Fréttablaðið - 14.02.2006, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������������
�������������
53.040 kr.
endurgreiðsla á fjölskyldu
Allt að
Skráðu þig og þína í síma 550 1400, á www.spron.is eða í næsta útibúi SPRON.
Má bjóða þér að slást í hópinn og eiga kost á
endurgreiðslu að ári?
Skilvísir viðskiptavinir fjölskylduþjónustu SPRON hafa nú fengið
endurgreiðslu vegna viðskipta ársins 2005. Þetta er aðeins hluti af
ávinningnum af því að vera í fjölskylduþjónustu SPRON – og það
besta er að þjónustan kostar ekkert.
H
im
in
n
o
g
h
a
f / SÍA
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Það er eðli kvótakónga að raka að sér meiri kvóta. Stöðnun
jafngildir hnignun og því verður
sóknin að vera stöðug. Mikill vill
meira. Þannig er því líka varið
í mengunarkvótabransanum. Á
ævintýraeyjunni sjá menn fyrir sér
álver hér og álver þar. En hvernig
eigum við að fara að þessu? spyrja
sauðsvartir, bláeygir og eftirvænt-
ingarfullir. Förum við ekki yfir á
mengunarkvótanum? Neee, segja
ráðsmenn á stjórnarheimilinu sem
fengu úthlutað mengunarkvóta
í Kýótó. Við höfum nóg að gera í
stóriðjubrölti fram til 2012 og þá
getur allt gerst. Kannski fáum við
meiri kvóta þá.
Í liðinni viku hlaut Kofi Annan,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
viðurkenningu fyrir störf í þágu
umhverfismála. Við það tækifæri
hvatti hann leiðtoga heims til að
sameinast um Kýótó-sáttmálann
og nýta hann til að bregðast við
loftslagsbreytingum. Hann kallaði
eftir hugarfarsbyltingu stjórn-
valda, fyrirtækja og almennings
svo snúa mætti vörn í sókn. „Nú
þegar Kýótó-bókunin hefur tekið
gildi geta jarðarbúar í sameiningu
reynt að ná tökum á og draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda auk
þess að styrkja umhverfisvæn
verkefni í þróunarríkjunum,“
sagði Annan.
KÝÓTÓ-SÁTTMÁLINN er tíma-
mótaplagg frá árinu 1997, gert til
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda sem valda hlýnun jarðar.
Þrjátíu og fimm iðnríki skuld-
binda sig til að draga úr losun
þessara lofttegunda á árunum
2008 til 2012. „Ríkisstjórnir þró-
aðra ríkja geta valið um ótal leiðir;
reglugerðir, skattheimtu og aðrar
aðferðir til að leggja sitt af mörk-
um. Þær þjóðir sem hafa auð og
völd eiga að taka forystu,“ sagði
Annan. „Fyrirtæki ættu að styðja
enn frekar við umhverfisvæna
tæknivæðingu og gera sitt til að
slík tækni verði raunhæfur mögu-
leiki morgundagsins. Og gleymum
ekki mætti einstaklingsins. Neyt-
endur og kjósendur ættu að láta til
sín taka í þessum efnum á heima-
velli.“
Í ljósi ummæla aðalritarans virð-
ast Frónverjar ósköp stutt á veg
komnir. Meiri mengunarkvóta
2012 fyrir fleiri álver? Það er ólík-
legt. Miklu heldur er tímabært að
hefja hugarfarsbyltinguna meðal
valdhafa, fyrirtækja og almenn-
ings. Nú er líka lag að fullnægja
óbilandi þrá landans eftir forystu-
hlutverki á alþjóðavettvangi.
Meiri mengun-
arkvóta?