökuljóös meö
Stefáni Islandi, nást ekki.
glaðan
goluþyt
Nú kom höfuöréttur tónleik-
anna, Óður um Island eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson og Hannes
Pétursson. Verk þetta samdi
Þorkell sérstaklega fyrir Fóst-
bræöur, og tileinkaöi kórnum og
stjórnanda hans, Jónasi Ingi-
mundarsyni. Þetta er mjög lofs-
vert framtak hjá öllum hlutað-
eigandi, — tilraun til aö vikka
verkefnaval kórsins út fyrir
heföbundinn ramma ættjaröar-
laga, auk þess sem verk af
þessu tagi gerir meiri kröfur til
söngmanna en stutt lög. Hins
vegar má sitthvaö aö verkinu
finna, — bæöi er þaö nokkuö
langdregið á köflum og tilbreyt-
ingalltiö, en verst þótti mér þó
hve hnökrótt lagið féll oft á tlö-
um aö textanum: bæði lenda á-
herzlur lagsins iðulega á
auka-oröum, en aöaloröin detta
niöur, og áherzla kemur á óeöli-
lega orö-hluta (vegBoöi, boGa).
Mætti llfga upp á flutninginn
meö þvl aö slá trumbu meö
framsagnar-köflunum, t.d.
...og er hann lét lausan hinn
fyrsta....", og „Auga fuglsins
alsá þetta land I vorskini”. Ann-
ars var margt ánægjulegt aö
heyra I verki þessu, og kórinn
flutti þaö vel, eins og raunar allt
annaö.
og fuglaklið
En karlakórinn Fóstbræöur
lét sér ekki nægja aö flytja óö
um tsland, heldur sveiflaði hann
sér út í heimsbókmenntir söngs-
tónlist
ins, með atriöum úr tveimur
óperum, Valdi örlaganna og II
Trovatore. Svala Nielsen söng
einsöng ásamt Kristni Hallssyni
I fyrri kaflanum, en meö Siguröi
Björnssyni I hinum siöari. Bæöi
þessi atriði voru of löng, meö
löngu einsöngs-recitativi áöur
en kórinn — tilefni tónleikanna
— fengi að láta til sín taka. Hér
er ennþá tilraun til aö finna nýj-
an og ferskan farveg fyrir kór-
söng, og spreyta sig á nýjum
viöfangsefnum. öllu var þessu
vel og innilega fagnaö, og hluti
úr Valdi örlaganna var endur-
tekinn, slöan söng kórinn auka-
lag: Einu sinni svanur fagur/
söng af kæti um loftih blá. Þá
var sungiö tvisvar, vegna fjölda
áskorana, lag viö texta sem mér
heyröistaf stilnum aö gæti veriö
eitt af slöustu ljóöum
Æra-Tobba. Og enn söng Sig-
urður Björnsson Rósin.a viö
texta Guðmundar Danlelssonar.
og fossanið
Síöasta aukalagiö á tónleikun-
um var Hæ, tröllum, sem var
sungiö af svo miklum þrótti, aö
nóturnar fuku af púlti stjórn-
andans I miö-hæinu. Hann lét
þaö ekki á sig fá og stjórnaöi ó-
trauöur blaölaust út lagiö.
Aö lokum vil ég leyfa mér aö
taka undir orö Anatóll Manú-
kofs I Leníngrad, sem prentuö
eru I söngskránni: „Ef ég heföi
ekki vitaö þaö fyrirfram, aö I
Fóstbræörum eru menn sem
stunda ýmis störf, heföi ég hald-
iö aö þeir væru allir atvinnu-
söngmenn. Raddgæöi kórfélaga
eru mikil og þeir láta vel aö
stjórn Jónasar Ingimundarson-
ar kórstjóra. Undirleikur Láru
Rafnsdóttur fellur vel og eöli-
lega inn I flutninginn”.
27.4.
Siguröur Steinþórsson.
Jónas Ingimundarson stjórnandi Fóstbræöra.
Páll Pampichler Pálsson stjórnandi Karlakórs Reykjavlkur.