Fréttablaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 16
 14. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR16 fréttir og fróðleikur Globalization of world economy has forged a set of “global challenges” for countries, institutions, and individuals. These challenges affect, trade, cultural, and social relations. Dr. Rahnema will review the financial and economic situation in the world to understand some of these complex challenges. www.ru.is Opinn hádegisfyrirlestur í boði Viðskiptadeildar HR 16. febrúar kl. 11:45 - 12:45 Fyrirlesari er dr. Ahmad Rahnema frá IESE háskólanum í Barcelona. Hann kennir Alþjóðafjármál á öðru ári í MBA námi Háskólans í Reykjavík. Boðið verður upp á léttar veitingar. Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2, 3. hæð Skráning: Sendið tölvupóst á elisabetth@ru.is Global Challenge: An Inter national Finance Perspective Svona erum við PÖNDUR AÐ LEIK Tai Shan, sjö mánaða pönduhúnn leikur hér við móður sína, Mei Xiang, í snjónum í dýragarðinum í bandarísku höfuðborginni Washington DC Þetta var í fyrsta sinn sem pönduhúnninn sá snjó, enda gerist það sjaldan þar að fönn þeki jörð. Washington er á svipaðri breiddargráðu og Madríd. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Í dag er 14. febrúar, sem nefndur er Valentínusardagur. Í ýmsum lönd- um er hefðbundið að elskendur tjái ást sína, til dæmis með elskenda- korti, gjöfum og með því að fara út að borða. Tækifærið er einnig notað til að senda nafnlausa ástarjátningu til þess sem ástarinnar nýtur. Valentínusardagur hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi, þrátt fyrir að bóndadagur og konudagur séu dagar sem hafðir eru í heiðri sem séríslenskir dagar elskenda. Hvar á þessi dagur uppruna sinn? Sögu Valentínusardags er hægt að rekja til hátíðardags kaþólsku kirkjunnar, til heiðurs heilög- um Valentínusi. Tengingin við róm antíska ást varð ekki fyrr en eftir miðaldir, en þá fyrst þróaðist hugmyndin um rómantíska ást. Hver var heilagur Valentínus? Ekki er alveg vitað hver heilagur Valentínus var, en tveir að jafnvel þrír píslavottar í sögu kirkjunnar báru þeta nafn. Einn var róm- verskur prestur og læknir. Einn lést af völdum Kládíusar II Rómakeisara í ofsóknum á kristnum mönn- um. Annar var biskupinn af Terní á Ítalíu. Um þann þriðja er lítið annað vitað en að hann hafi dáið í Afríku. Hver er fyrsta heimildin um Valent- ínusardag? Fyrstu skráðu heimildirnar sem tengja Valentínusardag við rómantíska ást eru enskar og franskar heimildir frá 14. öld. Á þeim tíma var 14. febrúar hefðbundinn dagur fyrir mökun fugla. Á 14. öld varð algengt að elsk- endur skiptust á skilaboðum þennan dag og kölluðu hvort annað „Valentínusinn“ sinn. Á breska bókasafninu má finna Valentínusarbréf frá 14. öld. FBL-GREINING: VALENTÍNUSARDAGUR Dagur elskenda allt frá miðöldum Björn Ingi Hrafnsson (1973) oddviti Framsóknarflokksins Björn Ingi Hrafnsson er aðstoðarmaður forsætisráðherra. Hann hlaut trausta kosningu í efsta sæti fram- boðslista Framsóknarflokksins í prófkjöri í lok janúar, en hartnær fjögur þúsund manns tóku þátt í því. Björn Ingi hefur átt sæti í miðstjórn Sambands ungra Framsóknarmanna frá árinu 2002 og setið í mið- stjórn flokksins frá 2003. Hann hefur setið í skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur frá árinu 2002. Það sama ár varð hann formaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Dagur B. Eggertsson (1972) oddviti Samfylkingarinnar Dagur B. Eggertsson læknir var fyrst kosinn í borgarstjórn árið 2002, en hann hafði tekið sæti á Reykja- víkurlistanum í nafni óháðra.Hann gegnir fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum R-listans og á sæti í borgarráði. Hann er formaður skipulagsráðs, menningar- og ferðamálaráðs, stjórnkerfisnefndar og hverfisráðs Árbæjar. Þegar ljóst varð í fyrra að dagar R-listans væru taldir gaf Dagur til kynna að hann ætlaði að draga sig í hlé frá borgarmálunum. Um síðir gekk hann í Samfylkinguna og er nú borgarstjóraefni flokksins eftir sigur í prófkjöri um síðustu helgi sem 9.300 tóku þátt í. Svandís Svavarsdóttir málfræðingur er framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Hún var valin í efsta sæti lista vinstri grænna í forvali hreyfingarinnar í október í fyrra, en rétt til þátttöku höfðu um 750 félagsmenn í Reykjavík. Svandís hóf afskipti af borgarmálum á vegum VG í upphafi yfirstandandi kjörtímabils. Hún er aðalmaður í tómstundaráði Reykjavíkurborgar á vegum R-listans og varamaður í menntaráði og menningar- og ferðamálaráði. Svandís Svavarsdóttir (1964) oddviti vinstri grænna Ólafur F. Magnússon (1952) oddviti Frjálslynda flokksins Ólafur F. Magnússon læknir er borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins. Hann sagði sig úr Sjálfstæðisflokkn- um í árslok 2001 og sagði jafnframt af sér sem varamaður í borgarráði og skrifari borgarstjórnar. Hann hafði þá verið virkur í Sjálfstæðisflokknum frá 1990 og setið í ráðum og nefndum borgarinnar á vegum flokksins. Hann sat sem óháður borgarfulltrúi til loka kjörtímabilsins vorið 2002 en var endurkjörinn borgarfulltrúi af F-lista Frjálslyndra og óháðra í borgarstjórnarkosningunum í maí 2002. Frambjóðendur á fimm framboðs- listum eru nú tilbúnir í baráttuna um völdin í borgarstjórnarkosning- unum 27. maí næstkomandi. Þótt engar stórkostlegar svipt- ingar hafi orðið í efstu sætum í prófkjöri Samfylkingarinnar um helgina er ljóst að endurnýjun í borgarstjórn getur orðið umtals- verð miðað við fylgiskannanir. Framsóknarflokkurinn hefur átt tvo fulltrúa í borgarstjórn í krafti R- listans. Alfreð Þorsteinsson, þraut- reyndur stjórnmálamaður, gaf ekki kost á sér. Eftirmaður hans er Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður for- sætisráherra eftir að hinn fulltrúi flokksins, Anna Kristinsdóttir, dró sig í hlé þegar hún hafði tapað bar- áttunni um fyrsta sætið í prófkjöri Framsóknarflokks. Kannanir gefa ekki enn til kynna að Framsóknar- flokkur fái mann kjörinn en sagan kennir að fylgi flokksins kann að duga fyrir einum fulltrúa. Kannanir sýna að Vinstri hreyf- ingin – grænt framboð er nær öruggt með einn fulltrúa af 15 manna borgarstjórn. Svandís Svav- arsdóttir vermir nú efsta sæti list- ans eftir að Árni Þór Sigurðsson, annar þrautreyndur borgarfulltrúi, vék fyrir henni og er nú í öðru sæti listans. Fjórir núverandi borgarfulltrú- ar skipa sex efstu sæti á lista Sam- fylkingarinnar, þar af tvö ný nöfn í fimmta og sjötta sæti. Samfylk- ingarmenn telja ekki óraunhæft að listinn, undir forystu Dags. B. Eggertssonar, nái sex fulltrúum í borgarstjórn. Nýliðar listans yrðu þá Oddný Sturludóttir og Sigrún Elsa Smáradóttir. Nýliðunin varð einnig umtals- verð hjá Sjálfstæðisflokknum í prófkjörinu í byrjun nóvember. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir (6), Jórunn Frímannsdóttir (7), Sif Sig- fúsdóttir (8), Gísli Marteinn Bald- ursson (3), Júlíus Vífill Ingvarsson (5) og Bolli Thoroddsen (9) eru í raun öll ný á listanum þótt bæði Júlíus og Gísli Marteinn hafi áður setið í borgarstjórn sem aðal- og varamenn. Hvort heldur Sjálfstæðisflokk- urinn nær hreinum meirihluta eða aðrir nái sér á strik blasir við að um helmingur borgarfulltrúa í nýkjör- inni borgarstjórn tekur þar sæti í fyrsta skipti eftir kosningarnar 27. maí næstkomandi. RÁÐHÚSIÐ Að loknum kosningum í vor mun líkindum nærri helmingur borgarfulltrúanna taka sæti í borgarstjórn í fyrsta skipti. Mikil endurnýjun meðal borgarfulltrúa Að loknum prófkjörum er fyrirsjáanlegt að mikil endurnýjun verður í röðum borgarfulltrúa. Líkur eru á að sjö til átta nýir fulltrúar taki sæti í borgarstjórn. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lögfræðingur er þrautreyndur stjórnmálamaður og var fyrst kjörinn í borgar- stjórn 1982. Hann situr í borgarráði en hefur á löngum ferli gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk- inn í ótal ráðum og nefndum í nærri aldarfjórðung. Vilhjálmur hefur verið formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga frá árinu 1990 og formaður málefnanefndar Sjálfstæðisflokksins um sveitarstjórnar- og byggðamál frá 1992. Vilhjálmur hlaut nærri 54 prósent atkvæða í fyrsta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í nóvember síðastliðnum sem 12.500 tóku þátt í. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (1946) oddviti Sjálfstæðisflokksins FRÉTTASKÝRING JÓHANN HAUKSSON johannh@frettabladid.is 4,6% 2,9% 3,0% 2,8% 5% 10% 0% > Hlutfall áfengis og tóbaks af meðalneyslu á heimili 2004. Ei nh le yp ir Hj ón /s am bý lis fó lk án b ar na Hj ón /s am bý lis fó lk m eð b ör n Ei ns tæ ði r f or el dr ar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.