Fréttablaðið - 01.03.2006, Qupperneq 30
MARKAÐURINN 1. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Vika Frá ára mót um
Actavis Group -1% 14%
Alfesca 2% 2%
Atorka Group -2% -6%
Bakkavör Group 2% 5%
Dagsbrún 2% 11%
Flaga Group -1% -16%
FL Group -2% 39%
Íslandsbanki 7% 20%
KB banki -2% 28%
Kögun 3% 8%
Landsbankinn -6% 14%
Marel 5% 5%
Mosaic Fashions -4% -8%
Straumur -5% 23%
Össur 5% 0%
*Miðað við gengi í Kaup höll á mánudaginn
G E N G I S Þ R Ó U N
Lysing_silfurfat_5x100mm
Við viljum að þú náir árangri
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
H
in
rik
P
ét
ur
ss
on
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
“Vi› vitum a› me› réttum tækjum og tólum
eiga vi›skiptavinir okkar meiri möguleika a›
ná árangri í sinni starfsemi. Okkar markmi›
er a› a›sto›a flá til gó›ra verka enda vitum
vi› velgengni okkar byggist á velgengni
vi›skiptavinanna.“
Gu›rí›ur Ólafsdóttir
Yfirma›ur fyrirtækjasvi›s
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Á aðalfundi SPV í næstu viku
mun stjórn sparisjóðsins óska
eftir því að hún fái heimild til
þriggja ára til þess að 30-falda
stofnfé hans.
„Stjórnin er að óska eftir heim-
ild til að auka stofnfé sem myndi
verða nýtt í tengslum við kaup
eða samruna á öðrum fjármála-
fyrirtækjum og til að styrkja
eiginfjárstöðu sparisjóðsins,“
segir Jón Þorsteinn Jónsson,
stjórnarformaður SPV, en tekur
þó fram að hér sé einungis óskað
eftir heimild en engin ákvörðun
hafi verið tekin um hvenær hún
verði nýtt. Stofnfé SPV er 3.205
hlutir, eða 131 milljón króna, og
getur því farið í 3,9 milljarða nýti
stjórn heimild sína að fullu.
Mikil viðskipti hafa verið
með stofnfé SPV frá áramót-
um eins og greint hefur verið
frá í Markaðnum. Tæpur helm-
ingur stofnfjár hefur skipt
um hendur frá því að MP
Fjárfestingabanki hóf að
kaupa hluti snemma í
desember. Samkvæmt
lista yfir stærstu
s t o f n f j á r e i g -
endur í SPV
eiga Fleða
ehf., félag í eigu Ásgeirs Þórs
Árnasonar lögmanns, og MP
Fjárfestingabanki hvort um
sig tæp tíu prósent stofnfjár.
Sólstafir, félag í eigu Þorsteins M.
Jónssonar, kemur þar næst á eftir.
Íslandsbanki er sá fjórði stærsti
og félag í eigu Sparisjóðsins í
Keflavík í sjötta sæti.
Þótt tveir aðilar eigi um tíu
prósent skiptist stofnfé í SPV á
margar hendur og þannig eiga
tíu stærstu eigendurnir um 34
prósent stofnfjár. Viðskipti með
bréf SPV hafa farið hæst í gengið
70 en það var í kringum 30-35 um
síðustu áramót.
Kveðið er á um í samþykktum
SPV að hámarkatkvæðisréttur
miðist við sex stofnfjárbréf. Jón
Þorsteinn segir að þrjár tillögur
hafi borist frá þremur aðilum um
a f n á m
þessa
ákvæðis þannig að atkvæðisrétt-
ur miðist við stofnfjáreign þótt
rétturinn geti aldrei farið yfir
fimm prósent af heildarstofnfé.
SPV skilaði methagnaði á
síðasta ári, rúmum 1,1 milljarði
króna, og jókst hann um 65 pró-
sent á milli ára. Eigið fé SPV
var í árslok tæpur 6,1 milljarður
króna.
Vilja þrjátíufalda stofnfé
Tveir eiga tæp 10 prósent stofnfjár í SPV. Heimildin yrði nýtt
til hugsanlegra kaupa og samruna við fjármálafyrirtæki.
T Í U S T Æ R S T U
S T O F N F J Á R E I G E N D U R Í S P V
Þ A N N 2 2 . F E B R Ú A R
Eignarhluti %
1 Fleða ehf. 9,50% *
2 MP Fjárfestingabanki 9,40%
3 Sólstafir ehf. 6,70% **
4 Íslandsbanki hf 2%
5 Íbúðaleigan ehf. 1,60%
6 Víkur ehf. 1,30% ***
7 Sund ehf 1,30%
8 Guðjón Steingrímsson 0,50%
9 Jóna Gróa Sigurðardóttir 0,50%
10 Kaupthing Luxembourg 0,30%
10 Jón Leví Hilmarsson 0,30%
10 nb.is-sparisjóður 0,30% ****
10 Saxhóll ehf. 0,30% *****
* Í eigu Ásgeirs Þórs Árnasonar lögmanns
** Í eigu Þorsteins M. Jónssonar í Vífilfelli
*** Í eigu Sparisjóðsins í Keflavík
**** Í eigu SPRON
***** Í eigu Jóns Þorsteins Jónssonar og systkina
Iceland Express hefur verið tekið
úr sölumeðferð hjá KB banka
samkvæmt upplýsingum frá
bankanum.
Örvar Kærnested hjá fyrir-
tækjaráðgjöf KB banka segir að
töluverður áhugi hafi verið fyrir
Iceland Express og hefði verið
lítið mál að selja félagið á fínu
verði. Mikill viðsnúningur varð
á rekstri Iceland Express á síð-
asta ári. Hagnaður varð af rekstri
félagsins og búast stjórnendur við
því að hann verði fjórfalt meiri
á þessu ári eða um 600 milljónir
króna.
Enginn fær
Express
Væntingarvísitala Gallup hækk-
aði í febrúar um rúmlega ell-
efu stig og fór í sitt hæsta gildi
síðan byrjað var að mæla vænt-
ingar neytenda með þessum
hætti árið 2001. Í Morgunkorni
Íslandsbanka er talið líklegt að
mikil umfjöllun um gott gengi
íslenskra fyrirtækja í ársbyrj-
un, hækkanir í Kauphöllinni og
umræðan um frekari álversfram-
kvæmdir hafi virkað til hækkun-
ar vísitölunnar.
Mat almennings á núverandi
ástandi hækkaði um tæp fimm
stig milli mánaða en væntingar
til sex mánaða hækkuðu þrefalt
meira, eða um rúm fimmtán stig.
Mat neytenda á efnahagsástand-
inu hækkaði tvöfalt meira en mat
þeirra á vinnumarkaði, eða um
sextán stig á móti átta. Yngra fólk
og það tekjuhærra virðist bjart-
sýnna en aðrir. Þannig hækkaði
væntingarvísitala fólks með 550
þúsund króna mánaðarlaun eða
meira um tæp 19 stig á meðan
að væntingar þeirra sem höfðu
laun undir 250 þúsund krónum
á mánuði jukust aðeins um rúm
þrjú stig. - hhs
Aldrei bjartsýnni
ALMENNINGUR HEFUR GÓÐA TRÚ Á
EFNAHAGSÁSTANDINU Íslendingar hafa
ekki verið bjartsýnni síðan útreikningar á
væntingarvísitölunni hófust árið 2001.
Stjórnendur sjávarútvegsfyrir-
tækisins American Seafood hafa
keypt yfir helming fyrirtækisins
ásamt fjárfestum. Íslandsbanki
fjármagnar kaupin og nemur
umfang viðskiptanna á sjötta
milljarð króna.
Íslandsbanki hefur verið að
byggja upp sérþekkingu í sjáv-
arútvegi og eru viðskiptin nú
afrakstur þeirrar stefnu að sögn
Helga Antons Eiríkssonar við-
skiptastjóra hja Íslandsbanka
sem hafði umsjón með kaupun-
um ásamt Tim Spano sem kom
til Íslandsbanka frá Bank of
America.
„Við höfum unnið lengi með
fyrirtækinu. Þetta fyrirtæki er
ekki aðeins eitt stærsta fyrir-
tæki í heimi, heldur hefur einn-
ig verið mjög vel rekið.“ Hann
segir þessi viðskipti styrkja enn
stöðu bankans í alþjóðlegum
sjávarútvegi.
American Seafood er með
höfuðstöðvar í Seattle og veiðir
fyrirtækið 175 þúsund tonn af
alaskaufsa á ári sem er meira í
tonnum talið en allur þorskkvóti
á Íslandsmiðum. Fyrirtækið
veiðir árlega þrjátíu þúsund
tonn af þorski, auk umfangsmik-
illar vinnslu og sölustarfsemi.
Íslandsbanki komst fyrst í
kynni við American Seafood með
þátttöku í sambankaláni, en sam-
starfið hefur farið stigvaxandi.
Bankinn hefur byggt upp mikla
sérþekkingu í sjávarútvegi og
ráðið til sín jafnt stjórnendur
með mikla fjármálaþekkingu
og stjórnendur með þekkingu á
alþjóðlegum sjávarútvegi.
-hh
Fjármagna stjórnendakaup í USA
Stjórnendur American Seafood kaupa fyrirtækið með hjálp Íslandsbanka.
Vextir ríkisvíxla lækkuðu um
rúma 50 punkta frá síðasta
útboði, en í gær, þriðjudag, voru
boðnir út eins mánaðar víxlar
í flokknum RIKV 06 0405. Alls
bárust 19 gild tilboð upp á 16
milljarða króna, en aðeins var
tekið tilboðum að upp-
hæð fimm milljarðar.
Í vegvísi greiningar-
deildar Landsbankans
segir að mikill skortur
sé á skammtíma rík-
isbréfum. Eftirpsurn
eftir ríkisvíxlum er
sögð hafa vaxið undan-
farið en peningamark-
aðssjóðir hafi skilað
mikilli ávöxtun og vin-
sældir þeirra aukist.
„Meðan Seðlabankinn
berst við að toga upp skamm-
tímavexti leiðir góð staða rík-
issjóðs til hins gagnstæða.
Tilgangur með útgáfu ríkisbréfa
og ríkisvíxla er ekki aðeins að
afla ríkinu lánsfjár heldur jafn-
framt að mynda grunn fyrir
verðmyndun á skulda-
bréfamarkaði. Ef pen-
ingastefna ríkisstjórnar-
innar og Seðlabankans á
að hafa áhrif á mark-
aðsvexti þarf að vera
nægjanlegt framboð
ríkisbréfa,“ segir grein-
ingardeildin og bendir á
að samdráttur í fram-
boði ríkisbréfa og -víxla
jafngildi á vissan hátt
markvissri vaxtalækk-
un. - óká
Skortur jafngildir
vaxtalækkun