Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 41
MARKAÐURINN 13MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006
Ú T T E K T
síðasta ári sem er átján prósentum meira en
næsta lið. Miðaverð er hátt á heimaleikina,
sæti við völlinn kostar yfir 120.000 krónur
á leik, og ársmiði í lúxussvítu kostar um 30
milljónir króna. Samningar við styrktaraðila
gefa einnig vel af sér.
En ekki er allt gull sem glóir. Launakostnaður
er í engu samræmi við spilamennsku innan
vallar. Á þessari leiktíð greiðir félagið yfir
átta milljarða í laun, sem er það mesta í
deildinni, auk þess sem hár reikningur frá
skattayfirvöldum er á leiðinni. Forbes spáir
því að Knicks muni tapa þremur milljörðum
króna á yfirstandandi leiktíð.
VELGENGNI BÝR TIL PENINGA
Ekki kemur á óvart að stórveldið Los Angeles
Lakers komi næst á eftir Knicks en þessi tvö
félög bera fjárhagslega höfuð og herðar yfir
önnur félagslið. Jerry Buss eignaðist Lakers
árið 1979 fyrir aðeins 20 milljónir dala um
sama leyti og Magic Johnson gekk í liðið og
hefur séð félagið margfaldast í verði. Lakers
hefur verið sigursælasta lið NBA undanfarna
áratugi og hampaði titlinum á árunum 1999-
2001. Þessi mikla velgengni í úrslitakeppn-
um hefur skapað félaginu miklar aukatekjur
umfram keppinautana og gert það að því
arðsamasta. Til dæmis eru skuldir þess ekki
nema einn tíundi af áætluðu markaðsverði.
Félagið leigir aðstöðu í Staples Center og
þarf að borga háa leigu. Stærstur hluti tekna
af miðasölu fer beint í vasa leigusalans Philip
Anschutz sem á um 30 prósenta hlut í Lakers
auk þess að eiga íshokkíliðið L.A. Kings.
400 MILLJÓNA DALA HÓPURINN
Fjögur lið eru metin á yfir 400 milljónir
dala, Houston Rockets, Chicago Bulls, Dallas
Maverics og Detroit Pistons.
Verðmæti Houston Rockets byggist að
hluta til á tíu ára sjónvarpssamningi sem það
og hafnaboltaliðið Houston Astros gerðu árið
2004 og er metinn er á 600 milljónir dala.
Chicago Bulls hefur ekki riðið feitum hesti
eftir að Michael Jordan yfirgaf meistaraliðið
árið 1998 en samt sem áður hefur liðinu tek-
ist að halda miðaverði óbreyttu allan þennan
tíma. Stjórnendum hefur einnig tekist að
halda launakostnaði í skefjum sem er sjald-
gæft afrek nú á síðustu og verstu tímum.
Dallas, sem er í eigu hins umdeilda Marks
Cuban, hefur risið úr öskustónni á síðustu
árum þökk sé öflugu markaðsstarfi, frábær-
um heimavelli og góðu liði. Liðið losaði sig
við Michael Finley og sparar sér yfir 50
milljónir dala í skattgreiðslur á næstu árum.
Fastlega er búist við miklum viðsnúningi í
rekstri þess eftir mikið rekstrartap á síðasta
keppnistímabili.
Tvö af sigursælustu félagsliðum seinni
ára, Detroit Pistons og San Antonio Spurs,
sitja í 6. og 12. sæti og sjá fram á góða tíma,
enda eru þetta mjög vel rekin félög og hafa
innanborðs öfluga og óeigingjarna leikmenn.
Launakostaður þessara félaga er um 43 pró-
sent af heildartekjum sem er ekki mikið í
ljósi þess að hér er um tvö af bestu liðum
NBA að ræða.
Öldungurinn William Davidson keypti
Pistons árið 1974 fyrir átta milljónir dala
og getur því vart kvartað yfir uppskerunni.
Hann á félagið skuldlaust. Detroit hefur verið
að bæta við sig tekjum af miðasölu og miða-
verð fer hækkandi í bílaborginni vegna frá-
bærs árangurs.
RÉTTIR LEIKMENN BREYTA MIKLU
Miami Heat hefur rokið upp lista Forbes á síð-
ustu árum, aðallega eftir að tröllið Shaquille
O´Neal kom frá Lakers árið 2004. Verðmæti
félagsins jókst um 30 prósent milli leiktíða.
Þótt O´Neal sé kominn af léttasta skeiði hafði
koma hans veruleg áhrif á rekstur liðsins,
bæði á miðasölu og sölu á auglýsingasamn-
ingum. O´Neal fær 20 milljónir dala á þessari
leiktíð og er fyrir vikið sá hæst launaði í
deildinni.
Annar klúbbur sem naut góðs af nýjum
leikmanni er Cleveland Cavaliers en verð-
gildi þess hefur aukist eftir að stórstjarnan
LeBron James hóf að spila með því. Þrátt
fyrir ungan aldur hefur LeBron verið settur
á sama stall og Michael Jordan − ef það er
hægt. Daniel Gilbert eignaðist Cavs um svip-
að leyti og James var að stíga sín fyrstu skref
og veðjar á að ungi maðurinn leiði félagið til
fyrirheitna landsins í fyrsta sinn.
Næst á eftir Cavs kemur Boston Celtics,
hið fornfræga og sigursæla lið, sem má muna
sinn fífil fegri. Liðið sætir mikilli samkeppni
frá sigursælum borgarliðum úr hafnabolta
og amerískum fótbolta og hefur dregið úr
aðsókn á leiki Celtics.
Ekkert lið hefur verið lengur í eigu sama
aðila og Washington Wizards. Eigandi þess,
Abe Pollin, keypti félagið árið 1964 fyrir
aðeins eina milljón dala en verðmæti þess
í dag er yfir 300 milljónir dala eða um 20
milljarðar króna! Til greina kom að Michael
Jordan keypti hlut í Wizards en ekkert varð
úr því. Það hafði hins vegar lítil áhrif á rekst-
ur félagsins á síðustu leiktíð og komst liðið í
aðra umferð úrslitakeppninnar í fyrsta skipti
í langan tíma.
LIÐIN Í KJALLARANUM
Listinn bendir óneitanlega til þess að félags-
lið frá stærri borgum séu verðmætari en
lið frá smærri markaðssvæðum. Gott eða
slæmt gengi virðist ekki endilega skila sér
eins og sannast í tilviki Knicks. Þannig eru
sigursæl lið í gegnum tíðina, til dæmis Utah
Jazz, Portland Trail Blazers og jafnvel Seattle
SuperSonics, mjög neðarlega á lista, enda
gefa samningar af íþróttaleikvöngum og
styrktaraðilum minni fjárhæðir. Utah Jazz
hefur ekki náð sér á strik eftir að tvíeyk-
ið ótrúlega, John Stockton og Karl Malone,
yfirgaf herbúðir félagins og hafa tekjur af
miðasölu dregist saman. Trail Blazers, sem
eru í eigu milljarðamærings Pauls Allen, eins
stærsta hluthafans í Microsoft, er í næstsíð-
asta sæti. Félagið er metið á 227 milljónir
dala (14,8 milljarða króna), en ekkert lið
í deildinni skilaði meira tapi af reglulegri
starfsemi keppnistímabilið 2004-05.
Los Angeles Clippers hefur verið versti
brandarinn í Englaborginni svo árum skiptir.
Þrátt fyrir ömurlegt gengi innan vallar hefur
félagið verið rekið með hagnaði en eigandinn
Donald Sterling heldur fast um budduna.
Þetta kann nú að breytast; launakostnaður
hefur rokið upp og árangurinn sömuleiðis.
Botnsætið vermir New Orleans Hornets
en félagið leikur í Oklahoma í vetur eftir að
náttúruhamfarir lögðu New Orleans í rúst í
fyrrasumar. Á meðan liðið lék í New Orleans
rak það lestina í fjölda áhorfenda á hvern
leik en aðeins 14.200 manns sóttu leiki liðs-
ins. Eftir að það fór til Oklahoma hefur
áhorfendafjöldinn aukist gríðarlega eða yfir
átján þúsund manns á hvern leik. NBA leggur
mikla áherslu á það að Hornets snúi aftur til
New Orleans þegar uppbyggingarstarfi lýkur
þar en borgaryfirvöld Oklahoma eru til í að
bjóða gull og græna skóga til að halda í liðið.
Þannig bjóða þau tíu milljóna dala rekstrar-
framlag ef tekjur Hornets fara undir fjörutíu
milljónir dala.
N B A - E I G N A R H A L D O G R E K S T R A R T Ö L U R K E P P N I S T Í M A B I L I Ð 2 0 0 4 - 2 0 0 5
( A L L A R U P P H Æ Ð I R Í M I L L J Ó N U M D A L A ) - H E I M I L D F O R B E S
Rekstrarhagnaður Launa
Félagslið Eigandi Verðmæti fyrir afskriftir (EBITDA) Tekjur kostnaður
New York Knicks Cablevison Systems 543 25,2 181 100
Los Angeles Lakers Jerry Buss 529 38,2 156 66
Houston Rockets Leslie Alexander 422 25,8 141 64
Chicago Bulls Jerry Reinsdorf 409 34,7 136 61
Dallas Maverics Mark Cuban 403 -17,8 124 95
Detroit Pistons William Davidson 402 25 134 58
Phoenix Suns Robert Sarver 395 40,4 132 48
Miami Heat Micky Arison 362 11,5 119 63
Cleveland Cavaliers Daniel Gilbert 356 16 102 52
Boston Celtics Wycliffe Grousbeck 353 8,4 110 68
Philadelphia 76ers Comcast 351 0,7 110 71
San Antonio Spurs Peter Holt 350 23,7 121 51
Sacramento Kings Gavin og Joseph Maloof 345 10 119 64
Indiana Pacers Herbert og Melvin Simon 324 8,5 108 59
Washington Wizards Abe Pollin 318 14,3 106 53
Minnesota Timberwolves Glen Taylor 303 -5 101 73
Charlotte Bobcats Robert Johnson 300 9,8 73 28
Memphis Grizzlies Michael Heisley 294 -15,6 98 70
Denver Nuggets E. Stanley Kroenke 283 12,3 94 48
Toronto Raptors Ontario Teachers Pension Plan 278 -1,3 94 65
Utah Jazz Larry Miller 274 9,4 91 47
New Jersey Nets Bruce Ratners 271 -6,1 87 60
Atlanta Hawks Michael Gearon Jr. 262 8,9 87 44
Los Angeles Clippers Donald Sterling 248 14,6 83 44
Orlando Magic Richard DeVos 247 -9,5 82 71
Golden State Warriors Chris Cohan 243 -3,1 81 58
Seattle SuperSonics Howard Schultz 234 -7,8 81 57
Milwaukee Bucks Herbert Kohl 231 -1,5 78 61
Portland Trail Blazers Paul Allen 227 -31,5 78 87
New Orleans Hornets George Shinn 225 -3,9 78 56
9.782 234,3 3.185 1.842
Meðallið í NBA metið á 21 milljarð króna
Vöxtur bandarísku atvinnumannadeildarinnar í körfuknattleik virðist óendanlegur. New York Knicks er verðmætasta félag NBA
deildarinnar og skilar mestum tekjum þrátt fyrir hrakfarir á vellinum. Phoenix Suns skilar mestum rekstrarhagnaði samkvæmt
Forbes en Portland Trail Blazers mestu tapi. Eggert Þór Aðalsteinsson rýnir í peningahliðina á NBA.
WILLIAM DAVIDSON, EIGANDI
PISTONS Keypti liðið árið 1974. Félagið
hefur þrívegis orðið meistari á þeim tíma
og er nú besta lið deildarinnar. AFP
ABE POLLIN OG MICHAEL JORDAN
Pollin, sem er eigandi Washington
Wizards, keypti félagið fyrir eina milljón
dala árið 1963. Félagið er nú metið á
318 milljón dali samkvæmt Forbes. AFP
BRJÁLAÐUR EIGANDI Mark Cuban,
eigandi Dallas Maverics, er mikill keppn-
ismaður og lætur í sér heyra á leikjum.
Lið hans skilar miklum tekjum en einnig
miklu tapi. AFP