Fréttablaðið - 01.03.2006, Síða 26
[ ]
“Ekki eingöngu les ég hraðar. Ég les með
...margfalt meiri skilning.“
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“...held ég sé á góðri leið með að ná inntöku-
prófinu í læknadeild í vor. Takk fyrir mig.“
Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum því stúdent.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, áhugavert, krefjandi,
skemmtilegt, mjög gott, þægilegt, lipurt, skipulagning, einbeiting, jákvæðni,
mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
...næsta námskeið 13. mars
Akureyri - 16. mars - þriggja vikna hraðnámskeið
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
Skólatöskur eiga það til að fyllast af einhverju dóti sem þarf
ekki að vera í þeim. Það er ágætt að taka annað slagið til í töskun-
um og losa sig við það sem hægt er.
NÁMSKEIÐ UM FÉLAGAFORM, SKATT-
LAGNINGU FYRIRTÆKJA OG FRÁ-
DRÁTTARBÆRAN REKSTRARKOSTNAÐ
HEFJAST 28. FEBRÚAR.
Það er Anna Linda Bjarnadóttir
héraðsdómslögmaður sem leiðbeinir
á námskeiðunum sem
skiptast í þrjá hluta
en hægt er að velja
á milli morgunnám-
skeiðs og síðsdeg-
isnámskeiðs. Hún
kveðst taka fyrir efni
sem fólk með lítil og
meðalstór fyrirtæki
þurfi að kunna skil
á. Meðal þess er,
auk félagaforma og
skattlagningar fyrir-
tækja, útgáfa reikninga og réttarstaða
fyrirtækja gagnvart skattyfirvöldum.
Jafnframt er farið vel yfir ábyrgð
stjórnenda í einkahlutafélögum og
hlutafélögum. Hún kveðst tengja efnið
raunveruleikanum með raunhæfum
verkefnum og þannig gera efnið líf-
legra og skiljanlegra en ella. Síðdegis-
námskeiðið verður í Húsi iðnaðarins,
en morgunnámskeiðið í Húsi verslun-
arinnar, 2. hæð. Síðdegisnámskeiðið
hefst 28. febrúar og stendur frá 17-20
og morgunnámskeiðið hefst 2. mars
og er milli 8.30 og 11.30. Boðið verður
upp á léttan málsverð í hléum. Nánari
upplýsingar eru á www.isjuris.is
Lögleg staða
fyrirtækja
Anna Linda
tengir efnið
dæmum úr
daglega lífinu.
Staðarverðir sjá um móttöku gesta á
söfnum og sýningum sem byggjast
á sögu og menningu þjóðarinnar
til dæmis í friðuðum húsum og
víðar þar sem minjar eru til sýnis.
Markmiðið með námskeiðinu er
að gera nemendur sjálfbjarga í
öflun upplýsinga um minjavernd
í víðasta skilningi og hæfari til að
kynna söguna. Margar stofnanir
standa að náminu sem er bæði
bóklegt og verklegt og byggist meðal
annars á vettvangsferðum. Helstu
áhersluþættir í náminu eru Lesið í
landið, Menningararfur og miðlun,
Ferðamennska og móttaka gesta og
Minjavernd. Nokkra þætti er hægt að
taka í fjarnámi á tímabilinu 6. mars
til 24. apríl en aðrir þættir verða
teknir í tveggja daga lotu 10. og 11.
mars. Verkþjálfun fer síðan fram á
völdum stöðum og þar verður loka-
verkefni unnið. Nánari upplýsingar
eru á www.holar.is
Læra að miðla menn-
ingarsögunni
NÁMSKEIÐ FYRIR STAÐARVERÐI VERÐUR HALDIÐ Á HÓLUM Á NÆSTUNNI.
Katrín Dagmar Jónsdóttir og
Elínborg Lorens eru þátttakend-
ur í Mentor-verkefninu vináttu.
Fréttablaðið hefur fylgst með
því sem þær hafa tekið sér
fyrir hendur í vetur en það er
ýmislegt.
Kallý og Ella eru búnar að gera
ýmislegt skemmtilegt saman síð-
ustu vikur. Þær fóru meðal annars í
óvissuferð í Keiluhöllina í Öskjuhlíð
ásamt öðrum mentorum og börnum
í janúar. „Það var rosalega gaman,“
segir Kallý. Hún segir að þetta hafi
verið í fyrsta skipti í vetur sem allur
hópurinn gerði eitthvað saman. „Ég
vissi ekki að það væru svona margir
í verkefninu en þetta voru öruggleg
milli hundrað og tvöhundruð
manns,“ segir Kallý. „Það var mjög
gaman að sjá alla hina og það voru
tveir þarna sem eru með mér í
bekk,“ segir Ella.
Stelpurnar ákváðu síðan að fara
bara tvær saman í keilu stuttu eftir
að þær fóru með hópnum. „Þá spil-
uðum við tvo leiki en þegar við
fórum með hinum spiluðum við bara
einn,“ segir Ella.
„Við fórum svo á sleða í Ártúns-
brekkunni,“ segir Kallý og bætir því
við að hún hafi mætt galvösk í
skræpóttum snjógalla. „Hún fór
ekkert smá hratt og einu sinni datt
hún og fór svona í hring en ég ætlaði
fyrst ekkert að þora niður,“ segir
Ella. „Þetta var alveg geðveikt og ég
hef ekki skemmt mér svona síðan ég
var bara pínulítil,“ segir Kallý .
Stelpurnar fóru líka saman á
Idol-keppnina í Smáralind þann 10.
febrúar. „Það var rosalega gaman,“
segir Kallý og Ella tekur undir það.
Kallý og Ella segjast alltaf vera
að verða betri vinkonur en þær náðu
strax mjög vel saman. „Við erum
farnar að hugsa svo svipað að við
gáfum hvorri annarri eins jólagjaf-
ir,“ segir Kallý. „Okkur langar báðar
í hund svo við gáfum hvorri annarri
svona hundabangsa,“ segir Ella.
Það er ýmislegt á dagskrá hjá
Ellu og Kallý á næstunni og það
verður örugglega gaman að fylgjast
með þeim áfram.
emilia@frettabladid.is
Óvissuferð í Öskjuhlíð
með öðrum mentorum
Kallý og Ella skemmtu sér vel í keilu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ella er mjög góð í keilu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Katrín Dagmar Jónsdóttir og Elínborg
Lórens. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Safnasvæðið á Akranesi laðar til
sín bæði þá yngri og hina eldri.
ENSKUNÁM Í ENGLANDI
fyrir 12-16 ára
Hvað segja foreldrar? “Okkur foreldrum langar að þakka þér
og þínu fólki kærlega fyrir þessa frábæru ferð til Broadstairs.
Hún sagði okkur að það hafi verið "allt gaman" kennslan,
kennara, farastjórar, frjálsi tíminn á daginn og á kvöldin. Ég tala nú ekki um þá frábæru
krakka sem hún kynntist. Að þau hafi allir verið svo góðir vinir. Ég held að hún hafi
alveg viljað vera í skólanum í mánuð. Hún var að auki mjög ánægð með þá fjölskyldu
sem hún dvaldist hjá. Að vísu fannst henni "tedrykkjan" með morgunmatnum og
kvöldmaturinn ekki sérlega góð. Hún hafði nú bara gott af kynnast annari
matarmenningu. Við erum þakklát að hún fékk tækifæri á að kynnast betur enskri
tungu (okkur finnst hún núna töluvert öruggari í talmálinu og lesskilningnum), annarri
menningu og fá að vera svolítið sjálfstæð fjarri foreldrum sínum.”
Skráning er hafin í vinsælu námsferðina
fyrir 12-16 ára þann 30.6-19.8.
Uppl. og skráning í síma 8917576 og
erlaara@simnet.is