Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 22
[ ]
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Sjúkrabílar þurfa að komast greiðlega um göturnar þegar
slys ber að höndum. Það er mikilvægt að ökumenn annarra
bifreiða séu meðvitaðir um það og hleypi þeim framhjá.
Margir kvíða því að fara með
bílinn í skoðun. Það virðist
alltaf vera eitthvað að. Bilað
ljós, lélegar bremsur eða dautt
slag í stýrinu. En hverjar eru
algengustu bilanirnar sem
hindra að bílar standist skoð-
un og hvað geta bílaeigendur
gert til að tryggja sér nýjan
miða á bílinn?
Jón Hjalti Ásmundsson er tækni-
stjóri ökutækjasviðs hjá Frum-
herja bifreiðaskoðun. Hann segir
að það sé algengt vandamál að
ljósabúnaður sé ekki í lagi. „Algeng-
asta athugasemdin sem fólk fær
frá okkur er bilun í númeraljósi.
Þar á eftir fylgja stöðuljós, helst
afturljós, bremsuljós og jafnvel
þokuljós,“ segir Jón.
Þegar um smávægileg vanda-
mál er að ræða fær ökutæki fyrstu
dæmingu. Þá þarf ekki að koma
aftur í skoðun heldur að laga vanda-
málið. Þetta á oft við um ljósa-
vandamál. Það er tiltölulega auð-
velt að skipta um ónýta peru. Þær
fást á flestum bensínstöðvum og
starfsfólk þar er yfirleitt liðlegt og
tilbúið að hjálpa ökumönnum með
peruskiptingar.
Sjötta algengasta skoðunarat-
hugasemdin snýr að dekkjabúnaði.
Það segir sig sjálft að gatslitin og
glerhál dekk standast aldrei skoð-
un og því þarf að sjá til þess að
dekkin séu í lagi. Einnig er algengt
að pústkerfi standist ekki kröfur
en ökumenn ættu ekki að vera í
vandræðum með að meta ástand
dekkja og pústkerfis og sjá hvort
lagfæringa sé þörf.
„Svo eru algeng vandamál sem
fólk er að fá aðra dæmingu á og
endurkomu,“ segir Jón. „Þetta eru
vandamál við t.d. stýrisbúnað,
spindilkúlur og bremsubúnað.“ Það
eru fáir sem ráða við að gera við
þessa hluti heima við og því mælir
Jón með að fólk leiti sér aðstoðar
fagmanna í þessum tilvikum.
Fyrir nokkrum árum tíðkaðist
það að fara með ökutæki í skoðun
hjá bílaumboðunum áður en opin-
ber skoðun fór fram. Jón segir hins
vegar að þessi siður sé á undan-
haldi. „Fólk vill heldur koma og
láta skoða bílinn og fá nákvæmar
upplýsingar um það sem þarf að
laga. Það getur verið pirrandi að fá
athugasemd á smáatriði sem bíla-
umboðinu yfirsást,“ segir Jón
Það er sjaldgæft að ökutæki fái
á sig þriðju dæmingu sem sjálf-
krafa hefur í för með sér aksturs-
bann. Þó eru alltaf einhverjir sem
freista gæfunnar í bjartsýniskasti
og mæta í skoðun á bremsulausum
eða númeralausum bílum. Þeim
ökumönnum er lítið hægt að ráð-
leggja annað en að leita sér fag-
legrar aðstoðar, og þá er ekki átt
við á sviði bílaviðgerða.
tryggvi@frettabladid.is
Biluð ljós algengasta
orsök athugasemda
Svanberg Sigurgeirsson, starfsmaður Frumherja, demparaprófar bíl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Suzuki SX4 er samstarfs-
verkefni Suzuki og Fiat, vélin
kemur frá Fiat en grindin og
yfirvagninn frá Suzuki. Bíllinn
verður einnig seldur af Fiat
undir nafninu Fiat Sedici.
Suzuki SX4 er háfættur jeppling-
ur ætlaður fyrir Evrópumarkað.
Bíllinn er búinn drifbúnaði sem
leifir stöðugan akstur á fjór-
hjóladrifi. Tölva sér um að skipta
á milli framhjóladrifs, sítengds
fjórhjóladrifs og mismunadrifs
milli fram- og afturhjóla. Lægsti
punktur bílsins er 19 cm.
Suzuki SX4 er framleiddur í
Ungverjalandi og er áætlað að
framleiða 60.000 bíla, 40.000 sem
seldir verða af Suzuki og 20.000
sem seldir verða af Fiat.
Um hönnun bílsins sá Giorg-
etto Giugiaro‘s Italdesign hönn-
unarstofan. Þess má geta að
grindin og yfirvagninn eru þróuð
út frá nýjustu gerð Suzuki Swift
sem var valinn bíll ársins á
Íslandi 2006 af Bandalagi bíla-
blaðamanna. ■
Hiroshi Tsuda, forstjóri Suzuki, og Janos
Koka, efnahagsráðherra Ungverjalands,
skoða hinn nýja Suzuki SX4. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Suzuki SX4 kynnt-
ur í Ungverjalandi