Fréttablaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Kristján Rúnarsson er að læra
hótelstjórnun í Neuchatel í Sviss en er
heima á Íslandi núna þar sem hann er í
starfsnámi á þessari önn.
Hótelstjórnun er þriggja ára nám til B.A.
prófs og annirnar skiptast í bóklegt nám og
starfsnám. „Þessa önn erum við í starfs-
námi en svo fer ég aftur í skólann í haust,“
segir Kristján.
Kristján segist hafa stefnt á þetta nám
lengi. „Ég er búinn að vera í þessum bransa
síðastliðin tíu ár. Ég hef unnið sem þjónn og
í gestamóttökum á hótelum og þess háttar.
Ég hef alltaf haft áhuga á því að læra þetta
og ákvað bara að drífa mig.“
Kristján segir að ekki sé boðið upp á
sambærilegt nám hérna heima og því hafi
hann ákveðið að fara til Sviss. „Sviss er
þekkt fyrir góða hótelskóla og flestir hérna
heima sem vilja læra þetta virðast skoða
Sviss. Stúdentaferðir er umboðsaðilinn
fyrir þennan skóla og fleiri skóla þarna úti
og starfsfólkið þar benti mér á skólann.“
Kristján er mjög ánægður í skólanum.
„Það sem er langskemmtilegast er hvað
maður hittir mikið af ólíku fólki frá ýmsum
þjóðlöndum. Það er fólk í skólanum frá þrjá-
tíu og fjórum þjóðlöndum og ég á orðið vini
úti um allan heim.“
Kristján segir að krakkarnir sem eru
með honum í skólanum séu núna í starfs-
námi í ýmsum löndum. „Það er ein íslensk
vinkona mín núna í Taílandi og svo er einn
íslenskur strákur í Frakklandi og annar í
London. Ég fór sjálfur til Taílands í starfs-
nám en aðstaðan sem var boðið upp á þar
var ekki ásættanleg svo ég ákvað að koma
heim.“
Kristján segir að það sé venjulega ekki
erfitt að komast í starfsnám á hótelum.
„Flestir hótelstjórar hafa staðið í okkar
sporum og skilja mikilvægi starfsnámsins
og oft er nemendunum boðið starf að námi
loknu í kjölfar þess.“ emilia@frettabladid.is
Á orðið fjölda vina
úti um allan heim
Kristján Rúnarsson lærir hótelstjórnun í Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagur 1. mars,
60. dagur ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.36 13.40 18.46
Akureyri 8.25 13.25 18.26
Utsala´
Neonlljós, sportstýri,
græjur, bílhátalarar,
bassabox o. fl. Neonljós, Xenon perur,gírhnúar ofl.
Bíltæki, bassabox ofl.
Sportstýri, petalar, felgur ofl.
Full búð af aukahlutum
allt á útsölu
Opið virka daga 8-18
30%
40%
20%
AGMótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is
´
MENTOR-VERKEFNIÐ
Katrín Dagmar Jónsdóttir og Elínborg
Lorens eru þátttakendur í Mentor-
verkefninu Vináttu. Þær hafa tekið
sér ýmislegt fyrir hendur í vetur og
Fréttablaðið fylgist með því af áhuga.
NÁM 6
LISTAVEFUR
FYRIR BÖRN
Börn hafa mörg gaman
að því að lita og mála.
Listavefurinn er sniðug
síða fyrir þau.
BÖRN 5
Alþjóðlega bílasýningin í Genf
hefst á morgun. Hægt er að
nálgast frekari upplýsingar og
skoða myndir á heimasíðu sýn-
ingarinnar, www.salon-auto.ch.
Flugferðir á sérstöku tilboði má
nú fá hjá Iceland Express í tilefni
af afmæli flugfélagsins. Um er að
ræða nokkrar vel valdar ferðir og
eins og áður gildir fyrstir
koma, fyrstir fá.
Krakkar á öllum
aldri hljóta að fagna
deginum í dag, sjálfum
öskudeginum. Þeir
mega þó
ekki
gleyma
að borða
yfir sig af
nammi og
muna að
bursta vel
tennurnar í
lok dagsins.
Doktorsvörn
Hákons Hrafns Sigurðssonar í
lyfjafræði verður klukkan 13 í
hátíðarsal Háskóla Íslands í dag.
Doktorsritgerð Hákons nefnist
Lyfjagjöf í auga og slímhimnuvið-
loðandi fjölliður.
ALLT HITT
[FERÐIR, BÖRN,
BÍLAR OG NÁM]