Tíminn - 29.04.1977, Page 19
Föstudagur 29. april 1977
19
Þetta myndarlega lið stóð að sýningunum á Kjarnorku og kvenhylli I
Kelduhverfi
1300 manns sáu
Kj ar nor kuna
í Kelduhverfi
Aðal-
fundur
Samtaka
sveitar-
félaga á
Suðurlandi
JB-Rvlk. Aðalfundur Samtaka
sveitarfélaga á Suðurlandi var
haldinn i ölfusborgum dagana
26.-27. april s.l. A fundinum bar
fjölmörg mál á góma og margar
ályktanir voru gerðar, en um sex-
tiu til sjötiu fulltrúar ásamt
nokkrum gestum sátu fundinn. A
meðal gesta var Bjarni Einars-
son, frá byggðadeild Fram-
kvæmdastofnunar rfkisins og
Guðmundur Sigfússon fulltrúi frá
landbúnaðarráðuneytinu, en
hann flutti erindi um landbúnað
og afkomu hans. Gerðu fundar-
menn góðan róm að málflutningi
þeirra.
Nokkrar lagabreytingar voru
geröar, og var þar á meðal
ákveðið að breyta nafni samtak-
anna. 1 stað þess að heita Samtök
sveitarfélaga á Suðurlandi heita
þau nú Samtök sunnlenzkra sveit-
arfélaga. Ennfremur var ákveöiö
að breyta lögum um stjórn sam-
takanna. Fram til þessa hefur
hún veriðskipuösjömönnum.en I
stað þess var nú kosin ellefu
manna fulltrúaráö, sem kýs úr
sinum röðum fimm manna fram-
kvæmdastjórn og einn af þeim
verður formaður samtakanna, en
þessi breyting mun vera gerö til
þess aö fá meiri breidd I
ákvaröanatöku innan samtak-
anna. Þeir, sem kosnir voru I full-
trúaráðið, eru þeir Ingimar Ingi-
marsson Vik, Siggeir Björnsson
Holti, ölvir Karlsson Þjórsártúni,
Sigurður Haraldsson Kirkjubæ,
Ólafur Sigfússon Hjarðartúni,
Óskar Magnússon Eyrarbakka,
Jón Eiriksson Vestmannaeyjum,
Siggeir Kristjánsson Vestmanna-
eyjum, og Reynir Guösteinsson
Vestmannaeyjum.
Eins og fyrr segir var fjöldi
ályktana samþykktur, og fjölluðu
þær t.a.m. um samgöngumál,
orkumál, menntamál og atvinnu-
mál. 1 ályktun um samgöngumál
er m.a. fagnað þeim áfanga, sem
náðist með tilkomu Herjólfs, og
var sagt, aö þar með hafi orðiö
bylting I samgöngumálum Vest-
mannaeyinga, sem geri þeim
kleift að komast I beint samband
við vegakerfið i landinu. Að auki
er lýst yfir ánægju með þá yfir-
lýsingu samgönguráðherra, að
smiði ölfusárbrúar við Óseyrar-
nes veröi hafin strax að lokinni
brúargerð yfir Borgarfjörð. Þá
gerði fundurinn og ályktun um
orkumál þar sem m.a. var lögö á-
herzla á að uppbygging 3ja fasa
rafmagnsdreifikerfis á Suður-
landi verði komið á innan fjög-
urra ára. Um menntamál voru
allmargar samþykktir gerðar, en
þar var efst á baugi, að komið
yrði á skipun framhaldsmenntun-
ar I héraöinu.
Einnig samþykktu fundar-
menn miklar ályktanir um at-
vinnumál auk annarra mála.
Leiðrétting
t grein Guðjóns Teitssonar i
blaðinu i gær varð þvi miður i
kaflanum: „Pendúlferðir”, brú
ogferjur.brenglun i prentun. Þar
átti að standa:
Athyglisvert ósamræmi er i þvi
annars vegar að verja langdrægt
100 millj. kr. af almannafé I ferju
og hafnamannvirki til að spara
akstur og kostnaðaf vegi fyrir
Hvalfjörð og hins vegar að verja
úr sama sjóði tvisvar til þrisvar
sinnum hærri fjárhæð á ári til
Vestmannaeyjaferju, þar sem
fylgir aukinn akstur, aukinn
vegakostnaður og aukinn halli á
vöruafgreiðslu aðal-strandferða-
miöstöðvar landsins.
Danskur málsháttur segir:
„Det maa være System i
Galskaben.”
Grein Guðjóns i blaðinu hinn 20.
april var undir fyrirsögninni
Strandferðamál.
Nýiega lauk I Kelduhverfi,
sýningum á Kjarnorku og kven-
hylli eftir Agnar Þórðarson. Leik-
stjóri var Kristján Jónsson, en
leikarar voru m.a. félagar úr
ungmennafélaginu á staðnum,
svo og fleiri Keldhverfingar.
Sýningar voru á Þórshöfn,
Raufarhöfn, Skjólbrekku, Ljós-
vetningabúð, Breiðumýri og
Skúlagaröi. Húsfyllir var á flest-
um þessum sýningum og leik og
leikurum frábærlega vel tekið.
Æfingar á Kjarnorkunni stóöu I
fimm vikur. Um þrettán hundruö
manns hafa séö þessa sýningu
Keldhverfinga, en leikstarfsemi
sem þessi er mikil upplyfting fyr-
ir fámennt sveitarfélag og styttir
veturinn til muna.
Aðalleikararnir fjórir I hlutverkum sfnum, talið frá vinstri: Sigvaldi
Gunnarsson (Sigmundur) Tryggvi tsaksson (Þorleifur), Gunnar Hall-
grfmsson (dr. Alfreðs) og Sveininna Jónsdóttir (Karitas).
Sunnlendingar
Vormót hestamannafélaganna á Suður-
landi verður haldið á Rangárbökkum við
Hellu dagana 7. og 8. mai n.k.
Sýndir verða og dæmdir áður ósýndir
stóðhestar.
Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast
til Magnúsar Finnbogasonar, Lágafelli,
fyrir 4. mai n.k.
Undirbúningsnefnd.
Laus staða
Starf forstöðumanns félagsmiðstöðvar-
innar Fellahellis er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 12. mai. Laun skv.
kjarasamningi borgarstarfsmanna.
Umsóknareyðublöð ásamt starfslýsingu og menntunar-
kröfum fást á skrifstofu æskulýðsráðs, Frikirkjuvegi 11,
simi 15937.
ÆSKULÝDSRÁD
REYKJAVÍKUR
SÍMI 15937
ÆSKULÝÐSRÍIÐl
Varadekk í hanskahólfi!
ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450
PUNCTURE PILOT
UNDRAEFNIÐ — sem þeir bíl-
stjórar nota, sem vilja vera lausir
við að skipta um dekk þótt springi á
bílnum. — Fyrirhafnarlaus skyndi-
viðgerð. Loftfylling og viðgerð i
einum brúsa. Islenzkur leiðarvísir
fáanlegur með hverjum brúsa.
Hjúkrunarfræðingur
Óskum eftir að ráða heilsuverndarhjúkr-
unarfræðing til starfa á Seltjarnarnesi.
Starfssvið er sem hér segir:
Skólahjúkrun 3/4starfs.
Ungbarnaeftirlit l/8starfs.
Heimahjúkrun l/8starfs.
Laun samkvæmtkjarasamningi Hjúkrunarfélags íslands.
Ráðið verður i starfið frá 1. júlí n.k.
Umsóknir um starfið sendist bæjarstjóra fyrir 1. júni n.k.
Bæjarstjórinn Seltjarnarnesi.
Auglýsing um
aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur í maf
mdnuði 1977
Mánudagur 2.
Þriðjudagur 3.
Miðvikudagur 4.
Fimmtudagur 5.
Föstudagur 6.
Mánudagur 9.
Þriðjudagur 10.
Miðvikudagur 11.
Fimmtudagur 12.
Föstudagur 13.
Mánudagur 16.
Þriðjudagur 17.
Miðvikudagur 18.
Föstudagur 20.
Mánudagur 23.
Þriðjudagur 24.
Miðvikudagur 25.
Fimmtudagur 26.
Föstudagur 27.
Þriðjudagur 31.
mai R-24001 til R-24300
mai R-24301 til R-24600
mai R-24601 til R-24900
mal R-24901 til R-25200
mai R-25201 til R-25500
mai R-25501 til R-25800
mai R-25801 til R-26100
mai R-26101 til R-26400
mai R-26401 til R-26700
mai R-26701 til R-27000
mai R-27001 til R-27300
mai R-27301 til R-27600
mai R-27601 til R-27900
mai R-27901 til R-28200
mai R-28201 til R-28500
mai R-28501 til R-28800
mai R-28801 til R-29100
mai R-29101 til R-29400
mai R-29401 til R-29700
mai R-29701 til R-30000
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Borg-
artúni 7, og verður skoðun framkvæmd
þar alla virka daga kl. 08.00 til 16.00.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé gild.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningar-
númer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að
máli.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
27. april 1977
Sigurjón Sigurðsson.