Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 40

Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 40
MARKAÐURINN 1. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR12 Ú T T E K T Þrátt fyrir að þekktar kempur hafi á undan- förnum árum lagt skóna á hilluna dregur fátt úr vexti NBA-deildarinnar og malar hún gull á öllum vígstöðum. Ýmsar ástæður eru fyrir því. Þegar deild- in gerði sjónvarpssamning við fjölmiðlaris- ana Walt Disney og Time Warner jukust sjónvarpstekjur hennar um fjórðung frá fyrri samningi. Nýjar stórstjörnur eins og LeBron James og Dwayne Wade hafa ruðst fram á sjónarsviðið og flutningur liða frá litlum markaðssvæðum til tekju- meiri svæða eykur virði deildarinn- ar og liðanna. Þá er útrás NBA ekki síður veigamikill þáttur í vexti hennar en deildarleikjum er sjónvarpað til 215 landa. Mikill áhugi er fyrir NBA í Evrópu en nú sjá forráða- menn NBA-deildarinnar fram á mikil tækifæri annars staðar og að velta deildarinnar á körfubolta- varningi verði meiri í Kína en Bandaríkjunum innan fárra ára. „Í raun og veru sjáum við engan endi á vextinum hér,“ segir Mark Fischer, sem fer fyrir NBA-deildinni í Kína. Forbes hefur tekið saman verð- mæti, tekjur, launakostnað og aðrar tölur úr rekstri þeirra 30 liða sem spila í NBA- deildinni. Meðallið í NBA var metið á 21 milljarð króna á síðasta keppnistímabili sem var níu prósenta aukning frá fyrra leikári. Heilarvirði allra NBA-liðanna er um 645 milljarðar króna sem samsvarar verðmæti KB banka. Þar sem NBA-liðin eru ekki skráð á hluta- bréfamarkað byggjast útreikningar Forbes bæði á huglægum og fjárhagslegum þáttum er snúa að staðsetningu og markaðssvæði, stöðu körfubolta gagnvart öðrum íþróttalið- um á því svæði sem liðið er staðsett, samn- ingum við styrktaraðila og auglýsendur og síðast en ekki síst samningum félaganna við íþróttahallirnar. Íþróttahúsin eru ýmist í eigu liðanna sjálfra eða leigð út til þeirra. Ljóst er að íþróttahöll í eigu liðs getur skapað gríð- arlegar aukatekjur ef samningar nást við lið úr öðrum íþróttagreinum eins og íshokkí auk annarra viðburða. MÖRG LIÐ SKILA TAPI Þótt gríðarlegir peningar komi við sögu í NBA þá er ekki þar með sagt að rekstur allra liða gangi eins og í sögu. Ellefu lið af 30 skiluðu tapi af reglulegri starfsemi keppnistímabilið 2004-2005. Phoenix Suns, sem átti góðu gengi að fagna á síðustu leiktíð, skilaði mestum rekstrarhagnaði fyrir afskriftir, fjármagns- liði og skatta (EBITDA) á síðustu leiktíð eða rúmum 2,6 milljörðum. Hlutfall launakostn- aðar af heildartekjum hjá Suns var einnig það lægsta af öllum NBA-liðum. Portland Trail Blazers tapaði hins vegar mestu eða yfir tveimur milljörðum króna. EBITDA gefur oft sterkar vísbendingar um endanlega niðurstöðu rekstrarins og segir mikið til um hæfi félaganna til að standa við skuldbindingar sínar gagnvart lánardrottnum. Til að reka NBA-lið með góðum hætti þarf að finna rétt sambland af launagreiðslum til leikmanna og heildartekjum. Best reknu liðin eiga það sammerkt að laun eru um helmingur af tekjum þeirra. Í fyrrasumar gerðu NBA-deildin og verka- lýðsfélag leikmanna með sér samkomulag um að 57 prósent tekna félaganna rynnu til leikmanna. Ef launin fara umfram þetta mark hafa leikmenn skuldbundið sig til að greiða viðbótina til baka og rennur sú fjárhæð inn á geymslureikning. Launakjör NBA-leikmanna hafa batnað hröðum skrefum á undanförnum fimmtán árum. Þannig voru þeir launahæstu um 1990 með 3 til 4 milljónir dala í árslaun en sumir af toppunum í dag eru með margra ára milljarða samninga. Shaquille O´Neal er launahæstur á þessari leiktíð með um 20 milljónir dala fyrir leiktíðina. KNICKS STÆRSTIR Þrátt fyrir hörmulegt gengi New York Knicks innan vallar á undanförnum árum fylgja kröfuharðir stuðningsmenn liðinu sínu í gröf- ina. Knicks er verðmætasta lið NBA að mati Forbes. Félagið, sem varð síðast NBA-meist- ari árið 1973, er metið á rúma 543 milljarða dala, það er 36 milljarða króna, og byggist verðmætið að stórum hluta á því að eigend- ur liðsins eiga jafnframt Madison Square Garden, hina heimsfrægu íþróttahöll. New York Knicks er í eigu Cablevision Systems sem keypti liðið árið 1997 fyrir 300 milljónir dala. Félagið er tekjuhæsta félagið í NBA og fékk 181 milljón dala í tekjur á Meðallið í NBA metið á 21 milljarð króna Vöxtur bandarísku atvinnumannadeildarinnar í körfuknattleik virðist óendanlegur. New York Knicks er verðmætasta félag NBA deildarinnar og skilar mestum tekjum þrátt fyrir hrakfarir á vellinum. Phoenix Suns skilar mestum rekstrarhagnaði samkvæmt Forbes en Portland Trail Blazers mestu tapi. Eggert Þór Aðalsteinsson rýnir í peningahliðina á NBA. Launakjör NBA-leik- manna hafa batnað hröðum skrefum á und- anförnum fimmtán árum. Þannig voru þeir launa- hæstu um 1990 með 3-4 milljónir dala í árslaun en sumir af toppunum í dag eru með margra ára milljarða samninga. Shaquille O´Neal er launahæstur á þessari leiktíð með um 20 millj- ónir dala fyrir leiktíðina. LEBRON JAMES GRÍÐARLEG- UR FENGUR Verðmæti Cleveland Cavaliers hefur aukist gríðarlega eftir að LeBron James var valinn til liðsins. Tekjur af miða- og auglýsingasölu hefur vaxið mikið vegna hans. Við hlið James í gulum búningi stendur Kobe Bryant, stigakóngur NBA.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.