Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 34
MARKAÐURINN 1. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Sala á PSP-leikjatölvunni hefur
verið langt undir væntingum í
Evrópu, meðan tölvuleikjaunn-
endur í Japan og Bandaríkjunum
hafa tekið henni opnum örmum.
Hér er sala á tölvunni sögð hafa
gengið vel, enda tæknikauphegð-
un Íslendinga líkari því sem ger-
ist í Bandaríkjunum en í öðrum
Evrópulöndum.
Í Danmörku og víðar á
Norðurlöndum sá Nordisk Film
um sölu og markaðssetningu á
PlayStation Portable tölvunni.
Í frétt PC World í Danmörku
kemur fram að fyrirtækið hafi
ætlað að selja 75.000 stykki í
Danmörku frá því í september
og fram að jólum, en hafi ekki
selt nema 35.000 eintök. Haft er
eftir Allan M. Hansen forstjóra
margmiðlunardeildar Nordisk
Film að bið eftir efni fyrir tölv-
urnar hafi dregið úr sölunni. „Til
dæmis kemur ekki út fyrr en í
sumar leikur á borð við Tekken,
sem þegar hefur farið sigurför
á PlayStation 2,“ segir hann og
bætir um leið við að kvikmynd-
ir sem seldar hafi verið fyrir
PSP-tölvur hafi verið í dýrari
kantinum, eða á svipuðu verði og
DVD- myndir.
Arthur Karlsson hjá Sony
Center í Kringlunni segir að
þótt sala á PSP-tölvum hafi verið
dræm á meginlandi Evrópu hafi
sú ekki verið raunin hér, fremur
en í Bandaríkjunum og Asíu þar
sem markaðurinn hafi staðið fyrir
sínu. „Raunar mokseldust þessar
tölvur fyrir jólin,“ segir hann og
telur kauphegðan fólks hér líkari
því sem gerist í Bandaríkjunum.
„Við virðumst frekar horfa til
þess sem þar er að gerast.
Til dæmis hefur orðið
þar mikil endurnýjun
tengd flatskjám og
plasmasjónvörpum og
sambærileg við það
sem þar er að ger-
ast, en engin sprengja
í þessu í Evrópu,
nema kannski að eins í
Bretlandi.“ - óká
SIR HOWARD STRINGER Stringer er
formaður og forstjóri Sony, en hann sýnir
hér PSP-tölvuna á raftækjasýningunni í Las
Vegas í byrjun ársins. NORDICPHOTOS/AFP
Kauphegðanin líkari
Bandaríkjunum
Sala á PSP-leikjatölvum hefur brugðist í Evrópu.
Hér er tölvan vinsæl líkt og í Ameríku og Japan.
Breska viðskiptablaðið The
Financial Times og ráðgjafafyr-
irtækið Roland Berger Strategy
Consultants veittu dönsku fyrir-
tækjasamteypunni A.P. Møller-
Mærsk evrópsku viðskiptaverð-
launin fyrir að vera eitt af níu
samkeppnishæfustu fyrirtækj-
unum í Evrópu í síðustu viku.
Fjárfestingar félagsins á síð-
ustu árum þóttu afar vel heppn-
aðar, að mati dómnefndar, auk
þess sem félagið skilaði góðum
hagnaði á síðasta ári.
Jess Søderberg, forstjóri
Mærsk, tók við viðurkenning-
unni og hafði danska dagblað-
ið Jyllands-Posten eftir honum
að forsvarsmönnum fyrirtækja
þætti afar ánægjulegt þegar
tekið væri eftir því sem fyrir-
tæki þeirra væru að gera.
The Financial Times og ráð-
gjafafyrirtækið skoðuðu sam-
keppnishæfni 6000 fyrirtækja í
Evrópu og völdu níu sterkustu
fyrirtækin úr hópnum. Á meðal
þeirra voru stálframleiðandinn
Arcelor, þýski bílaframleið-
andinn Audi, þýski efnafram-
leiðandinn BASF, raforkufyr-
irtækið RWE, norski olíurisinn
Statoil, spænska símafyrirtækið
Telefónica og svissneski bankinn
UBS. - jab
Mærsk verðlaunað
Eitt af samkeppnishæfustu fyrirtækjum í Evrópu.
SKIP MÆRSK VIÐ BRYGGJU
NORDICPHOTOS/AFP
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB)
hefur varpað fram hugmynd um að setja á laggirn-
ar tæknistofnun sem auka muni samkeppnishæfni
ESB-ríkja í samfélagi þjóðanna. Það var Jose Manuel
Barroso, framkvæmdastjóri ESB, sem greindi frá
áætlunum sambandsins á ráðstefnu um upplýs-
ingatækni og frumkvöðlastarf á vegum Microsoft
í Lissabon í Portúgal í janúarlok. Sagði hann m.a.
að ESB hafi tækniháskólann í Massachusetts, MIT,
í Bandaríkjunum að fyrirmynd. Yfirbygging evr-
ópsku tæknistofnunarinnar, sem hlotið hefur heit-
ið EIT (European Institute of Technology),
verður fremur lítil í sniðum en hlutverk
hennar verður að hafa umsjón með starfi
sérfræðingahópa á vegum ESB.
Framkvæmdastjórn ESB ákvað að
setja stofnun sem þessa á laggirnar eftir
að niðurstöður könnunar bentu til að
sárafáir háskólar innan aðildarríkja ESB
væru sambærilegir við virtustu háskóla
í heimi á tæknisviðinu. Flestir þeirra
eru í Bandaríkjunum, samkvæmt könnun-
inni. Gagnrýnendur EIT óttast hins
vegar að rót komist á fjármagn
innan ESB og verði styrkveit-
ingar færðar frá öðrum verk-
efnum á vegum sambandsins
til starfsemi á vegum hinnar
nýju tæknistofnunar.
„Yfirburðir þurfa flagg-
skip. Þess vegna þurfa
Evrópubúar sterka tækni-
stofnun þar sem helstu
hugsuðir og fyrirtæki
í álfunni geta komið
saman,“ sagði Jose
Manuel Barroso, fram-
kvæmdastjóri ESB, á
miðvikudag í síðustu viku og bætti við að lögð verði
áhersla á frumkvöðlastarf hjá tæknistofnuninni.
Jan Figel, sem fer með menntamál á vegum
ESB, sagði stofnunina eiga að tengja saman nám,
rannsóknir og frumkvöðlastarf. Sagði hann háskóla
og aðrar rannsóknarstofnanir í Evrópu hafa ekki
náð að tengja þessa þætti saman fram til þessa og
því hefðu aðildarríki sambandsins dregist aftur úr
öðrum þjóðum.
Chris Patten, fyrrverandi framkvæmdastjóri
ESB, sem nú er heiðursrektor við Oxfordháskóla
í Bretlandi, sagði að framkvæmdastjórn ESB ætti
fremur að beina sjónum sínum að því að styrkja
rannsóknarstofnanir sambandsins sem nú
þegar væru til staðar en að setja enn eina
stofnunina á laggirnar. Sagði hann að
EIT, sem búist er við að muni kosta
um tvo milljarða evra, grafi undan
hinu evrópska rannsóknarráði ESB
(ERC), sem var stofnað á sínum
tíma til að gegna svipuðu hlutverki
og EIT.
Að sögn breska ríkisútvarpsins
hefur bandaríski hugbúnaðarrisinn
Microsoft, finnski farsíma-
framleiðandinn Nokia og
Pirelli á Ítalíu lýst
yfir áhuga á evrópu
tæknistofnuninni.
Frekari áætlan-
ir um EIT verða
ræddar á næsta
leiðtogafundi ESB
síðar í mánuðinum.
Tækniflaggskipi
ESB ýtt úr vör
Á að efla samkeppnishæfni aðildarríkja ESB
JOSE MANUEL
BARROSO, FRAM-
KVÆMDASTJÓRI ESB.
Hann segir nauðsynlegt
að setja á laggirnar tækni-
stofnun innan ESB til að efla
frumkvöðlastarf og samkeppnis-
hæfni sambandsins.
Bandaríska netuppboðsfyrir-
tækið Ebay greindi frá því á
þriðjudag fyrir viku að nýr fjár-
málastjóri hefði verið ráðinn til
starfa. Fjármálastjórinn
heitir Robert H. Swan
og var hann áður fjár-
málastjóri bandaríska
ráðgjafafyrirtækisins
Electronic Data Systems, sem
forsetaframbjóðandinn fyrrver-
andi og auðmaðurinn Ross Perot
stofnaði árið 1962. Um 117.000
manns vinna hjá fyrirtækinu í
yfir 50 löndum en tekjur fyr-
irtækisins námu 20 milljörðum
dollara á síðasta ári.
Swan tekur við starfi Rajiv Dutta,
fyrrverandi fjármálastjóra Ebay.
Ákveðið var að Dutta yrði gerður
að forstjóra Skype, sem sinnir
fjarskiptum á netinu, eftir
að Ebay keypti fyrirtækið
um miðjan september á
síðasta ári. Swan hóf störf
í netgeiranum hjá net-
versluninni Webvan í hápunkti
netbólunnar árið 1999 og gegndi
ýmsum æðstu stöðum hjá fyr-
irtækinu í 18 mánuði. Webvan
varð hins vegar illa úti þegar
netbólan sprakk skömmu eftir
aldamótin og var lýst gjaldþrota
árið 2001. -jab
Nýr fjármálastjóri Ebay
Hagen Jørgensen, umboðsmaður
neytendamála í Danmörku, sagði
í upphafi vikunnar að mörgu væri
ábótavant í tengslum við uppboðs-
vefi á netinu. „Ég er stórundr-
andi á því sem við fundum,“ sagði
hann og benti meðal annars á að
forsvarsmönnum flestra uppboðs-
vefja hefði verið gert ljóst fyrir
tveimur árum að vefirnir heyrðu
undir sömu reglugerð og versl-
anir og því ættu viðskiptavinir
þeirra rétt á að skila vörum sem
þeir keyptu. Í könnun sem dönsku
neytendasamtökin gerðu á síðasta
ári kom í ljós að víða var pottur
brotinn í sambandi við starfsemi
uppboðsvefjanna er varðaði meðal
annars greiðslur, endurgreiðslur
og sendingar á vörum til fólks. Þá
virtist erfiðara að hætta skrán-
ingu á uppboðsvef en að skrá sig á
hann, að sögn Jørgensens.
Hnýtt í danska
uppboðsvefi
������������
������������������������������ ����������������������
���
�����
����
�����������������������������
����������� � ���������
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
Söluvagnar
á göngum
Kringlunnar
Upplýsingar um verð og leyfilegar vörutegundir
veitir þjónustustjóri Kringlunnar í síma 568 9200
eða á netfanginu soluvagnar@kringlan.is.
Kringlan leigir söluvagna í eina til fjórar vikur í senn!