Fréttablaðið - 01.03.2006, Síða 46

Fréttablaðið - 01.03.2006, Síða 46
MARKAÐURINN A U R A S Á L I N 1. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR18 H Á D E G I S V E R Ð U R Hagstjórn á Íslandi er í molum eins og sjá má á bílaflota landsmanna. Enn eru til þeir menn sem ekki hafa keypt sér Porche Cayenne eða Volkswagen Touraeg og enn er til fólk sem hefur ekki efni á að kaupa sér einbýlishús á Arnarnesinu. Aurasálin hefur meira að segja haft af því spurn- ir að maður nokkur hafi hætt við að vera í þrjár vikur á Kanarí um jólin af því hann hafði ekki efni á því eftir eyðsluna í pásk- afríinu á Maldíveyjum, vorfríið í Monte Carlo, sumarfríið í Toskana og haustferðirnar til Dúbaí og Jóhannesarborgar og jólainnkaupaferðina til Tókýó. Þessi félagi Aurasálarinnar þurfti að sætta sig við þá niðurlægingu að geta bara boðið fjölskyldunni upp á tvær vikur á Kanarí um jólin og er fyrir vikið spottaður og hæddur á hverjum degi í bankanum þar sem hann vinnur. Það er því rétt sem Steingrímur J. og Ögmundur segja að góðær- ið er ekki alls staðar. Hinn ágæti vinur Aurasálarinnar sem hér um ræðir hefur verið með sáran magaverk undanfarna daga vegna óvissunnar um gengi íslensku krónunnar. Hann full- yrðir að hið svokallaða matsfyr- irtæki Fitch sé í samsæri gegn sér og fjölskyldu sinni. Það er erfitt fyrir venjulegt launafólk að lifa mannsæmandi lífi á meðan gengi krónunnar heldur áfram að veikjast. Þetta er ástæðan fyrir því að svo margir Íslendingar þjást nú af gengisangist, eins og sálfræðing- arnir kalla það. Aurasálin skilur raunar ekki af hverju íslenska ríkið og bank- arnir tala við þessa leppalúða hjá Fitch. Hví er þeim hleypt inn í landið ef þeir ætla svo að fara að skrifa illa um okkur? Væri ekki nær að ríkisstjórnin sendi ein- faldlega tilkynningar til þessara fyrirtækja um hvert raunveru- legt ástand mála er hér á landi? Það er margsannað og alkunna um heim allan að Íslendingar eru öðrum fremri í viðskiptum og hagfræði nýja hagkerfisins. Svo eru menn að kippa sér upp við að einhverjir bólugrafnir tölfræði- lúðar frá útlöndum skilji ekki uppganginn hér á landi. Það er von Aurasálarinnar að greiningardeild lögreglunnar muni fá það hlutverk að vernda íslenskt hagkerfi gegn slíkum vágestum sem erlend matsfyrir- tæki eru. Það væri nær að grein- ingardeild lögreglunnar gæfi sjálf út lánshæfiseinkunn fyrir Ísland. Svo gæti líka verið ráð að bank- arnir á Íslandi tækju sig saman og keyptu þetta bölvaða Fitch og sæju til þess að þaðan komi hinn rétti sannleikur en ekki þessi dapurlegi öfundarvæll sem við höfum orðið vitni að. Fjárans Fitch ÍMARK, Félag markaðsfólks á Íslandi, er þverfaglegur félagsskapur einstaklinga sem hafa áhuga á markaðsmálum. Tilgangur félagsins er meðal annars að auka veg og virðingu markaðsmála hérlendis og stuðla að auknum skilningi á mikilvægi þeirra. „Félagsmönnum fjölgar ört og eru nú 550 talsins. Uppistaðan er nú aðilar úr auglýsinga- bransanum, markaðsdeildum fyrirtækja og aðrir sem hafa að gera með markaðsmál með beinum eða óbeinum hætti,“ segir Jóhannes Ingi Davíðsson, framkvæmdastjóri ÍMARK. „Í þessum bransa, sem einkennist af mikilli samkeppni, reynum við að skapa hlutlaust svæði þar sem jafnvel samkeppnisaðilar geta kynnt sér nýjar hugmyndir og skipst á skoð- unum. Við leggjum okkur fram við að efla faglegt starf og fræðslu og kynna nýjungar til sögunnar.“ ÍMARK STENDUR FYRIR ÝMSU ÍMARK stendur fyrir ýmsum uppákomum á ári hverju. Mánaðarlega eru hádegisfund- ir haldnir um markaðstengd efni sem eru í brennidepli eða áhugi er fyrir að ræða hverju sinni. Í október er Markaðsvikan hald- in en tilgangur hennar er að vekja athygli á faglegu markaðsstarfi og mikilvægi þess í nútíma viðskiptaumhverfi. Þá vikuna eru Markaðsverðlaun ÍMARK afhent því fyrirtæki sem hefur skarað fram úr í markaðsmálum á liðnu ári. Á sama tíma er val á Markaðsmanni Íslands kynnt en hann er jafnframt fulltrúi Íslands við val á Markaðsmanni Norðurlanda og Markaðsmanni Evrópu. Af annarri starf- semi ÍMARK má nefna námsferðir til útlanda og fagheimsóknir til fyrirtækja. ÍSLENSKI MARKAÐSDAGURINN OG LÚÐRAHÁTÍÐIN Hápunktur starfsemi ÍMARK er án efa Íslenski markaðsdagurinn og Lúðrahátíðin. „Dagurinn hefur venjulega hafist á ráð- stefnu, síðan hafa lúðrarnir verið afhentir fyrir athyglisverðustu auglýsingar ársins og ball svo haldið um kvöldið. Núna ákváðum við að brjóta upp þetta hefðbundna snið, héldum ráðstefnuna á Nordica og sameinuðum ballið og Lúðrahátíðina um kvöldið. Þetta tókst vel upp,“ segir Jóhannes. Ráðstefnan þetta árið fékk það for- vitnilega nafn “Geðheilbrigði vöru- merkja”. Nálgunin við það þema var að til þess að manneskja virki í umhverfi sínu þurfi hún að vera heil á geði. Það sama gildi með vörumerkin og á þau verði að líta sem eina heild, ekki nægi að þau líti vel út ef annað fylgir ekki með. Á ráðstefnunni töluðu ýmsir sérfræðing- ar, jafnt innlendir sem erlendir, og þótti vel hafa tekist við að fá sem flest sjónarmið inn í umræðuna. UNNIÐ MEÐ UNDIRMEÐVITUNDINA Tveir breskir sérfræðingar, þeir Ed Hebblethwaite, auglýsingastjóri hjá bresku auglýsingastofunni LOEWY, og Mark Holden, framkvæmdastjóri birtinga hjá bresku aug- lýsingastofunni PHD Group, vinna báðir með undirmeðvitund fólks. Hebblethwaite lýsti markaðssetningunni sem svo að það sem verið væri að auglýsa sé toppurinn á ísjakan- um sem gnæfir upp úr en það sem sé undir er raunveruleikinn og það verður að hanga saman. „Þegar þú hittir persónu þá finnurðu hvort hún er heil í gegn. Ef manneskja brosir við manni þá athugar maður hvort það nær til augnanna og þá trúir maður henni. Þetta er eiginlega mergurinn málsins í hans máli,“ segir Jóhannes. Holden sagði frá samvinnu PHD og sér- fræðinga í taugasálfræði og taugavísindum sem kallast „neuroplanning“. Með því að sýna fólki auglýsingar og meta út frá viðbrögðum í starfsemi heilans hvernig það bregst við hafa þeir séð að mismunandi miðlar hafa áhrif á mismunandi svæði í heilanum. Starf birtinga- fyrirtækja er að meta hvaða auglýsingar eiga heima í hvaða miðli. Þeir hafa notað þessa nýstárlegu aðferð og nýtt með öðrum hefð- bundnari og hefur það reynst vel. ALÞJÓÐLEGT FYRIRTÆKI BYGGT UPP FRÁ GRUNNI Frumherjinn Reza Dehgani nálgast markaðs- málin út frá allt öðru sjónarhorni. Á ráð- stefnunni sagði hann frá því hvernig honum tókst á tiltölulega stutt- um tíma að byggja upp sterkt alþjóðlegt vöru- merki úr sama og engu. Hann vildi fara óvenju- lega leið að markmiði sínu en allt átti að vera fyrsta flokks. Dehgani hefur aldrei auglýst vörumerki sitt á hefð- bundinn hátt heldur auglýsir hann eingöngu að takmörkuðu leyti á internetinu. Í staðinn leggur hann áherslu á gæði og sérstöðu og gengur út frá því að fólk samsami sig vörunni og hugsi „þetta er ég“. MÖRKUN VANDASAMT FERLI Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmda- stjóri einstaklingssviðs Símans, hefur tekið þátt í einkavæðingarferli Símans frá fyrsta degi. Hún stiklaði á stóru um mörkun Símans og þá vinnu sem fylgdi því að fara úr að vera ríkisfyrirtækið Landsíminn yfir í framsækna fyrirtækið Símann. Telja sérfræðingar það ferli hafa tekist vel upp og hefur það jafnvel vakið athygli út fyrir landsteinana. „Það þarf kannski ekki annað en að horfa á fyrirtækið til að sjá að þetta hefur gengið vel,“ segir Jóhannes. Guðjón H. Pálsson, framkvæmdastjóri GCI á Íslandi, talaði líka um mörkun fyrirtækja út frá því að fyrirtæki þurfa að greina markað- inn sem þau starfa á og meta áhættuna að baki þeirri mörkunarleið sem valin hefur verið. Það sé ekki sjálfgefið að mörkun einstakra vara (Product Branding) sé valin framyfir fyrirtækjamörkun (Corporate Branding), þar sem íslensk fyrirtæki eru eða verða flest hver þjónustufyrirtæki á innflutningsmarkaði. KB OG HVÍTA HÚSIÐ Í GÓÐUM MARKAÐSMÁLUM IMG Gallup hefur frá árinu 1999 í samstarfi við ÍMARK og SÍA staðið fyrir árlegri mark- aðskönnun meðal 360 stærstu auglýsenda landsins. Markmið könnunarinnar er að meta væntingar markaðsstjóra til auglýsingamark- aðarins. Einar Einarsson, framkvæmdastjóri IMG Gallup, kynnti niðurstöðurnar á ráð- stefnunni. Spurt var um þá auglýsingastofu sem markaðsstjórar telja skara fram úr í dag og var röð efstu stofanna kynnt. Hvíta Húsið, Ennemm og Íslenska auglýsingastofan lentu í efstu sætunum í þessari röð. Jafnframt var spurt um það fyrirtæki sem þykir hafa staðið sig best í markaðsmálum. KB banki og Síminn skiptu um sæti þannig að KB banki smeygði sér upp í efsta sæti listans. Landsbankinn stökk úr fimmta sæti í það þriðja. Af niður- stöðum könnunarinnar að dæma bendir flest til þess að árið í ár verði líflegt á auglýsinga- markaði því fáar vísbendingar eru um að markaðsstjórar geri ráð fyrir samdrætti. BROADWAY BREYTT Í HOLLYWOOD Á föstudagskvöldið, eftir vel heppnaða ráð- stefnu, var blásið til Lúðrahátíðar á Broadway, sem hafði verið umbreytt í Hollywood fyrir kvöldið. Þar voru íslensku auglýsingaverð- launin veitt þeim auglýsingum sem þykja hafa skarað fram úr á árinu. Að þessu sinni var það Lýður Oddsson Lottóvinningshafi, sem orðinn er heimilisvinur flestra lands- manna, sem sópaði til sín fjórum verðlaun- um af tólf. „Eftir verðlaunaafhendinguna var svo diskó fram eftir nóttu með Dadda diskó og skemmti fólk sér konunglega,“ segir Jóhannes, að vonum ánægður með útkomu Íslenska markaðsdagsins enda sá fyrsti sem hann tekur þátt í að skipuleggja í starfi fram- kvæmdastjóra ÍMARK. JÓHANNES INGI DAVÍÐSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI ÍMARKS Þetta árið var ákveðið að brjóta upp hefðbundið snið Íslenska markaðsdagsins. Ráðstefna var haldin á Nordica að degi til. Um kvöldið voru svo íslensku auglýsingaverðlaun- in veitt við hátíðlega athöfn á Broadway sem hafði verið umbreytt í Hollywood fyrir kvöldið. Síðan var dansað við dunandi diskó fram eftir nóttu og skemmti fólk sér vel. Vörumerki þurfa líka að vera heil á geði Einn dagur á ári er sérsniðinn að áhugamálum auglýsinga- og markaðsfólks en þá er Íslenski mark- aðsdagurinn haldinn með pompi og prakt. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir hitti Jóhannes Inga Davíðsson, framkvæmdastjóra ÍMARK, á ráðstefnunni um geðheilbrigði vörumerkja. EINN AF MÖRG- UM ÁHUGA- VERÐUM FYR- IRLESURUM Á RÁÐSTEFNUNNI Reza Dehghani, stofnandi og eig- andi alþjóðlegu fatakeðjunnar Criminal Clothing, sagði frá því hvern- ig hann byggði alþjóðlega fata- keðju frá grunni á örskömmum tíma.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.