Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 64
1. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Okkar einlægur og ástkær unnusti, sonur,
bróðir, tengdasonur, barnabarn og mágur,
Tómas Ýmir Óskarsson
til heimilis að Keilusíðu 6h, Akureyri,
lést af slysförum laugardaginn 25. febrúar sl.
Útför auglýst síðar.
Ásdís Hanna Bergvinsdóttir
Óskar Snæberg Gunnarsson Jóhanna Kristín Arnþórsdóttir
Lene Zacharíassen
Íris Björk Óskarsdóttir Eyþór Freyr Óskarsson
Bergvin Jóhannsson Sigurlaug Anna Eggertsdóttir
Gunnar Rögnvaldsson Kristín Óskarsdóttir
Björg Zacharíassen
Sigríður Valdís, Anna Bára og Berglind Bergvinsdætur
og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir okkar,
Kristbjörg Pétursdóttir
fv. kennari, Holtagerði 84 Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn
21. febrúar. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju
föstudaginn 3. mars kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er vinsamlega bent á hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð. Fyrir hönd vandamanna,
Þórir Hjálmarsson
Magni Hjálmarsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Laufey Maríasdóttir
Dalbraut 27, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
24. febrúar. Jarðarförin fer fram mánudaginn 6. mars
kl. 15.00 í Neskirkju. Blóm og kransar vinsamlega
afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á líknarfélög.
Ragnheiður Ása Ragnarsdóttir
María Ragnarsdóttir
Eiríkur G. Ragnarsson
Þórir S. Ragnarsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
HARRY BELAFONTE (1927)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Þú getur fangelsað
söngvarann en ekki
sönginn.“
Harry Belafonte er söngvari sem
kannski er þekktastur fyrir
bananasönginn þar sem hann
syngur Dey-O með innlifun. Hann
starfar nú að mannúðarmálum.
Á þessum degi árið 1989
var leyfð sala og framleiðsla
á áfengu öli eftir 74 ára hlé.
Þennan dag seldust 340
þúsund dósir af bjór en þar
af keyptu höfuðborgarbúar
stærstan hluta, eða 213
þúsund dósir. Egils Gull og
Löwenbrau virtust eiga miklum
vinsældum að fagna enda
seldust þær tegundir upp á
stuttum tíma.
Segja má að Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins hafi komist
vel frá þessum viðskiptum
enda komu um sextíu milljónir
króna í kassa verslunarinnar
á þeim fyrstu þremur dögum
sem bjórinn var leyfður. Langar
biðraðir mynduðust við verslanir
ÁTVR og létu margir það ekki á
sig fá að standa í lengri tíma í
miklum kulda til að komast inn
í búðirnar.
Mikil gleði ríkti á þeim
veitingastöðum þar sem sýnd
hafði verið sú fyrirhyggja að
sækja um og fá söluleyfi fyrir
bjór. Lögreglan hafði þó tals-
verðan viðbúnað af ótta við að
ölóðir menn myndu ráfa um
bæinn. Allt fór þó vel fram.
Dagurinn vakti nokkra
athygli útlendinga og höfðu
erlendir fjölmiðlar sent frétta-
menn á staðinn til að fylgjast
með umskiptunum og drykkju-
venjum Íslendinga.
Gert var ráð fyrir að milljarður
króna rynni til ríkisins á þessu ári
af bjórsölunni og var sú tala sett
í fjárlögin.
ÞETTA GERÐIST > 1. MARS 1989
Langþráður bjórdagur rennur upp
MERKISATBURÐIR
1692 Nornaveiðar hefjast í þorp-
inu Salem í Bandaríkjunum.
1905 Talsímaskrá Reykjavíkur,
fyrsta símaskráin, er gefin
út. Í henni voru nöfn 99
símnotenda.
1932 Syni flugkappans Charles
Lindbergh er rænt af heimili
hans.
1964 Davíð Stefánsson skáld frá
Fagraskógi andast, 69 ára.
1968 Sveitasöngvararnir Johnny
Cash og June Carter ganga í
það heilaga.
1970 Ísland gerist aðili að
Fríverslunarsamtökum
Evrópu, EFTA.
1988 Skylt verður að aka með
ljósum allan sólarhringinn á
Íslandi.
Sigríður Erlendsdóttir, Hæðar-
garði 33, Reykjavík, lést laugar-
daginn 25. febrúar.
Teitur Kristjánsson, Digranes-
heiði 13, Kópavogi, lést á heimili
sínu föstudaginn 24. febrúar.
Halldór Guðmundsson, fyrr-
verandi rafvirkjameistari Pósts
og Síma, Suðurengi 30, Selfossi,
andaðist á Landspítala við Hring-
braut sunnudaginn 26. febrúar.
Rannveig Sigurðardóttir,
Lautasmára 1, Kópavogi, lést á
líknardeild Landakots föstudag-
inn 24. febrúar.
Þorvaldur Óskarsson, Mánagötu
3, Grindavík, lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja föstudaginn
24. febrúar.
JARÐARFARIR
13.00 Elísabet Sigurbjörg
Thorarensen, Dalbraut 27,
Reykjavík, verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju.
13.00 Steinunn Magnúsdótt-
ir verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
15.00 Ágústa María Ahrens,
áður til heimilis í Barmahlíð
19, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
„Þetta er bara dagur eitt en auðvitað er
maður fullur bjartsýni,“ segir Her-
mann Guðmundsson nýráðinn forstjóri
Olíufélagsins. Hermann hefur síðast-
liðið þrjú og hálft ár starfað sem fram-
kvæmdastjóri Bílanausts sem keypti
ásamt öðrum fjárfestum allt hlutafé í
Olíufélaginu í byrjun febrúar.
„Eftir að hópurinn sem keypti
félagið var búinn að ráða ráðum sínum
fannst þeim eðlilegast að biðja mig um
að taka að mér þetta starf þar sem ég
hafði unnið með þeim í nokkur ár á
sama tíma og ég er einn af stærri hlut-
höfum í þessu félagi,“ útskýrir Her-
mann en segir allt of snemmt að segja
hvort nýi forstjórinn vilji breyta ein-
hverju. „Félagið er geysilega vel rekið
og engin aðkallandi þörf á breyting-
um. Nýjum mönnum fylgja nú samt
alltaf einhverjar áherslubreytingar,“
segir hann og hlakkar til að takast á
við það verkefni að stýra Olíufélaginu
sem er í dag stærsti söluaðili eldsneyt-
is á Íslandi og seldi á síðasta ári um
350 milljónir lítra af eldsneyti.
Hann mun þó sakna margs úr sínu
gamla starfi. „Þar er mikið af skemmti-
legu fólki og ég var á kafi í alls konar
verkefnum sem við vorum að undir-
búa fyrir sumarið en ég missi af að
ganga í gegnum og klára,“ segir Her-
mann sem verður þó áfram með putt-
ana í málum Bílanausts enda er hann
einnig framkvæmdastjóri móðurfé-
lagsins sem á bæði Olíufélagið og Bíla-
naust.
Mikið er um að vera hjá Hermanni
bæði í vinnu og einkalífi en hann hefur
verið að hamast við að flytja undan-
farið. Fyrir hálfu ári keypti fjölskyld-
an hús við Sævang í Hafnarfirði og
hefur verið að dunda sér við að breyta
og innrétta upp á nýtt. Í Hafnarfirði
hefur Hermann búið í sextán ár og
líkar vel. „Konan mín er innfæddur
gaflari en ég er aðfluttur andskoti eins
og þeir segja heimamenn,“ segir hann
glettinn.
„Ég er mikill fótboltasjúklingur,“
segir Hermann inntur eftir áhugamál-
um. „Ég er Manchester United-maður
en Frammari inn við beinið,“ segir
hann hlæjandi en Hermann spilaði
sjálfur með Haukum í Hafnarfirði í
tuttugu ár en hætti fótboltaiðkun síð-
asta sumar þegar hann sleit vöðva í
læri. „Þá sá ég fram á að þetta væri
orðið gott enda hættur að taka fram-
förum,“ segir hann kíminn. ■
HERMANN GUÐMUNDSSON: RÁÐINN FORSTJÓRI OLLÍUFÉLAGSINS
Frammari inn við beinið
FÓTBOLTASJÚKLINGUR OG AÐFLUTTUR ANDSKOTI Hermann hefur búið í Hafnarfirði í sextán ár. Hann segist vera mikill fótboltasjúklingur og heldur mikið
upp á Manchester United. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFMÆLI
Salmann Tamimi, for-
maður Félags múslima
á Íslandi, er 51 árs.
Árni Johnsen, fyrrver-
andi þingmaður, er
62 ára.
Afmæli
70 ára afmæli
Í dag, 1. mars, er sjötugur
WILLARD FISKE
ÓLASON
fyrrverandi skipstjóri og
útgerðarmaður í Grindavík.
Hann og eiginkona hans, Valgerður Gísladóttir,
bjóða ættingjum og vinum að gleðjast með
fjölskyldunni föstudaginn 3. mars kl. 19-23 í
Eldborg, húsi Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi.
Gjafir vinsamlega afþakkaðar, en söfnunarkassi
ætlaður líknarsjóði Lionsklúbbs Grindavíkur verður
á staðnum.
ANDLÁT
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson