Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2006, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 14.02.2006, Qupperneq 48
 14. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR20 timamot@frettabladid.is Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Páll Jóhannesson frá Herjólfsstöðum í Álftaveri, Mánatúni 2, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, þriðjudag, kl. 13.00. Guðlaug Jóhannsdóttir Sigrún Björnsdóttir Þuríður Pálsdóttir Páll Kjartansson Már Grétar Pálsson Sólveig Sveinsdóttir barnabörn og langafastrákur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Gísla Vigfússonar frá Skálmarbæ. Þakkir til starfsfólks á Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri. Fyrir hönd aðstandenda, Kolbrún Gestsdóttir Faðir okkar og bróðir minn, Gylfi Gíslason teiknari og myndlistarmaður, Skólastræti 3b, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu miðvikudaginn 1. febrúar. Útför hans fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 15. febrúar kl. 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Margrét Þóra Gylfadóttir Kristín Edda Gylfadóttir Unnur Kristbjörg Gylfadóttir Freyja Gylfadóttir Þorkell Snorri Gylfason Kristín Eiríka Gísladóttir Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengda- móðir, amma, langamma og langa- langamma, Katrín Sólveig Jónsdóttir lést sunnudaginn 5. febrúar á Hrafnistu í Reykjavík. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Hlöðver Helgason Sævar Hlöðversson María Pétursdóttir Hjálmar K. Hlöðversson Elínborg Pétursdóttir Guðjón H. Hlöðversson Björg Ragnarsdóttir Hafdís Hlöðversdóttir Sigmar Teitsson Gunnar Hlöðversson Sigurlaug M. Ólafsdóttir Valgerður O. Hlöðversdóttir Pétur Andrésson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ingi Berg Guðmundsson loftskeytamaður, Völvufelli 42, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítalans föstudaginn 10. febrúar. Útför hans verður frá kirkju Óháða safnaðarins föstudaginn 17. febrúar kl. 14.00. Fanney Vigfúsdóttir Auður Björg Ingadóttir Elías Jón Sveinsson Jóna Rán Ingadóttir Rúnar Þór Vilhjálmsson Ingi Berg Ingason Anna Lísa Hassing og barnabörn. Á þessum degi árið 1989 hvatti leiðtogi Írans, Ayatollah Khomeini, múslima til að drepa indversk-breska rithöfundinn Salman Rushdie fyrir skrif hans í bókinni Söngvar Satans. Breska leyniþjónustan Scotland Yard brást við með því að veita Rushdie vernd. Mótmæli brutust út um allan heim vegna Söngva Satans. Bókin var gefin út í september 1988 en þar kannaði Rushdie árekstra sem verða milli trúarlegra og veraldlegra sjónarmiða. Bókin rokseldist þrátt fyrir að hún væri bönnuð í fjölmörgum löndum. Khomeini taldi rithöfundinn réttdræpan fyrir guðlast og voru settar háar fjárhæðir til höfuðs honum. Í níu ár lifði hann á flótta og í felum undir lögregluvernd uns bannfæringunni var aflétt í september 1998. Þá tilkynnti nýr forseti Írans, Mohammed Khatami að ríkisstjórnin myndi ekki styðja „fatwa“ eins og bann- færingin var kölluð. Harðlínumenn halda þó enn til streitu dauðadómnum yfir Rushdie enda getur fatwa tækni- lega ekki verið afturkölluð heldur rennur sitt skeið á enda þegar sá sem var bannfærður hverfur yfir móðuna miklu. ÞETTA GERÐIST > 14. FEBRÚAR 1989 Salman Rushdie dæmdur til dauða SALMAN RUSHDIE RITHÖFUNDUR MERKISATBURÐIR 1779 Enski skipstjórinn og land- könnuðurinn James Cook er drepinn á Hawaii. 1929 Sjö andstæðingar glæpón- ans Als Capone eru drepnir í bílskúr í Chicago. Atvikið hefur verið kallað Valent- ínusardags-blóðbaðið. 1942 Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, er stofnað. 1969 Landsprófsnemendur fara kröfugöngu um götur Reykjavíkur til að leggja áherslu á kröfur sínar um endurskoðun skólakerfisins. 1994 Björk Guðmundsdóttir er valin besta alþjóðlega söng- konan og besti nýliðinn á Brit-tónlistarverðlaunahá- tíðinni í Bretlandi. 2003 Frægasta kind veraldar, hin einræktaða Dolly, er aflífuð sex ára gömul þar sem hún þjáist af lungnasjúkdómi. P.G. WODEHOUSE (1881-1975) LÉST ÞENNAN DAG. „Það er aðeins til ein lækning við gráu hári. Frakkar fundu hana upp og er hún kölluð fallexi.“ P.G. Wodehouse var breskur rithöfundur. Hvað þekktastur er hann fyrir sögur sínar af þjóninum Jeeves og grannvitra aðalsmanninum Wooster. Jón Páll Halldórsson hefur verið með- limur í Sögufélagi Ísfirðinga frá því það var stofnað í ársbyrjun árið 1953. Hann hefur setið í stjórn þess frá 1960 og sem formaður síðastliðin 27 ár. „Það var og er tilgangur félagsins að safna, varðveita og kynna hvers konar fróð- leik um Ísafjarðarsýslu og -kaupstað að fornu og nýju,“ upplýsir Jón Páll en félagið hefur gefið út fjölda rita á síðustu áratugum. Saga Ísafjarðar hefur komið út í fjórum bindum og fyrir áramótin kom út fyrra bindið að sögu Bolungarvíkur. Þá hefur félagið gefið út ársrit í fimmtíu ár eða allt frá árinu 1956. „Ég hef nú fullyrt það að hvergi sé samankominn jafn mikill fróðleikur um hérað og íbúa þess eins og á þessum stað en þetta eru orðnar yfir átta þúsund lesmálssíður,“ segir Jón Páll og telur að félagið hafa staðið við þau markmið sem í upphafi voru sett. Sögufélagið hefur ekki eingöngu safnað fróðleik heldur hefur það bar- ist ötullega fyrir varðveislu sögu- legra minja. Til að mynda átti félagið stærstan þátt í því að friðlýsa versl- unarhúsin í Neðstakaupstað á Ísafirði sem eru ein helsta bæjarprýðin í dag. Jón Páll telur að aðkoma sín að varð- veislu húsanna sé það sem helst standi upp úr á löngum ferli í félaginu. „Fróð- leik er hægt að safna síðar en ef húsin hefðu verið rifin hefði þeim ekki verið bjargað,“ áréttir Jón Páll og segir að um miðja öldina hafi menn ekki verið með hugann við það að varðveita gömul og sögufræg hús þó allir séu opnir fyrir því í dag. Sama segir hann uppi á teningnum gagnvart bátum í dag, en félagið berst nú fyrir því að varðveita nokkra slíka. „Þegar þeir hverfa einn af öðrum átta menn sig á því að þarna eru söguleg verðmæti sem eru að glatast,“ segir Jón Páll sem starfaði í fimmtíu ár við útgerð og fiskvinnslu. „Sjávarútvegurinn stend- ur hjarta mínu nærri,“ segir Jón Páll sem ákvað nýverið að hætta sem for- maður Sögufélags Ísfirðinga. „Ég er kominn á aldur og kominn tími fyrir nýja menn að taka við. Ég hef áhuga á þessum málefnum öllum og vona að mér endist líf og heilsa, og að ég fái tækifæri til þess að leggja þeim lið,“ segir Jón Páll ánægður með það sem áunnist hefur síðustu áratugi og vonar að byggt verði ofan á hið góða starf um ókomin ár. JÓN PÁLL HALLDÓRSSON: HÆTTIR SEM FORMAÐUR SÖGUFÉLAGS ÍSFIRÐINGA Varðveitir sagnaarf Ísfirðinga FORMAÐUR Í 27 ÁR Jón Páll Halldórsson hefur verið í Sögufélagi Ísfirðinga frá stofnun þess árið 1953 og í stjórn frá 1960. Hann hættir nú sem formaður félagsins eftir 27 ára starf. ANDLÁT Þorgerður Sigurjónsdóttir, Stekkjarbergi 1, Hafnarfirði (Stórabergi) lést fimmtudaginn 2. febrúar 2006 á Landspítalanum, Fossvogi. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Anna María Helgadóttir, áður til heimilis að Hringbraut 11b, Reykjavík, lést á elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund föstudaginn 10. febrúar. Anna María Gunnarsdótt- ir, Herningvej 86, Álaborg, Danmörku, lést á heimili sínu fimmtudaginn 9. febrúar. Erlendur Steinar Ólafsson, Mið- túni 46, Reykjavík, lést á Landspít- alanum í Fossvogi miðvikudaginn 8. febrúar. JARÐARFARIR 13.00 Páll Jóhannesson frá Herjólfsstöðum í Álftaveri, Mánatúni 2, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju. AFMÆLI Elva Dögg Melsteð fyrsta ungfrú Ísland.is er 27 ára. Eyjólfur Kolbeins, innkaupastjóri hjá Orkuveitu Reykja- víkur, til heimilis að Gvendargeisla 82 er 60 ára. Jóhanna Kristjóns- dóttir rithöfundur er 66 ára. Steinþór Sigurðsson leikmyndahönnuður er 73 ára. Tómas Helgason prófessor er 79 ára. Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðar- farir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.