Fréttablaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 25
[ ]Börn geta lært allt mögulegt fái þau góða kennslu. Ýmis námskeið eru í boði fyrir börn og foreldrar geta auðveldlega fundið eitthvað sem hentar börnunum þeirra.
Hágæða húð- og hárvörur fyrir börn
Börn og auglýsingar er yfir-
skrift ráðstefnu sem haldin er
á Grand hóteli í dag og er opin
öllum.
„Það er nauðsynin sem rekur
okkur út í það að halda þessa ráð-
stefnu,“ segir Elín Thorarensen,
framkvæmdastjóri Heimilis og
skóla, en samtökin eru meðal
þeirra sem efna til ráðstefnunnar.
Hún segir þau hafa fengið margar
ábendingar um að auglýsingum
sé beint að börnum í vaxandi
mæli. „Markaðssetning sem beint
er gegn börnum er mun bein-
skeyttari en hún var. Börn eru
orðinn greinilegur markhópur og
fólki finnst tímabært að staldra
við og skoða hvað er að gerast.
Sumir telja að hér á landi gangi
markaðurinn lengra í því að höfða
til barna en hann gerir í nágranna-
löndunum og lagabókstafurinn
sem um þessi mál fjallar sé teygj-
anlegri hér.“ Elín segir líka óbein-
ar auglýsingar sem sýna ákveðið
gildismat verða til umræðu.
„Þessar óbeinu auglýsingar eru
oft í sjónvarpsþáttum og snerta
útlit, klæðaburð og kynhegðun
svo dæmi sé tekið. Áreiti af þess-
um toga hefur aukist mikið und-
anfarið og það hefur áhrif,“ segir
hún.
Meðal fyrirlesara á ráðstefn-
unni eru Ingibjörg Rafnar,
umboðsmaður barna, Gísli
Tryggvason, talsmaður neytenda,
Dr. Baldur Kristjánsson sálfræð-
ingur, Páll Þórhallsson lögfræð-
ingur í forsætisráðuneytinu og
Halla Helgadóttir hönnuður á
Fíton auglýsingastofu. „Við fjöll-
um um hver staðan er, hvað fræði-
menn og markaðsmenn segja um
auglýsingar og börn og hvernig
lögin taka á þeim málum,“ segir
Elín og kveðst vona að ráðstefnan
verði bara fyrsta skrefið í lengra
ferli sem leiði til góðs.
„Eflaust er umræðan þörf en
það er alveg ljóst að þessi ráð-
stefna er sett upp til höfuðs okkur
markaðsfólki,“ segir Páll Líndal
formaður Samtaka auglýsenda
sem verður meðal ræðumanna á
þinginu. Hann kveðst fyrst og
fremst höfða til ábyrgðar for-
eldra því það séu þeir sem stjórni
því hvað börnin horfi á. Reyndar
á hann sjálfur 6 ára dreng sem
hann situr stundum hjá á morgn-
ana og horfir á barnaefni með.
Sumt af því efni telur hann mun
óhollara en auglýsingar. „Boð og
bönn eru erfið í þessu efni og hvar
á að draga mörkin? Væru sjón-
varpsstöðvarnar með barnaefni á
morgnana ef þær mættu ekki aug-
lýsa þar líka?“ spyr Páll. Hann
viðurkennir að börn séu mikil-
vægur markhópur enda séu þau
framtíðarneytendur.
Aðgangur er ókeypis á ráð-
stefnuna og stendur hún frá
klukkan 12.30-16.45 en upplýsing-
ar og skráning er hjá Gestamót-
tökunni ehf www.gestamottakan.
is og í síma 551 1730.
Auglýsingum beint að
börnum í vaxandi mæli
Elín Thorarensen framkvæmdastjóri Heim-
ilis og skóla mun taka þátt í pallborðsum-
ræðum.
Myndu sjónvarpsstöðvarnar vera með barnaefni á morgnana ef þær mættu ekki auglýsa
þar líka? spyr Páll Líndal formaður samtaka auglýsenda.
SKEIFAN 8 • Sími 568 2200 • Fax 568 2203
SMÁRALIND • Sími 534 2200 • www.babysam.is
Skeifan opið laugardag 10-16
Smáralind opið laugardag 11-18
Smáralind opið sunnudag 13-18
Verið velkomin
í krúttlegustu
barnabúðina
í bænum
Börn geta lært um liti og form
á netinu.
Listavefur krakka er sniðug vef-
síða þar sem börn geta lært ýmis-
legt um list og listamenn. Á lista-
vefnum eru margs konar verkefni
og þrautir sem auka skilning barn-
anna á formum, litum og tækni.
Þar má einnig finna fjölmörg þekkt
verk íslenskra myndlistarmanna
og ítarlegan fróðleik um þá.
Slóðin á listavefinn er www.
namsgagnastofnun.is/isllistvefur/
og ættu flest börn sem hafa gaman
af því að teikna og leika sér með
liti og form að hafa gaman af því að
skoða síðuna.
Listavefur
fyrir börn
Flest börn hafa gaman af því að teikna.