Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 32

Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 32
MARKAÐURINN Óli Kristján Ármannsson skrifar Penninn er ekki með í ramma- samningi Ríkiskaupa fyrir ríkis- stofnanir um kaup á ritföngum og skrifstofuvörum líkt og áður hefur verið, meðan Oddi kemur nýr inn. Samkvæmt útboðsgögn- um veltir ritfangahluti ramma- samningsins um 100 milljónum króna á ári og því ljóst að um er að ræða upphæðir sem skipta máli fyrir rekstur fyrirtækjanna sem þarna komast að. Nýverið var skrifað undir samninga í rammasamnings- útboði Ríkiskaupa á ritföngum og skrifstofuvörum, ljósritun- arpappír og gagnageymslum. Tilboðum í ritföng og skrif- stofuvörur var tekið frá Office One, Odda skrifstofuvörum og Rekstrarvörum. Tilboðum í ljós- ritunarvörur var tekið frá Office One, Odda skrifstofuvörum, Rekstrarvörum og Pennanum og um gagnageymslur frá Office One, Odda skrifstofuvörum og Pennanum. Einar Snorri Magnússon, framkvæmdastóri fyrirtækja- sviðs Pennans, segir menn teygja sig ansi langt í afsláttum þegar kemur að ritföngum og gagn- rýnir í raun það vægi sem lagt er á verð, á móti þjónustu og gæðum í rammasamningnum. „En við erum svo sem ekki að missa svefn yfir þessu, ríkisfyr- irtæki kaupa líka töluvert fyrir utan rammasamninga.“ Valgeir Óskar Pétursson, verkefnisstjóri hjá Ríkiskaupum, sem sá um gerð rammasamn- insins segir að frá upphafi hafi verið ljóst hvernig útboðsgögn yrðu metin og sá þáttur kynntur vandlega fyrir bjóðendum, auk þess sem gefinn hafi verið kost- ur á að koma að athugasemdum. „Penninn nýtti sér það ekki í þessu tilviki. Staðan var bara sú að Penninn var dýrastur allra bjóðenda,“ segir hann en bætir við að vissulega geti menn verið ósammála um hversu mikið vægi þjónusta eigi að fá á móti verði. „En þarna eru hins vegar tveir aðrir með sama þjónustustig og Penninn,“ segir hann og bætir við að gætt hafi verið að gæðum varnings bjóðenda líka, allir hafi þurft að senda inn sýnishorn. „Við getum ekki samið við menn bara út á að þeir séu stórir og góðir, þeir verða að standa sig í verði líka.“ Einar Snorri segir nýjungar á döfinni hjá Pennanum, en fyrir- tækið samdi nýverið við EJS um að í þremur verslunum Pennans yrði á boðstólum tölvubúnaður EJS. „Þetta verður í Hallarmúla 2 í Reykjavík, í Keflavík og líka á Akureyri. Við sjáum um að reka þetta en þeir um vörustýringu og þann hluta,“ segir Einar og bætir við að nýjungin tengist samstarfi Pennans við Símann, því nú geti fyrirtækið boðið í einum pakka, tölvur, internettengingar og fleira til. Stefnt er að því að opna tölvusöluna í Hallarmúla í lok næstu viku og svo í framhaldinu á hinum stöðunum. 1. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R SELJENDUR KYNNA VÖRUR SÍNAR Ríkiskaup héldu fund á Grand hóteli Reykjavík með stofnunum og seljendum vara til að kynna nýjan rammasamning. MARKAÐURINN/STEFÁN VALGEIR PÉTURSSON Valgeir sá um útboð Ríkiskaupa vegna rammasamninga um kaup á ritföngum og skrifstofuvörum, ljósritunarpappír og gagnageymslum, en þeir voru kynntir nýverið. MARKAÐURINN/STEFÁN Penninn tapaði samningi við ríkið Penninn féll út úr rammasamingi Ríkiskaupa fyrir stofnanir um kaup á ritföngum. Samningurinn veltir um 100 milljónum króna á ári hverju. Penninn hefur tölvusölu í næstu viku. Methagnaður SPV Methagnaður varð af starfsemi Sparisjóðs vélstjóra fyrir árið 2005 og jókst hann um 64,6 pró- sent á milli ára. Nam hann 1.124 milljónum króna að teknu tilliti til skatta samanborið við 682,6 millj- ónir króna árið 2004. Eigið fé nam 6.088 milljónum króna og hefur vaxið um 1.110,9 milljónir á árinu eða um 22,3 prósent. Arðsemi eig- infjár var 22,6 prósent. Hreinar vaxtatekjur spari- sjóðsins námu 914,9 milljónum króna en voru 865,4 milljónir á sama tíma árið 2004. Lítill vöxt- ur vaxtatekna skýrist af minni vaxtamun. Aðrar rekstrartekjur námu 1.457,3 milljónum króna í samanburði við 900,1 milljón í fyrra og nemur aukningin 61,9 prósentum. Launakostnaður jókst um 8,1 prósent frá fyrra ári og námu greidd laun 443,2, milljón- um króna. Annar rekstrarkostn- aður minnkaði og nam 355,6 millj- ónum króna samanborið við 365,1 milljón í fyrra. Stjórn sparisjóðsins mun leggja til að 18 prósenta arður verði greiddur á uppreiknað stofnfé auk þess sem nýttar verði heimildir laga um endurmat og viðbótar- endurmat þannig að nafnávöxtun stofnfjár verði 27 prósent. - hhs Föroya Sparikassi, stærsti stofn- fjáreigandinn í SPRON, skilaði methagnaði á síðasta ári eða 1,3 milljörðum króna. Hagnaður fyrir skatta jókst um 47 prósent. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var um 12,8 prósent. „Vaxtamunurinn er lítill og samkeppnin á færeyskum verð- bréfamarkaði er hörð. Því getum við ekki verið annað en ánægð með að Sparikassinn skili met- hagnaði,“ segir Marner Jacobsen, forstjóri bankans. Eignir bankans voru um 90 milljarðar króna í árslok og hækkuðu um þriðjung milli ára. Eigið fé var um 9,6 milljarðar króna. Þriðjungur af hagnaði bankans kemur erlendis frá en hann hefur vaxið í Danmörku með kaupum á Eik Bank sem áður var Kaupþing í Danmörku. Bankinn stefnir á skráningu í Kauphöll Íslands á næsta ári. - eþa Methagnaður Sparikassans FRÁ FÆREYJUM Föroya Sparikassi skilaði metafkomu árið 2005. Formlegum yfirtökuviðræðum í Low & Bonar hefur verið slit- ið eftir margra vikna viðræð- ur stjórnar félagsins og þriðja aðila. Nafn Atorku Group var nefnt í því sambandi en félagið er stærsti hluthafinn í Low & Bonar með um þriggja milljarða eign- arhlut að marksvirði sem sam- svarar um 22 prósentum af öllu hlutafé. Low & Bonar skilaði 3,3 millj- arða tapi á síðasta ári sem kemur til vegna sölutaps eigna, það er Bonar Plastic sem var selt til Promens, dótturfélags Atorku. Rekstrarhagnaður samstæð- unnar fyrir afskriftir (EBITDA) jókst um fjögur prósent og var yfir 1,5 milljarður króna. Velta félagsins nam um 26 milljörðum króna og jókst um þrettán pró- sent á milli ára. - eþa Yfirtökuviðræðum slitið í Low & Bonar Atorka Group var orðað við félagið Hagnaður Old Mutual (OM) jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005 sem skýrist af miklum vexti á suður-afrískum banka- markaði í gegnum Nedbank. Var uppgjörið fyrir ofan spár mark- aðarins en hafði ekki áhrif til hækkunar á gengi bréfa félags- ins. Nam hagnaðurinn 143 millj- örðum króna samanborið við 110 milljarða árið 2004. Straumur-Burðarás á stór- an eignarhlut í OM sem félagið eignaðist í skiptum fyrir hlut í Skandia. - eþa Hagnaður OM eykst

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.