Fréttablaðið - 14.02.2006, Síða 62
14. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR34
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
FJÓRIR SPURÐIR DAGUR ELSKENDA ER Í DAG OG LEGGST MISVEL Í FÓLK
Heldur þú Valentínusardaginn hátíðlegan?
LÁRÉTT
2 eiturlyf 6 í röð 8 skref 9 jurt 11 elds-
neyti 12 þrábeiðni 14 smápeningar 16
2 eins 17 árkvíslir 18 drulla 20 tveir eins
21 fullnægja.
LÓÐRÉTT
1 ósaði 3 frá 4 hljóðfæri 5 arinn 7
aðgætinn 10 efni 13 hrökk við 15 svall
16 kóf 19 kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 hass, 6 aá, 8 fet, 9 urt, 11 mó,
12 kvabb, 14 aurar, 16 kk, 17 ála, 18 aur,
20 ll, 21 fróa.
LÓÐRÉTT: 1 rauk, 3 af, 4 semball, 5 stó,
7 árvakur, 10 tau, 13 brá, 15 rall, 16 kaf,
19 ró.
Hörður Torfason
tónlistarmaður
„Nei, þetta er
seinni tíma siður
sem er að ryðja
sér til rúms. Það
er samt alltaf
gaman að halda
upp á eitthvað
og þetta er
ástardagurinn en
maður þarf nú
engan sérstakan dag til þess. Það er
skemmtilegast að lifa lífinu í sífellu með
óvæntum uppákomum í gegnum tíð
og tíma.“
Simmi í Idol
„Nei, ég geri það
ekki. Ég er ekki
hrifinn af því að
ég þurfi að vera
rómantískur
á einhverjum
virkum degi. Mér
finnst það ekki
ekta. Ég er gamal-
dags Íslendingur
að þessu leyti.“
Brynja Björk
Garðarsdóttir,
sjónvarpsstjarna
á Sirkus:
„Ég held Valent-
ínusardaginn
yfirleitt hátíðleg-
an, mér finnst
þetta krúttlegur
dagur. Það er
alltaf gaman að
fara út að borða
með góðum vini og hafa það notalegt,
en mér virðist nefnilega að fólk sé að
misskilja pínulítið þennan dag, þetta er
alls ekki bara fyrir pör.“
Krista Mahr,
ritstjóri Iceland
Review og
Atlantica (frá
Kaliforníu):
„Pabbi var ávallt
mjög skyldurækinn
þegar kom að því
að færa okkur
mömmu og ömmu
súkkulaði og blóm
á Valentínusardag. Sjálf hélt ég daginn
hátíðlegan meðan ég bjó í foreldrahúsum.
Í dag finnst mér dagurinn tilvalinn fyrir
aðra að gera sér glaðan dag, þótt það
hvarfli ekki að mér persónulega. Ég er svo
einstaklega órómantísk.“
HRÓSIÐ
...fær Berglind Gestsdóttir sem
hefur opnað sérstaka skóverslun
á Rauðarárstígnum en hönnuðir
skónna, Angela Spieth og Michael
Oehler, eru á móti fjöldafram-
leiðslu og því eru skórnir fram-
leiddir í litlum verksmiðjum í
Austur-Berlín.
Óvíst er hvort hljómsveitin Mezzo-
forte muni koma fram á alþjóð-
legu Java-djasstónlistarhátíðinni í
Jakarta í Indónesíu í byrjun mars
vegna þess að einn af liðsmönnum
hennar er danskur ríkisborgari.
Trompet- og ásláttarleikar-
inn Thomas Dyani býr í London
og er hálfur Afríkumaður en er
jafnframt með danskt vegabréf.
Allir Danir í Indónesíu hafa verið
hvattir til að yfirgefa landið
vegna hinna umdeildu teikninga
af Múhameð spámanni sem voru
birtar í dönsku dagblaði fyrir
nokkrum mánuðum. Teljast þeir
vera í lífshættu vegna teikning-
anna og því er för Mezzoforte á
hátíðina, sem verður haldin 3. til
5. mars, í nokkurri hættu.
„Við ætlum að sjá hvernig
þetta þróast. Eins og staðan er
núna reiknum við ennþá með því
að fara en staðan getur breyst,“
segir Eyþór Gunnarsson, einn
af fjórum íslenskum meðlimum
Mezzoforte sem ætla út. Hinir
eru Gunnlaugur Briem trommari,
bassaleikarinn Jóhann Ásmunds-
son og saxófónleikarinn Óskar
Guðjónsson sem hefur spilað tölu-
vert með sveitinni á tónleikum.
Auk þeirra ætla til Indónesíu tveir
aðrir erlendir nýliðar; gítarleikar-
inn Bruno Mueller og Sebastian
Studnitzky sem spilar á hljómborð
og trompet.
Eyþór segir það hugsanlegt að
Mezzoforte muni fara út án Thom-
asar en það eigi allt eftir að koma
í ljós. „Við ætlum að fara með
stórt band og gera þetta veglega
og sjá síðan til. Þegar maður spil-
ar á svona festivölum eru alltaf
njósnarar frá öðrum festivölum
þannig að við ætlum að tjalda öllu
því sem við eigum til,“ segir hann.
Auk Mezzoforte spila þekkt nöfn
á borð við Kool and the Gang og
Brand New Heavies á hátíðinni.
„Við ætlum alla vega að fljúga
útlendingunum heim þann 23.
þessa mánaðar og byrja að æfa,“
svarar hann er hann er spurður
hverjar líkurnar séu á Indónes-
íuförinni. „Indónesía er samt ein
af aðalbækistöðvum Al-Kaída
þannig að maður veit ekki hvað
verður,“ bætir hann við. „Þegar
allir Danirnir eru farnir þá er
spurningin hvort þeir ráðist bara
ekki á nágrannana.“
Mezzoforte hefur þrisvar sinn-
um spilað á annarri djasshátíð í
Indónesíu áður, árin 1993, 1994,
og ´97. Einnig var sveitinni boðið á
hátíðina árið 1999 en þá var hátíð-
in blásin af vegna óeirða í landinu.
Segir Eyþór að í þau skipti sem
Mezzoforte hafi farið til Indónesíu
hafi dvölin verið mjög ánægjuleg
og allt verið til mikillar fyrir-
myndar þar.
Mezzoforte er með ýmislegt
fleira í bígerð. Eru tónleikar meðal
annars fyrirhugaðir í Búlgaríu,
Þýskalandi og á Norðurlöndunum.
Síðasta plata Mezzoforte, For-
wards Motion, kom út árið 2004
þar sem allir fjórir upprunalegu
meðlimirnir spiluðu, þar á meðal
Friðrik Karlsson sem er nú fjarri
góðu gamni vegna mikilla anna í
London. freyr@frettabladid.is
DJASSHÁTÍÐ Í INDÓNESÍU: ÓVÍST MEÐ ÞÁTTTÖKU MEZZOFORTE
Danskur nýliði í hættu
MEZZOFORTE Hljómsveitin Mezzoforte er að öllum líkindum á leið til Indónesíu til að spila á djasshátíð. Guðmundur Pétursson, næst-
lengst til hægri, verður ekki með sveitinni í þetta skiptið.
Það eru tuttugu ár liðin síðan að
Icy-tríóið steig á sviðið í Bergen
og flutti lagið Gleðibankann sem
sérhvert barn hefur fengið í arf
með móðurmjólkinni. Af því til-
efni ætlar Fréttablaðið að efna
til kosningar á www.visir.is hvert
af okkar lögum í keppninni hafi
verið best og var kjörstaðurinn
opnaður nú í morgun. Kjósend-
ur geta unnið sér inn úttektir frá
Senu en einungis er hægt að kjósa
fimm sinnum. Úrslitin verða síðan
kynnt í aukablaði um lokakeppni
RÚV sem fylgir Fréttablaðinu á
laugardaginn en þá verður einmitt
19. framlag okkar valið.
Átján keppendur eða hópar hafa
farið fyrir okkar hönd og reynt að
heilla Evrópubúa upp úr skónum
með misjöfnum árangri í þessari
merkilegu keppni. Við getum til
að mynda státað okkur af því að
við unnum keppnina „næstum“
því árið 1999 þegar Selma rakaði
inn heilum 146 stigum og hafnaði
í öðru sæti. Níu árum áður náðu
Sigga Beinteins og Grétar Örvars
fjórða sætinu með lagi sínu Eitt
lag enn. Lífið hefur þó ekki alltaf
verið dans á rósum hjá okkur. Við
höfum tvívegis mátt sætta okkur
við að vera á hliðarlínunni og þá
höfum við mátt verma botnsætið.
Oftast höfum við þó siglt lygnan
sjó og hafnað fyrir miðju
Það verða fimmtán lög sem
keppa um að komast til Grikk-
lands í sumarbyrjun á þessu ári
og fær þjóðin að velja það með
símakosningu. Það er búist við
mikilli spennu enda til mikils að
vinna en undankeppnirnar þrjár
hafa vakið athygli og notið mikilla
vinsælda.
-fgg
Hvaða lag er best?
SELMA BJÖRNS Náði besta árangri okkar Íslendinga með laginu All out of Luck árið 1999,
en hún hafnaði í öðru sæti eftir harða baráttu við Svía. FRÉTTABLAÐIÐ / MYND: REUTERS
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fyrir ekki margt löngu greindi Frétta-blaðið frá því að Saga Film leitaði
eftir fimm ára stúlku til að leika unga
Elvu Ósk í kvikmyndinni Köld slóð
sem Björn Br. Björnsson leikstýrir. Um
sextíu manns settu sig í samband við
fyrirtækið og voru tíu stúlkur kallaðar í
prufur. Það var þó aðeins ein
útvalin og það reyndist vera
Birta Júlía Þorbergsdóttir,
fimm ára gömul stelpa
frá Akureyri, sem hreppti
hnossið. Tökur eru um
það bil að hefjast á þess-
ari spennumynd sem
gerist að mestu leyti við
virkjun uppi á hálendi
Íslands.
Það er Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sem verður gestur hinna gáskafullu
Stráka á morgun. Þetta er eitt fyrsta
sjónvarpsviðtalið sem alheimsfeg-
urðardrottningin mætir í og það má
vera flestum ljóst að þeir
drengir munu reyna að
spyrja hana spjörunum
úr. Vafalaust hafa þeir
Pétur, Sverrir og Auð-
unn ekki verið jafn
spenntir fyrir einum
þætti enda ekki á
hverjum degi sem
slík drottnning leggst
upp í rúm með þeim
öllum í einu.
Fréttablaðinu barst fyrir skömmu bréf frá einlægum aðdáanda Ray
Davies sem lengi hafði hlakkað til að
sjá átrúnaðargoð sitt. Hann sá sér hins
vegar ekki fært að borga þær fjárhæðir
sem miðarnir kostuðu en til gamans má
geta að miði í C-svæði kostar rúmar sjö
þúsund krónur en á A-svæðið um fjórtán
þúsund krónur. Að hans mati er það því
„einungis velsettara fólk sem hafi efni á
og geti boðið sínum nánustu að sjá hann
skemmta“. Aðdáandinn segir það í far-
veginum að láta Ray sjálfan vita af þessu
verði. „Uns það kemst á hreint hvort Ray
ætli að svíkjast undan merkjum, hvet
ég alla Kinks aðdáendur og
áhugamenn um klassíska
popptónlist að kaupa sig
ekki inn á þennan ófagn-
aðarkonsert sem auglýstur
er,“ segir í bréfinu og
hugsar skrifari líklega
Einari Bárðarsyni,
sem flytur Davies til
landsins, þegjandi
þörfina. -fgg
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
„Hann laug mig
fulla og rústaði
lífi mínu“
DÓPSTÚLKAN LAUS ÚR VARÐHALDI
2x10 13.2.2006 20:46 Page 1