Fréttablaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 14. febrúar 2006 5
Dagur helgaður dýrlingnum
Valentínusi á rætur sínar að
rekja til miðalda. Dagurinn
komst hins vegar í það horf
sem við þekkjum hann í dag á
síðustu öld.
Flest þekkjum við Valentínusar-
daginn og vitum að stendur fyrir
rómantík og ást. Íslendingar hafa
flestir fengið þessa vitneskju úr
bandarískum og breskum kvik-
myndum þar sem þessi hefð er
hvað mest áberandi. Hefð þessi,
sem sækir fyrirmynd sína langt
aftur til miðalda, hefur leitt af
sér einn af stærstu neysludögum
ársins en alls er talið að um einn
milljarður ástarkorta sé seldur um
heim allan á þessum degi. Aðeins á
jólunum eru seld fleiri kort. Aðrar
vörur eins og blóm og súkkulaði
seljast einnig grimmt. Þess má til
gamans geta að 80% af öllum seld-
um kortum á Valentínusardaginn
eru talin vera keypt af konum.
Í byrjun fimmtu aldar hóf kaþ-
ólska kirkjan að halda Valentínus-
ardaginn hátíðlegan. Var þá þegar
farið að halda upp á hann þann
14. febrúar. Árið 1969, þegar kaþ-
ólska kirkjan endurskoðaði alm-
anak sitt, var dagurinn hins vegar
strokaður út af dagatalinu sem
almennur hátíðisdagur tengdur
dýrlingi. Dagurinn þótti byggður á
of óljósum heimildum og þóttu þær
bera of goðsögulegan keim. En þó
að kirkjan hafi tekið daginn út
voru kaupmenn ekki á því og sala
á rómantískum kortum og tilheyr-
andi hefur aukist jafnt og þétt.
Ekki er vitað fyrir víst hver
hinn eini sanni sankti Valentínus
var. Þrír koma til greina en vin-
sælast er að kenna Valentínus-
ardaginn við mann nokkurn sem
kenndi að herbergi og rúm hjóna
væri helsti helgistaður ástarinnar
og rómantíkur. Hann var einarður
stuðningsmaður kristinnar trúar
og var tekinn af lífi fyrir þær
sakir. Á miðöldum byrjuðu menn
að tengja daginn við rómantík og
ást.
Hið hefðbundna snið dagsins
með kortum og öðru slíku tók að
myndast í byrjun síðustu aldar.
Síðan hefur tilstandið undið upp á
sig og orðið sífellt útbreiddara að
halda daginn hátíðlegan.
steinthor@frettabladid.is
Dagur ástar og
rómantíkur
Sankti Valentínus eins og hann lítur út á helgimynd úr kristnum sið.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Rósir, kerti og kort
ÍSLENDINGAR GETA LÍKA VERIÐ
RÓMANTÍSKIR OG LÁTIÐ VAL-
ENTÍNUSARDAGINN LÍFGA UPP Á
TILVERUNA.
Þar sem nú er orðið um seinan
að senda elskunni Valentínusar-
kort í pósti þetta árið er hér með
bent á www.vefkort.is en þar eru
Valentínusarkort meðal þess sem
í boði er. Þau kosta heldur ekkert.
Kertaljósin klikka ekki á Valentínusardag-
inn fremur en aðra daga.
Rauðar rósir túlka
rómantíkina betur
en flest annað.