Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 42
MARKAÐURINN 1. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR
Easy Jet hefur tilkynnt um að
meira tap verði á rekstri fyrsta
ársfjórðungs en gert var ráð fyrir.
Segir í tilkynningu frá félaginu
að hækkandi eldsneytisverð og
sú staðreynd að páskana beri upp
á annan ársfjórðung í stað þess
fyrsta, eins og í fyrra, tvöfaldi
fyrirséð tap. Það verði um 45
milljónir punda, 5,24 milljarðar,
en var 22 milljónir, 2,56 milljarð-
ar króna, í fyrra. Easy Jet heldur
sig þó við spár um aukinn hagnað
á árinu þar sem tekjur af öðrum
rekstri en miðasölu muni hækka
og kostnaðaraðhald mun halda
áfram að skila árangri.
Hlutabréf í EasyJet náðu þriggja
og hálfs árs hámarki í janúar
þegar uppi voru getgátur um
yfirtökutilboð frá FL Group. Þau
höfðu hins vegar lækkað um tæp
tvö prósent við lokun markaða í
gær. - hhs
TAPAR Á FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGI Easy Jet mun tap allt að 45 milljónum punda á fyrsta
ársfjórðungi 2006.
Fyrirséð tap hjá
Easy Jet
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar