Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 47

Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 47
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 Fyrirtækið Netsamband boðaði í lok síðustu viku til kynning- arfundar með fulltrúum danska hugbúnaðarfyrirtækisins Gate- trade sem hefur hug á því að hasla sér völl hér á landi. Fyrirtækið býður umgjörð utan um rafræn viðskipti og segir hana stórlækka vörukostnað fyrirtækja og stofnana. Lausn fyrirtækisins er svo sniðin að helstu upplýsingakerfum sem fyrirtæki og stofnanir nota. Ragnar Marteinsson er í forsvari fyrir fyrirtæk- ið Netsamband, en það hefur umboð fyrir lausn Gatetrade hér, og Stako AB í Svíþjóð sem býður Gatetrade-lausnir þar. Fyrirtækið var stofnað árið 2000 af Danske Bank, Post Danmark, TDC og Mærsk Data. Reksturinn gekk hins vegar brösótt fyrstu árin, en eftir að fyrirtækið var svo selt í heild sinni til Consolidated Holdings árið 2004 og nýir menn ráðn- ir að stjórn þess fór rekstur- inn að ganga betur. Claus Johansen forstjóri segir heild- arveltu Gatetrade í fjórum Norðurlandanna nú nema um 40 milljörðum króna. Búnaðurinn heldur utan um viðskipti á milli fyrirtækja, svo sem tilboðs- gerð, pantanir og reikningshald. Claus tók dæmi af danska fyr- irtækinu DLG sem náð hafi að draga úr kostnaði við innkaup á kaffi fyrir fyrirtækið um 30 prósent. Gatetrade aðstoðar við innleiðingu og aðlögun búnaðar- ins, sem er vefviðmót, þannig að ekki þarf að koma til kaupa á hug- eða vélbúnaði. Búnaðurinn skiptist í þrjá hluta eftir virkni, Marketplace, eAuction og eProc- urement. - óká Spara peninga rafrænt Gatetrade vill hasla sér völl hér í viðskiptum fyrirtækja og stofnana. RAGNAR MARTEINSSON OG CLAUS JOHANSEN Ragnar er framkvæmdastjóri Netsambands og Claus er forstjóri Gatetrade í Danmörku. MARKAÐURINN/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.