Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 29

Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 29
NBA Meðalliðið metið á 21 milljarð 12-13 Menning Forsenda sjálf- stæðrar tilvistar 12 ESB Tækniflaggskipi ýtt úr vör 6 SS þrefaldar | Hagnaður SS var 353 milljónir króna á síðasta ári sem er 238 prósenta meiri hagn- aður en árið 2004. Töluverður hagnaður varð af sölu hlutabréfa. Staðfestir mat | Matsfyrirtækið Fitch staðfesti óbreytt lánshæf- ismat allra íslensku bankanna í kjölfar fréttar um að fyrirtækið breytti horfum á lánshæfismati ríkissjóðs. Færri lán | Útistandandi lán Íbúðalánasjóðs drógust saman um tæp 13 prósent frá 2004 til 2005, eða um 54 milljarða króna. Kaupa félög | Nýsir hefur til- kynnt um kaup á tveimur dönsk- um fasteignafélögum og Samson Partners um kaup á helmingshlut í öðru. Átta nýjar | Excel Airways, dótt- urfélag Avion Group, hefur geng- ið frá samningi um leigu á átta nýjum flugvélum sem verða allar leigðar til átta ára. Spákaupmenn seldu | Nokkuð var um að spákaupmenn og litl- ir fjárfestar seldu bréf sín eftir snarpa lækkun á markaði eftir að matsfyrirtækið Fitch breytti lánshæfismati ríkissjóðs. Gera tilboð | Öflun, stærsti hlut- hafinn í norska upplýsingafyrir- tækinu Office Line, hefur gert öðrum hluthöfum tilboð í hluti þeirra. Mikil eftirspurn | Á mánudag fór fram fyrsta útboð ríkisvíxla samkvæmt nýju fyrirkomulagi og bárust tilboð upp á alls 16 millj- arða króna. Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 1. mars 2006 – 8. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 F R É T T I R V I K U N N A R Sérfræðingar telja að markaður- inn hafi brugðist óþægilega hart við skýrslu Fitch í byrjun síðustu viku þar sem breytt var horfum á lánshæfis- mati ríkisins. Í gærmorgun styrktist gengi krónunnar í kjölfar útgáfu Rabobank á svokölluðum krónubréfum að andvirði nær fimm milljarða króna. Útgáfan er til eins árs og virðist Rabobank því lítið gefa fyrir spár um veik- ingu krónunnar. Í síðustu viku veiktist krónan hratt eftir útgáfu skýrslu Fitch og fjárfestar innleystu hagnað til að bregðast við gengistapi. Óróaskotið sem varð í byrjun síðustu viku er gengið til baka að mestu. Sjá síðu 10 / - óká Gengisórói að ganga niður G E N G I S V Í S I T A L A K R Ó N U N N A R 116 114 112 110 108 106 104 102 20 21 22 23 24 25 26 27 Febrúar 2006 Sjá má hvernig krónan veiktist (vísitalan hækk- aði) í byrjun síðustu viku. Ú R V A L S V Í S I T A L A K A U P H A L L A R Í S L A N D S 6900 6800 6700 6600 6500 6400 6300 6200 20 21 22 23 24 25 26 27 Febrúar 2006 Þróunin 20.-27. febrúar 2006 Gott til síðasta dropa Hafliði Helgason skrifar Exista, fjárfestingarfélag í eigu bræðranna í Bakkavör, KB banka og nokkurra sparisjóða, skilaði samkvæmt heimildum Markaðarins 50,3 milljörðum króna í hagnað í fyrra. Þetta er mesti hagnaður íslensks félags á einu ári, en fyrra metið átti KB banki sem hagnaðist um 49,3 milljarða í fyrra. Helstu eignir Exista eru ríflega fimmtungs hlutur í KB banka og tæplega þrjátíu prósenta hlutur í Bakkavör. Bæði þessi félög eru skráð á markað og verulegur gengishagnaður var af eign Exista í þeim á síðasta ári. Eignir Exista námu 162 milljörðum króna og nam eigið fé 96 milljörðum króna í árslok. Það er meira en eigið fé Íslandsbanka í lok árs. Hlutfall eigin fjár er því um 60 prósent sem gefur rými fyrir talsverðar fjárfestingar til viðbótar. Exista leiddi hóp fjárfesta í kaupum á hlut ríkis- ins í Símanum og á 43 prósenta hlut í fyrirtækinu. Sá hlutur er samkvæmt heimildum færður á kaup- virði og eins mun um 19 prósenta hlut í VÍS. Telja má öruggt að í þessum eignum felist dulinn hagn- aður, en VÍS hefur eflst til muna frá kaupunum og er gjörbreytt félag að stærð og styrk. Auk þess á félagið 22 prósenta hlut í Medcare Flögu, en það félag hefur gengið í gegnum mikla endurskipulagningu að undanförnu. Exista er, auk þess að vera kjölfestufjárfestir fyrrgreindra félaga, með umtalsverðar fjárhæðir á veltubók til stöðutöku og fjárfestinga til skemmri tíma. Félagið keypti nýverið tíu prósenta hlut í stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins, Kögun. Síminn hafði skömmu áður keypt 27 prósenta hlut í Kögun. Enn á eftir að koma í ljós hvert stefnt er með þeirri fjárfestingu, en líklegt er að Síminn muni stjórna vegferð Kögunar í framtíðinni. Skráðar eignir Exista hafa hækkað verulega frá áramótum og má gera ráð fyrir að eigið fé hafi aukist um 20 milljarða króna og nemi því um 116 milljörðum króna. Félagið býr því yfir talsverðri ónýttri getu til frekari fjárfestinga. Exista með Íslandsmet í hagnaði á einu ári Hagnaður Exista nam 50,3 milljörðum króna í fyrra. Eignarhlutir í Símanum og VÍS eru færðir á kaupverði og því má gera ráð fyrir duldum hagnaði í uppgjörinu. Fjárfestar undir forystu Baugs leggja nú lokahönd á að greiða skammtímafjármögnun vegna kaupa á Icelandkeðjunni sem var hluti af kaupum á Big Food Group, samkvæmt heimildum Markaðarins. Landsbankinn fjármagnaði kaupin, en fjárfestarnir munu auk þess greiða sér til baka upp- haflega fjárfestingu með vöxt- um sem nemur 78 milljónum punda eða rúmum níu milljörð- um. Algengt er að slíkur árang- ur náist á tveimur til þremur árum við skuldsettar yfirtökur af þessu tagi, en innan við ár er liðið frá því að kaupin gengu í gegn. Baugur, Milestone og Pálmi Haraldsson stóðu að kaupum á Iceland og höfðu með sér stofn- anda félagsins Malcolm Walker. Walker hafði verið gagnrýninn á þróun félagsins og hefur nú á innan við ári tekist að snúa rekstri þess í átt að fyrra formi, með þeim árangri að upphaf- leg fjárfesting verður nú end- urgreidd. Félagið verður nú fjármagnað í samræmi við eðlilegan rekstur. Fjárfestingabankar horfa stíft á hversu vel tekst í slíkum verk- efnum og eru fjárfestar metnir eftir slíkum árangri. Umfang þessara greiðslna er 160 milljónir punda, eða 18 millj- arðar króna. Kaupin á Iceland voru talin þau áhættumestu í heildarkaupum fjárfesta á The Big Food Group, en viðsnún- ingur rekstursins hefur gengið betur en nokkurn óraði fyrir. -hh Endurgreiða sér kaupin á verslunarkeðjunni Iceland Kaupendur Iceland hafa greitt sér upphaflega fjárfestingu til baka og gert upp fjármögnun vegna skuldsettra kaupa við Landsbankann.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.