Fréttablaðið - 01.03.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 01.03.2006, Síða 16
 1. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR16 fréttir og fróðleikur > Heildarþykkt ósonlagsins yfir Reykjavík í febrúar Í dobsoneiningum. Ein dobsoneining er 0,001cm ósons, miðað við loftkennt ástand, einnar loftþyngdarþrýsting og 0 ºC hita. Svona erum við SMITLEIÐIR VEIRUNNAR Fuglaflensu- veiran lifir í görnum andfugla, þaðan sem hún getur borist í hænsn og úr hænsnunum í fólk og aðrar skepnur sem komast í snertingu við sýkta fugla. Stökkbreytist hún, eins og heilbrigð- isyfirvöld telja líklegt, getur hún tekið að berast frá manni til manns líkt og spænska veikin gerði árið 1918. Enn sem komið er verður fólk að hafa komist í snertingu við dauða fugla til að smitast. 36 6 33 3 27 8 2005 2000 1991 D ob so ne in in ga r 35 9 1995 Heimild: Hagstofa Íslands Starfshópur Landbúnaðar- stofnunar um viðbrögð við fuglaflensu ákvað að hækka ekki áhættumat, þótt grun- ur leiki á að tvær skúfendur hafi drepist úr veikinni í Svíþjóð. Veiran hefur enn ekki greinst í sýnum í Bret- landi. Sóttvarnarlæknir segir Landlæknisembættið ekki grípa til sérstakra viðbragða. Áhættumati vegna fuglaflensu verður ekki breytt, þrátt fyrir grun um að tveir fuglar hafi drepist af hennar völdum í Sví- þjóð. Fuglaflensa af H5 stofnin- um fannst í tveimur skúföndum við Oskarhamn í Svíþjóð í gær. Sýni úr fuglunum hafa verið send til rannsóknarstofu á Eng- landi og er búist við endanlegri niðurstöðu um hvort þær hafi verið smitaðar af H5N1 stofnin- um í næstu viku. Að breyta ekki áhættumatinu var niðurstaða starfshóps Land- búnaðarstofnunar um viðbrögð við fuglaflensu, að sögn Jerle Reiersen dýralæknis alifugla- sjúkdóma. Hann sat fund með fuglafræðingum Náttúrufræði - stofn unar áður en ákvörðunin var tekin, í ljósi síðustu viðburða í gær. „Skúfendur, eins og þær sem fundust dauðar, halda til í suð- austurhluta Svíþjóðar. Þær eru ekki líklegar til að koma hingað til lands. Því sjáum við ekki ástæðu til þess að færa okkur upp í áhættustig II enn sem komið er,“ segir Jarle. „Ef þetta hefði komið upp vestar í Skandin- víu, til dæmis í vesturhluta Nor- egs þá hefði málið horft allt öðru- vísi við. Þá skiptir máli við gerð áhættumats hvaða fuglategundir er um að ræða. Matið sem við gerðum var meðal annars byggt á að um skúfendur væri að ræða.“ Engin flensa í Bretlandi Jarle kveðst hafa verið í sam- bandi við Bretland í gærmorgun og þeir hafi tekið mikið af sýnum á undanförnum vikum og mánuð- um. Ekki eitt einasta sýni hefði greinst með flensuveiruna H5N1. Bretar hafi ekki hækkað viðbún- aðarstig sitt. „Við erum búnir að senda út tilmæli um það sem fólk þurfi að huga að. Þegar við færum okkur upp á áhættustig II þá verða til- mælin að tilskipun í reglugerðar- formi þar sem þess er krafist að allir alifuglar verði haldnir innan dyra.“ Spurður um hvort það dugi með tilliti til þess að alifuglar hafi smitast í Frakklandi, þrátt fyrir tilskipun þess efnis að halda þeim inni, segir Jarle að það taki ákveðinn tíma fyrir fólk að koma fuglunum inn. Svo séu alltaf ein- hverjir sem framfylgi ekki regl- um, sama hvernig sem þær séu útbúnar. Á fundi dýralækna frá 50 lönd- um sem funduðu í París í gær kom fram að ekkert land getur talið sig öruggt gegn fuglaflensu. Jafnframt telja dýralæknarnir að flensan muni halda áfram að dreifast meðal villtra fugla og alifugla. Heldur sínu striki Ekki er um sérstök viðbrögð að ræða að hálfu Landlæknisemb- ættisins þótt grunur leiki á að fuglaflensan hafi stungið sér niður í Svíþjóð, að sögn Haraldar Briem sóttvarnarlæknis. „Við lítum á þetta sem sjúk- dóm í dýrum, sem í algjörum und- antekningum getur sýkt menn“ segir Haraldur. „Til þess hefur þurft náin samskipti við alifugla. Við höfum engin dæmi þess að fólk hafi smitast af villtum fugl- um. Almenningi stafar ekki nein hætta af þessu hvort sem það er í Svíþjóð eða Tyrklandi. Okkar almennu ráðleggingar til ferða- manna ganga ekki út á að þeir geti ekki ferðast til landa þar sem flensan er í gangi. Okkar ráðlegg- ingar eru þær að ferðafólk sé helst ekki innan um fugla, forðist fugladrit og svo framvegis. Þetta myndi gilda hér á landi ef flensan bærist hingað.“ Haraldur bendir á að þeir sem starfi við kjúklingarækt í löndum þar sem flensan hefur látið á sér kræla hafi ekki smitast, heldur börn og ungt fólk sem hefði verið að handfjatla fiðurfénað sem gengi út og inn í híbýli eða væri haldið í bakgörðum. „Þetta berst því ekki auðveld- lega frá fugli til manns og alls ekki frá manni til manns.“ H5N1 veirustofninn fannst í dauðum ketti á á Rügen eyju í Þýskalandi. Þetta er í fyrsta sinn sem flensan finnst þar í landi í öðru dýri en fuglum. Á eyjunni hafa um 100 fuglshræ fundist sýkt af veirunni. Eins fannst H5N1 veiruafbrigðið í Bæjara- landi í Þýskalandi, og verið var að kanna hvort H5 veira sem fannst í alifuglum í Rúmeníu væri af H5N1 afbrigðinu. Enn er verið að leita fugla- flensu í Finnlandi, en engar nið- urstöður höfðu borist í gær. Yfir 90 manns hafa farist úr fuglaflensu síðan árið 2003 sam- kvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, og óttast yfirvöld að veiran geti stökkbreyst svo hún smitist á milli manna og geti þá valdið heimsfaraldri. Enn sem komið er virðist fólk þurfa að handfjatla sýkta fugla til að smitast. Áhættumat verður ekki hækkað FRÉTTASKÝRING JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR jss@frettabladid.is Áhættustig I: • Lítil hætta á að fuglaflensa berist til landsins. • Fuglaflensa (H5N1) hefur ekki greinst á Bretlandseyjum eða í öðrum nágrannaríkjum. Viðbrögð Tryggja að alifuglar hafi ekki aðgang að yfirborðsvatni. Ekki fóðra alifugla utandyra. Tryggja að ekkert í umhverfi alifuglabúa laði að villta fugla. Skerpa umgengnisreglur. Tryggja góðar meindýravarnir. Mikil hætta á að fuglaflensa berist til landsins. Áhættustig II • Fuglaflensa (H5N1) greinist á Bretlands- eyjum eða í öðrum nágrannaríkjum. • Fuglaflensa greinist í villtum fuglum hér á landi. Viðbrögð Til að forða því að smit berist inn á ali- fuglabú er lagt til að: Hýsa alla alifugla. Tryggja að fuglar sleppi ekki út úr húsum. Tryggja að ekkert í umhverfi alifuglabúa laði að villta fugla. Setja hatta á allar loftræstitúður. Setja fuglanet fyrir allar loftræstitúður, op og glugga. Öllum óviðkomandi verði bannaður aðgangur. Aðeins einn inngangur með fordyri verði í hverju eldishúsi. Hlífðarföt verði notuð fyrir nauðsynlega gesti. Þvottur og sótthreinsun handa verði í fordyri. Sótthreinsimottur eða -bakkar verði við inngang í fordyri. Rjúfa smitleiðir á milli dýrategunda. Tryggja góðar meindýravarnir. Tryggja góðar smitvarnir við vatnsból. Almennum hreinlætisreglum verði fram- fylgt. Tvö stig áhættumats FRÉTTASKÝRING SIGRÚN MARÍA KRISTINSD. smk@frettabladid.is Þótt heilir tveir áratugir séu liðnir frá því Olof Palme, þáverandi forsæt- isráðherra Svíþjóðar, var skotinn til bana á götu í Stokkhólmi er þetta umtalaðasta allra norrænna morðmála enn óupplýst. Alls kyns samsæris- kenningar lifa því góðu lífi og setja mark sitt á alla opinbera umræðu og stjórnmál í Svíþjóð. Hvað gerðist? Síðla kvölds þann 28. febrúar 1986 fóru Palme-hjónin í bíó í miðborg Stokkhólms. Er þau komu út úr bíóinu vatt sér að þeim maður sem því næst skaut Palme í bakið og hleypti af öðru skoti að eiginkonu hans, Lisbet, en lét sig svo hverfa út í nóttina. Vitað er að hann hljóp inn í húsasund þar hjá en þar sleppir líka sporinu. Lögregla leitar enn morð- ingjans, morðvopnsins og ástæðunnar fyrir morðinu. Verðlaunafé upp á andvirði rúmlega 400 milljóna króna er enn í boði fyrir þann sem veitt getur upplýsingar sem leitt geti til lausnar málsins. Hver er staða rannsóknarinnar? Vitað er að Palme var skotinn með stórri skammbyssu, með hlaupvídd- inni .357 magnum, sem er sjaldgæft vopn í Svíþjóð. Þó hefur morðvopn- ið aldrei fundist. Í sjónvarpsþætti um Palme-málið sem sýndur var á sænsku ríkissjónvarpsstöðinni SVT2 á sunnudag kemur fram að byssa af þessu tagi hafi verið gerð upp- tæk af lögreglu í íbúð fíkniefnasala skammt frá morðstaðnum, en þeir sem rannsökuðu Palme-morðið hefðu aldrei frétt af þessari byssu. Henni var eytt. Í þættinum er sú kenning rakin að Christer Pettersson, eini maðurinn sem ákærður hefur verið fyrir morðið en var sýknaður í hæstarétti vegna skorts á sönnunargögnum, hafi í reynd skotið Palme, en hann hafi farið mannavillt. Er enn unnið að rannsókninni? Yfir 500.000 skjöl tengd rannsókninni fylla heilu skjalageymslurnar í höfuðstöðvum sænsku lögreglunnar í Stokkhólmi. Unnið hefur verið úr yfir 20.000 ábendingum sem lögreglunni hafa borist vegna málsins. Enn eru fjórtán lögreglumenn að vinna að málinu, ekki þó í fullu starfi. FBL-GREINING: RANNSÓKNIN Á PALME-MORÐINU Böndin beinast enn að Pettersson Laminn ítrekað með felgulykli í hefndarskyni MÁL FREYGARÐS JÓHANNSSONAR TEKIÐ FYRIR Í HÉRAÐSDÓMI „DJÖFULL Í MANNSMYND,“ SEGIR FYRRVERANDI FÓSTURDÓTTIR 2x15 28.2.2006 21:15 Page 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.