Tíminn - 14.06.1977, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 14. júnl 1977
— Nú dámar mér! Þarna er
tengdamamma.
— Hvers vegna þarft þú alltaf aö
vinna þegar þaö fer aö veröa
gaman?
— Þú hlýtur aö hafa gefiö henni
eitthvaö i skyn.
— Ég kannast viö andlitiö, en ég
kem þvi ekki fyrir mig.
Þeir, sem fást við að ljósmynda dýralif úti
i náttúrunni, þurfa oft að gripa til ýmissa
ráða, til að komast sem næst dýrunum án
þess að trufla þau. Á meðfylgjandi mynd
sjáum við, hvað einn af brautryðjendun-
um i ljósmyndun villtra dýra, Richard
Kearton, sem hóf þessa iðju fyrir alda-
mótin siðustu, tók til bragðs til að dyljast.
Hann leyndist inni nautsskrókk , og tókst
þannig að ná mjög góðum myndum. En
einn góðan veðurdagtókst ekki betur til en
svo, það leið yfir Kearton inni i nauts-
skrokknum, og það nægði tii þess, að
nautsskrokknum hvolfdi og Kearton lok-
aðist inni i honum. Þar varð hann að dúsa,
þangað til bróðir hans, sem var aðstoðar-
maður hans við myndatökurnar, fann
hann. Bróðir hans stóðst ekki mátið og lét
björgun biða, þar til hann hafði tekið með-
fylgjandi mynd.
hafa
naut
lappir?
timaiis