Fréttablaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 38
■■■■ { kópavogur } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■14
Bókasafn Kópavogs hefur um nokk-
urt skeið haldið úti sýningarköss-
um úr gleri á öllum þremur hæðum
safnsins og boðið almenningi að
sýna muni sem safnað hefur verið
í gegnum árin. Hrafn Andrés Harð-
arson bæjarbókavörður segir þessa
starfsemi hafa skemmtilega skírskot-
un í hlutverk bókasafnsins, sem sé að
safna bókum og vekja athygli á inni-
haldi þeirra. Þá býðst fyrirtækjum
og verslunum tækifæri til að kynna
varning sinn í kössunum.
Hrafn segir þessa þjónustu hafa
vakið mikla athygli og að ýmislegt
hafi verið sýnt í kössunum. ,,Þetta
kostar ekki neitt enn sem komið er,
hefur verið vinsælt og það hefur
ýmislegt verið til sýnis, til dæmis
fingurbjargir, bækur og leðurmunir
auk þess sem við tókum þátt í rúss-
neskum dögum og vorum með safn
af rússneskum dúkkum, svokölluðum
matrúskum,“ segir Hrafn.
Ýmis starfsemi fer fram innan
bókasafnsins og segir Hrafn að reglu-
lega sé reynt að standa fyrir kynn-
ingum og fyrirlestrum sem hafi skír-
skotun í þann efnivið sem finna megi
í bókunum á safninu. Sem stendur fer
fram röð fyrirlestra um mismunandi
trúarbrögð. ,,Í fyrsta fyrirlestrinum
kom Þórhallur Heimisson með erindi
þar sem hann fór yfir hlutina og dró
upp mynd af því hvernig þetta liti út
landfræðilega og hvernig trúarbrögð-
in dreifðust um heiminn auk þess
sem hann tók fyrir einkenni helstu
trúarbragða,“ segir Hrafn. Á næstu
fyrirlestrum verður svo fjallað nánar
um algengustu trúarbrögðin hvert
fyrir sig en fyrirlestrunum lýkur 22.
mars næstkomandi með umfjöllun
um Zen-Búddisma.
Barnastarf er eitt af mikilvægustu
hlutverkum Bókasafnsins. Vikulega
er safnið með lesstund fyrir börn-
in en þar eru þeim meðal annars
sagðar sögur. Hrafn segir að þótt öll
börn séu velkomin í sögustundina
sé algengast að leikskólabörn komi í
fylgd leikskólakennara þar sem fátítt
sé að börn séu heima hjá foreldrum
sínum að degi til. Bókasafnið er í
nánu samstarfi við Náttúrufræði-
stofu Kópavogs sem er í sama húsi.
Sá háttur hefur verið á að börnunum
hefur verið boðið upp á fræðslu hjá
Náttúrufræðistofu og hafa skoðað þar
uppstoppuð og lifandi dýr en fært sig
síðan yfir á bókasafnið þar sem lesn-
ar hafa verið sögur um sama efni og
fjallað var um í fræðslunni. Þá hafa
Bókasafnið og Náttúrufræðistofa
staðið að því að koma uppblásnum
hval, sem ber heitið Valur, fyrir á
túninu fyrir framan safnið börnun-
um til gamans og yndisauka. Á vor-
dögum er svo væntanlegur sérstakur
flugdrekadagur í samvinnu við leik-
skólana þar sem keppt verður í gerð
og hönnun flugdreka og mögulega í
drekaflugi.
Bókasafn Kópavogs var stofnað
árið 1953 og fagnaði því fimmtíu
ára afmæli árið 2003. Svo skemmti-
lega vill til að bókasafn bæjarins er
tveimur árum eldra en bærinn sjálfur
en það var stofnað sem lestrarfélag
valinkunnra Kópavogsbúa þegar
bærinn var enn bara hreppur. Jón
úr Vör var fyrsti bæjarbókavörður
en Hrafn tók við þegar Jón lét af
störfum þannig að í rúm fimmtíu ár
hafa aðeins tveir aðilar gegnt stöðu
forstöðumanns Bókasafns Kópavogs.
,,Við skulum ekkert vera að rifja
upp hvað ég er búinn að vera lengi
í þessu starfi,“ segir Hrafn og hlær.
Hann telur að lestur hafi ekki minnk-
að þrátt fyrir að útlán bókasafna hafi
dregist saman. ,,Fólk les mun meira í
dag en nokkurn tíma áður. Við sitjum
yfir blöðum, tímaritum og vefnum og
allt krefst þetta mikils lesturs. Einnig
kaupir fólk sér bækur í auknum mæli
í dag því það hefur meira milli hand-
anna. Sumir vilja bara kaupa bæk-
urnar og henda þeim svo að lestri
lokum. Það kemur þó ekkert í stað-
inn fyrir bókina. Menn hafa verið að
reyna að búa til stafræna bók en það
hefur aldrei tekist. Maður getur ekki
fundið hjólið upp aftur, það kemur
ekkert í staðinn fyrir það,“ segir
Hrafn brosandi að lokum.
Heillandi fingurbjargir og
rússneskar trédúkkur
Bókasafn Kópavogs er í hjarta bæjarins og býður upp á fjölbreytta og spennandi starf-
semi. Reglulega er staðið fyrir kynningum og fyrirlestrum sem standa öllum opnir.
Mikið af skemmtilegum munum er til sýnis í sýningarkössum bókasafnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þessi skemmtilega stytta er til sýnis á Bókasafni Kópavogs. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bókasafnið stendur reglulega fyrir áhuga-
verðum fyrirlestrum sem standa öllum
opnir.
UngFreisting er áhugaverður
klúbbur sem samanstendur af
matreiðslu-, bakara- og fram-
reiðslunemum í Menntaskólanum
í Kópavogi. Klúbburinn á rætur
sínar að rekja til Freistingar, sem
er félag þeirra sem lokið hafa námi
í sömu greinum.
Um helgina hélt UngFreisting
glæsilega matvælasýningu í Hag-
kaupum í Smáralind þar sem vörur
frá Ferskum kjötvörum, Snæfiski,
Sælkeradreifingu, Lambhaga og
Íslandsnauti voru í boði. Stefán
Cosser, matreiðslunemi og með-
limur í UngFreistingu, segir sýn-
inguna ekki tengda náminu í MK
á neinn hátt. ,,Við erum klúbbur
sem hittist mánaðarlega og ákváð-
um við að halda þessa sýningu til
þess að gera félagið okkar sýni-
legt,“ segir Stefán. ,,Þessi sýning
er ekki tengd skólanum að öðru
leyti en því að við fáum aðstöðu
hjá skólanum.“
Þegar blaðamann bar að garði
var sýningin komin á fullt. Sumir
sýningarhaldaranna ungu höfðu
þá unnið í yfir sólarhring sleitu-
laust. ,,Það liggur gífurleg vinna
að baki þessari sýningu og það
sama má í raun segja um kokka-
starfið yfir höfuð. Vinnan er mikil
og launin eru ekki góð en þetta er
algjörlega þess virði,“ segir Stefán,
sem tekur þátt í alþjóðlegri mat-
reiðslukeppni fyrir Íslands hönd
á Nýja-Sjálandi um miðjan mars.
Stefán segir keppnina vera eina þá
virtustu meðal matreiðslunema í
heiminum. Keppnin gengur út á að
keppendur fá körfu með hráefnum
og hafa fjóra klukkutíma til þess að
elda fyrir sex manna dómnefnd.
Á sýningunni um helgina buðu
matreiðslunemarnir gestum upp
á miklar kræsingar. Má þar nefna
skelfisk á nýbökuðu brauði í sætri
chillí-sósu, krónhjartarbóg í karrí
sem er villibráð að asískum hætti og
tvær tegundir af nautafille. Spek-
ingslegir framreiðslunemar buðu
gestum einnig að smakka rauðvín
og hvítvín og mátti augljóslega sjá
að þeir vissu sínu viti í vínfræðum.
Gestir gátu að lokum dýft banana-
bitum eða jarðarberjum í glæsileg-
an brunn sem var fullur af fljótandi
súkkulaði.
Ásamt þeim kræsingum sem
gestir gátu bragðað á var á sýn-
ingunni góðgæti frá öllum heims-
hornum. ,,Við erum með alls konar
sushi, austurlenskt þema, kalda rétti,
akurhænur, lynghænur, nautakjöt,
lambakjöt og svínakjöt auk þess
sem við skreyttum allt glæsilega,“
segir Stefán og bendir á ísstyttu
sem prýðir sýningarborðið.
UngFreisting á heiður skilinn
fyrir skemmtilegt og vel heppnað
framtak.
Súkkulaðibrunnur
og krónhjartarbógur
UngFreisting er félag nema í matvæladeild Menntaskól-
ans í Kópavogi. Félagið hélt glæsilega matvælasýningu í
Hagkaupum í Smáralindinni um síðustu helgi.
Stefán Cosser tekur þátt í alþjóðlegri matreiðslukeppni fyrir Íslands hönd á Nýja-Sjálandi
um miðjan mars. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.