Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 6
6 1. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
LANDSPÍTALI Unglæknar eru
óánægðir með að eiga ekki full-
trúa í svokölluðum notendahópum
sem eiga að vinna tillögur að fyr-
irkomulagi og skipulagi deilda á
nýju hátæknisjúkrahúsi Landspít-
ala.
„Sem formaður Félags ungra
lækna finnst mér óásættanlegt að
enginn unglæknir hafi verið skip-
aður í þessa notendahópa. Því er
alveg horft fram hjá þeim hópi
sem mun skipa kjarna þeirra
lækna sem koma til með að starfa
á þessum nýja spítala,“ segir
Bjarni Þór Eyvindsson, formaður
Félags ungra lækna.
Hann bætir við að í ljósi þess
að flestir ungir læknar séu mjög
ósáttir með stöðu sína á LSH og
óánægðir með margt í skipulagi
vinnu og aðstöðu á LSH þá hjálpi
ekki til að fá engu ráðið um hvern-
ig framtíðarvinnustaður þeirra
kemur til með að líta út.
„Ljóst er að þekking ungra
lækna á ýmsum tækniþáttum er
mun meiri en sumra eldri sér-
fræðinga,“ segir Bjarni Þór enn
fremur. „Þar sem talað er um að
byggja „hátæknisjúkrahús“ skýt-
ur það skökku við að fá ekki álit
„hátæknikynslóðarinnar“. Jafn-
framt eykur þetta hættu á að ungir
læknar sem fara út í sérnám,
óánægðir með skipan mála á LSH
og algjörlega óvissir með framtíð-
ina, setjist að og starfi þar. Þar
með værum við að glata miklum
mannauð.“ - jss
BJARNI ÞÓR Formaður Félags ungra lækna
kveðst vona að persónulegri óvild yfir-
stjórnar LSH í garð Félags ungra lækna ráði
ekki ferð þarna.
Eiga engan fulltrúa í notendahópum sem undirbúa hátæknisjúkrahús:
Unglæknar segjast settir hjá
KJÖRKASSINN
Viltu láta reisa friðarsúlu Yoko
Ono í Viðey?
Já 52%
Nei 48%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að taka upp skólagjöld í
Háskóla Íslands?
Segðu þína skoðun á visir.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
LY
F
31
59
4
0
3/
20
06
Allar vörur í Heil og Sæl
færðu hjá okkur
UMFERÐARÖRYGGI Skólasystur Höllu
Margrétar Ásgeirsdóttur, stúlk-
unnar sem lést eftir umferðarslys
á Bæjarbraut í Garðabæ 15. febrú-
ar síðastliðinn, gengu á fund bæj-
arstjóra Garðabæjar í gær. Stúlk-
urnar kynntu hugmyndir sínar um
úrbætur í umferðarmálum og sér-
staklega við gangbrautina þar sem
Halla Margrét varð fyrir bíl með
þeim afleiðingum að hún lést.
Stúlkurnar sem funduðu með
bæjarstjóra voru 25 talsins og
segja þær að Gunnar Einarsson
bæjarstjóri hafi tekið þeim vel.
Umferðaröryggi á umræddum
stað á Bæjarbraut var mest til
umræðu vegna þess að áður hefur
orðið banaslys á þessari gang-
braut. Einnig kom fram að tvær
stúlknanna í hópnum hafa þar
orðið fyrir bíl og litlu mátti muna
að illa færi.
Um fundinn sagði Gunnar Ein-
arsson bæjarstjóri að samtalið við
stúlkurnar hefði verið afar
ánægjulegt þó að tilefnið hefði
verið sorglegt. Gunnar fór með
hópnum yfir hugsanlegar aðgerð-
ir til að draga úr hættu á göngu-
brautum almennt og ekki síst þar
sem umrætt slys átti sér stað.
Gunnar og stúlkurnar ætla að
hittast eftir rúmlega viku til að
fara aftur yfir málið og vinnu sér-
fræðinga sem kallaðir hafa verið
til. - shá
Skólasystur stúlku sem lést í bílslysi í Garðabæ gengu á fund bæjarstjóra:
Krefjast úrbóta eftir banaslys
Á FUNDI MEÐ BÆJARSTJÓRA Skólasystur Höllu Margrétar Ásgeirsdóttur sem lést eftir bílslys
15. febrúar sl vilja úrbætur i´umferðarmálum.
DÓMSMÁL Harkalega var tekist á
um það í héraðsdómi í gær, hverjir
það voru sem báru raunverulega
ábyrgð á því að Nota bene hf.
greiddi ekki opinber gjöld og virð-
isaukaskatt á árunum 2001 og
2002. Aðalmeðferð í máli fyrir-
tækja sem tengjast Frjálsri fjöl-
miðlum var fram haldið í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Halldór Jónsson, lögmaður Eyj-
ólfs Sveinssonar, segir Eyjólf ekki
hafa verið stjórnarformann í
félaginu. „Eyjólfur var meðstjórn-
andi í félagi sem hélt áfram starf-
semi á grundvelli bjartsýniáætl-
ana. Eyjólfur hafði ekki ástæðu til
þess að ætla annað en að það yrði
allt með felldu.“
Karl Sigurðsson, sem sat í
stjórn fyrirtækisins fyrir hönd
Hans Petersen hf. sem var einn
eigenda fyrirtækisins, sagðist
ekki „hafa viljað hlaupa frá fyrir-
tækinu þó það stæði illa,“ því það
væri hans háttur að vinna vel og
samviskulega að öllum þeim verk-
efnum sem hann tæki að sér.
Karl kom ekki að daglegum
rekstri fyrirtækisins á þeim tíma
sem hann var í stjórn fyrirtækis-
ins.
Karl og Árni Ármann Árnason,
varamaður hans í stjórninni og
lögmaður hjá Skeljungi, fengu Jón
Steingrímsson rekstrarráðgjafa
til þess að meta rekstrarstöðu
Nota Bene hf. þegar illa stóð. Jón
komst að þeirri niðurstöðu að
áætlanir Marteins Jónassonar,
sem var framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins og einn eigenda, hefðu
verið óraunhæfar en þær gerðu
ráð fyrir þó nokkrum hagnaði af
rekstri fyrirtækisins, skömmu
áður en það varð gjaldþrota.
Jón, sem flutti vitnisburð sinn
símleiðis frá Austurríki, sagði
fyrir dómi í gær að eignastaða
Nota Bene hf. hefði verið stórlega
ofmetin og ýmis rekstrarkostnað-
ur fyrirtækisins ekki tekinn með
inn í áætlanir.
Deilt var um það hver hefði
verið stjórnarformaður Nota Bene
hf. á umræddum tíma, og þar með
ábyrgur fyrir daglegum rekstri
fyrirtækisins ásamt framkvæmda-
stjóra. Karl minntist þess að Eyj-
ólfur Sveinsson hefði ekki viljað
taka að sér stjórnarformennsku í
fyrirtækinu, en Eyjólfur, Mart-
einn og Karl hafa ekki svarað því
skýrt fyrir dómi hver hafi verið
formaður stjórnar Nota Bene hf. á
þeim tíma sem krafist var borgun-
ar á viðisaukaskatti og opinberum
gjöldum að hálfu tollstjórans í
Reykjavík. Samkvæmt lögum er
ónauðsynlegt að hafa sérstakan
stjórnarformann.
Valdimar Grímsson, sem
ákærður er ásamt Eyjólfi fyrir
brot á lögum um staðgreiðslu opin-
berra gjalda þegar hann varð
framkvæmdastjóri Póstflutninga
ehf., segir ríkislögreglustjóra hafa
farið offorsi við rannsókn á mál-
inu.
Valdimar, sem starfaði sem
framkvæmdastjóri Póstflutninga
ehf. frá því í apríl 2001 til október
sama ár, fékk aldrei tilkynningu
um það frá sýslumanni að ekki
hefðu öll gjöld verið greidd. „Mér
finnst hafa verið gerð fljófærnis-
leg mistök við rannsókn þessa
máls. Ég sá gögn í þessu máli í
fyrsta skipti þegar ég fór í skýrslu-
töku hjá ríkislögreglustjóra.
Hefðu gögn málsins verið skoðuð
nánar, og úr þeim unnið með fag-
legri hætti, hefði komið í ljós að ég
starfaði að heilindum í mínu
starfi.“ magnush@frettabladid.is
Hart deilt um mál-
efni Nota bene hf.
Karl Sigurðsson, sem var stjórnarmaður í Nota bene hf., sagði áætlanir Mar-
teins Jónassonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, óraunhæfar. Þeir tveir og
Eyjólfur Sveinsson eru í kæru sagðir ábyrgir fyrir vanskilum fyrirtækisins.
LÖGMENN ÁKÆRÐU Í DÓMSSAL Tíu lögfræðingar ákærðu hafa setið í dómssal við aðal-
meðferð málsins en hér sjást sex þeirra koma sér fyrir. Alls eru tíu einstaklingar ákærðir
fyrir brot á lögum um opinber gjöld, lög um virðisaukaskatt og umboðssvik.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAKAMÁL Enn hefur rannsókn lög-
reglu á morðinu á Jóni Þór Ólafs-
syni og Brendu Salinas Jovel ekki
leitt til handtöku. Engar upplýs-
ingar fást um framgang hennar.
Að sögn ættingja Brendu hefur
fjölskyldufyrirtæki þeirra, sem
vinnur að öryggismálum, hafið
eigin rannsókn á þessu sakamáli.
Að sögn Lárusar Elíassonar,
framkvæmdastjóra Enex, hefur
engin ákvörðun verið tekin um
það hvenær íslensku starfsmenn-
irnir tveir snúi aftur til El Salva-
dor en fyrirtækið mun halda sínu
striki við verkefnið þar í landi.
Jón Þór Ólafsson var borinn til
grafar í gær. - jse
Morðin í El Salvador:
Enginn hand-
tekinn enn