Fréttablaðið - 01.03.2006, Síða 8

Fréttablaðið - 01.03.2006, Síða 8
8 1. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR FASTEIGNAMAT Fasteignamat ríkis- ins hefur hlotið vottun frá Bresku staðlastofnuninni, BSI, sam- kvæmt BS 7799-2:2002 staðlinum um stjórnun upplýsingaöryggis. Undirbúningur vottunarinnar hefur staðið í þrjú ár og hefur IMG ráðgjöf aðstoðað Fasteigna- matið við undirbúning og innleið- ingu. Haukur Ingibergsson segir að vottun frá faggildum aðila sýni fram á að öryggi upplýsinga hjá Fasteignamati ríkisins sé sett á sama stall og öryggi upplýsinga hjá fjármálastofnunum og öðrum fyrirtækjum sem geri miklar kröfur til öryggis upplýsinga. „Vottunin sýnir fasteignaeig- endum, yfirvöldum og hagsmuna- aðilum að meðferð og varsla upp- lýsinga um fasteignir og þinglýst eignaréttindi er tryggð eins og best verður á kosið,“ segir hann. Fasteignamat ríkisins er eina opinbera stofnunin hér á landi sem hlotið hefur vottun sam- kvæmt BS 7799-2:2002 staðlinum en fimm íslensk fyrirtæki hafa hlotið þessa vottun. - jss VOTTUN Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, tekur á móti staðfestingar- skjali um vottunina frá Árna H. Kristinssyni framkvæmdastjóra BSI á Íslandi. Á myndinni eru einnig Jónas Sturla Sverrisson frá IMG ráðgjöf, Sólveig J. Guðmundsdóttir gæðastjóri, Margrét Hauksdóttir aðstoðarforstjóri og Sigurjón Friðjónsson forstöðumaður tölvudeildar Fasteignamats ríkisins. Undirbúningsvinna í þrjú ár skilar árangri: Fasteignamatið fær alþjóðlega vottun SVÍÞJÓÐ 20 ár voru í gær liðin frá morðinu á Olof Palme, fyrrver- andi forsætisráðherra Svíþjóðar, og minntust Svíar þess með margvíslegum hætti og fjöl- miðlar voru sneisafullir af nýjum upp- ljóstrunum um morðið, meðal annars birtist grein um að Christer Pett- ersson hefði myrt Palme. Palme er þjóðhetja og átrúnaðargoð í augum margra Svía. Þannig prýð- ir andlit hans stuttermaboli og lampa og hann hefur orðið inn- blástur að ljóðum, tónlist, kvik- myndum og bókmenntum. „Hug- rekki hans og alþjóðleg barátta er fólki enn innblástur,“ sagði Zany- ar Adami, ritstjóri í Svíþjóð. - ghs 20 ár frá Palme-morðinu: Palme orðinn átrúnaðargoð OLOF PALME Dáður áratugum eftir dauða sinn. VEISTU SVARIÐ 1Hvar er Byggðastofnun staðsett? 2 Hvað heitir höfundur bókarinnar Da Vinci lykillinn? 3 Hver er þjálfari íslenska karla-landsliðsins í knattspyrnu? SVÖR Á BLS. 38 KJARNORKUMÁL, AP Íranar munu halda áfram að auðga úran jafnvel þó þeir hefji samvinnu við Rússa um hið sama. Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra Írans, lýsti þessu yfir í samtali við japönsku fréttastofuna Kyodo í gær. Yfir- lýsingin vakti ugg í brjóstum margra, enda verða kjarnorkumál Írana sífellt flóknari og heldur Íransstjórn áfram að hunsa fyrir- spurnir alþjóðlegra eftirlits- manna. Í byrjun febrúar samþykkti Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA, að vísa umfjöllun um kjarn- orkuáætlun Írans til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna ótta við að Íranar ætli sér að framleiða kjarnorkuvopn, en gáfu þeim frest fram í mars til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Öryggisráðið getur ákvarðað refsiaðgerðir og við- skiptaþvinganir gagnvart landinu. Íranar hafa staðfastlega haldið því fram að þeir ætli kjarnorkuna eingöngu til raforkuframleiðslu og í kjölfar ákvörðunar IAEA skip- aði Mahmoud Ahmadinejad, for- seti Írans, kjarnorkustofnun landsins að hefja aftur auðgun úrans, en fyrr í vetur setti Írans- stjórn ný lög sem fyrirskipa bæði þá vinnslu sem og samvinnuslit við eftirlit SÞ með kjarnorku- stöðvum landsins, komi til kasta Öryggisráðsins. Þó var vonast til þess að sam- vinna milli Írans og Rússa um auðgun úrans myndi auðvelda alþjóðaeftirlit með kjarnorku- áætlun Írana og gæti afstýrt afskiptum Öryggisráðsins. Und- anfarið hafa þjóðirnar tvær fund- að um þau mál, en skiptar skoðan- ir eru um árangurinn. Írönsk yfirvöld hafa sagt fundina bera góðan árangur, en á mánudag lýstu Rússar því yfir að áður en til nokk- urrar samvinnu kæmi, yrðu Íran- ar að stöðva auðgun úrans á heima- velli. Hingað til hafa Íranar neitað því og staðfesta fréttirnar frá Japan þá stefnu þeirra. Í gær tilkynnti utanríkisráðu- neyti Rússlands að viðræður Írana og Rússa myndu halda áfram í Moskvu í dag, og gert er ráð fyrir því að þeir haldi áfram í næstu viku. Starfsmenn IAEA tilkynntu á mánudag að þeir telji lítinn sam- starfsvilja Íransstjórnar benda ískyggilega til þess að tilgangur þeirra sé ekki með öllu friðsam- legur. Á mánudag skilar IAEA skýrslu um kjarnorkuáætlun Írana og verður þá ákvörðun tekin um afskipti Öryggisráðsins af Íran. smk@frettabladid.is AÐ STÖRFUM Rússneskur kjarnorkusérfræðingur vinnur í Bushehr-kjarnorkuverinu í Íran á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Íranar segjast ekki ætla að hætta auðgun úrans Íranar halda því staðfastlega fram að þeir muni halda áfram auðgun úrans, þó að Rússar hafi neitað sam- vinnu við þá nema þeir hætti þeirri vinnslu á heimavelli. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur boðað fund um mál Írana á mánudag þar sem ákvörðun um afskipti Öryggisráðsins verður tekin. Endur og kráka rannsakaðar Óttast er að fuglaflensan hafi borist til Finnlands. Verið er að rannsaka 23 dauðar endur og dauða kráku sem fundust í Kotka í Suður-Finnlandi með tilliti til H5N1 vírussins. Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar búa sig undir að fuglaflensa geti breiðst út. FINNLAND ÓSLÓ, AP Norski olíusjóðurinn skilaði 11,1 prósents hagnaði af fjárfestingum sínum á árinu 2005. Heildareignir sjóðsins eru þar með komnar í 1.400 milljarða norskra króna, að því er norski seðlabankinn greindi frá í gær. Sú upphæð samsvarar tæplega 14.000 milljörðum íslenskra króna á núverandi gengi. „Hin góða ávöxtun er aðallega rakin til hækkunar á gengi hluta- bréfa,“ segir í tilkynningu frá bankanum. Noregur er þriðji stærsti olíu- útflytjandi heims á eftir Sádi- Arabíu og Rússlandi. ■ Norski olíusjóðurinn: Kominn í 14.000 milljarða H im in n o g h a f / SÍ A Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis 2006 Komin er fram ósk um hlutfallskosningu til stjórnarkjörs á aðalfundinum. Framboðslistum skal skilað til stjórnar fyrir kl. 17.00 föstudaginn 3. mars á skrifstofu sparisjóðsins, Ármúla 13a. Framboðslistum skulu fylgja meðmæli fimm stofnfjáreigenda og samþykki frambjóðenda. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað í fundarbyrjun. Reykjavík 1. mars 2006 Sparisjóðsstjórnin. Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldinn á Nordica-hóteli við Suðurlandsbraut í Reykjavík, mánudaginn 6. mars 2006 og hefst hann kl. 16.30. DÓMSMÁL Stefnur olíufélaganna þriggja Olís, Essó og Skeljungs gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu frá því í júlílok í fyrra hafa verið sameinaðar í eina fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur. Olíufélögin vilja að úrskurður samkeppnisyfirvalda sem liggur fyrir áfrýjunarnefnd verði felld- ur úr gildi vegna formgalla á rannsókn þeirra. Þau gera vara- kröfu um að sektin verði felld niður, því brotin hafi verið fyrnd. Verði ekki fallist á þau sjónarmið í héraði gera þau þrautakröfu um að 1,5 milljarða sektin verði lækk- uð þar sem félögin þrjú hafi ekki haft eins mikinn ávinning af sam- ráðinu og samkeppnisyfirvöld hafa reiknað út. Gísli Baldur Garðarsson, lög- maður Olís, segir samkeppnisyf- irvöld haf rekið málið sem eitt á hendur félögunum og því ákveðið að þau gerðu slíkt hið sama: „Allt annað yrði margföldun á því verki sem þarf að vinna.“ Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið. Heimir Örn Herbertsson, lög- maður Samkeppniseftirlitsins og íslenska ríkisins, segir næstu skref málsins að sérfræðingar sem olíufélögin réðu skili niður- stöðum sínum um ávinning félag- anna af samráðinu. „Ekki er hægt að taka ákvörðun um hvernig málin þróast fyrr en mat sérfræð- inganna liggur fyrir.“ - gag OLÍUFÉLÖGIN SNÚA VÖRN Í SÓKN Heimir Örn Herbertsson, lögmaður Samkeppn- iseftirlitsins, horfir hér á þrjá af fimm lögmönnum olíufélaganna sem mættu fyrir héraðsdóm í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Beðið mats sérfræðinga á tjóni af olíusamráði Essó, Olís og Skeljungs: Stefnurnar sameinaðar í eina

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.