Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 68

Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 68
 1. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR Dagskrá Listahátíðar hefur verið gerð opinber. Um sex hundruð listamenn taka þátt í hátíðinni í vor og boðið verður upp á um 50 viðburði. „Þarna verður rjóminn af öllum þeim sem eru á leiðinni á toppinn – eða eru þar nú þegar,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir, sem er kynningar- stjóri Listahátíðar í Reykjavík og þekkir dagskrána ofan í kjölinn. Þegar hún er spurð hvað henni finnst markverðast af öllum þeim aragrúa dagskrárliða sem í boði eru, þá nefnir hún fyrst frönsku óperuna Föðurlandið, sem franska tónskáldið Joseph-Guy Roarts skrif- aði í byrjun 20. aldar. Þetta er eina ópera heimsbókmenntanna sem gerist á Íslandi samin af erlendu tónskáldi. Hún fjallar um franskan sjómann sem lifir af sjóslys úti fyrir ströndum landsins og verður ástfanginn af íslenskri stúlku. Það er Sinfóníuhljómsveit Íslands sem flytur Föðurlandið ásamt söngvurunum Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Bergþóri Pálssyni og Gunnari Guðmundssyni. „Mér finnst þetta ákaflega spennandi, ekki síst af því að þessi ópera gleymdist svo lengi. Þetta hefur verið vel geymt leyndarmál um ástir íslenskrar stúlku og fransks sjómanns, því auðvitað var slíkt byrjað löngu áður en Kaninn kom.“ Eitt stærsta atriði dagskrárinn- ar verður síðan að teljast tónleikar með afrísku söngkonunni Miriam Makeba, einum áhrifamesta lista- manni 20. aldar. „Hún ætlar að halda grand finale á Íslandi, klára ferilinn hér. Henni fannst það við hæfi, enda er hún mikill friðarhöfðingi og Ísland er eina landið í Evrópu sem hún hefur ekki sungið í,“ segir Guðrún. Dagskrá hátíðarinnar verður óvenju fjölbreytt í ár, alls eru um 50 atriði á dagskránni og fram koma 400 íslenskir listamenn og 200 erlendir. Meðal nokkurra af hápunktunum má nefna brasilíska nútímadansflokkinn Grupo Corpo, pólska harmonikutríóið Motion Trio, sem lætur harmonikurnar hljóma öðruvísi en áður hefur þekkst, búlgarska kvennakórinn Angelite, ensku endurreisnar- söngsveitina I Fagiolini og djasstríó Anders Widmark, sem flytur tónlist úr óperunni Carmen í eigin djass- útgáfu. Listahátíð hefst 12. maí og stend- ur til 2. júní. Í gær var opnuð ný heimasíða Listahátíðar á slóðinni www.listahatid.is þar sem lesa má um alla dagskrárliðina, skoða mynd- ir og hlýða á tónlist. ■ pörupiltar á Kringlukránni miðvikudagkvöld kl. 22:00 Uppistand, dans, söngur, glens og mikið grín! Leikkonur: Alexía, Arnbjörg Hlíf, Halldóra Geirharðs, Ólafía Hrönn, Halla Margrét, Hildigunnur, Ingrid, Sólveig og María. Aðgangseyrir 1200 kr. Fös. 3. mars. kl. 20 örfá sæti laus Fös. 10. mars. kl. 20 Lau. 18. mars. kl. 20 SÝNINGUM LÝKUR Í MARS! Ef eftir Valgeir Skagfjörð/ Einar Má Guðmundsson Þri. 28. feb. kl. 09.00 UPPSELT Mán. 6. mars. kl. 09.00 UPPSELT Þri. 7. mars. kl. 09.00 UPPSELT Mið. 8. Mars. kl. 09.00 UPPSELT VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur fim. 2. mars kl. 20 - forsýning lau. 4. mars kl. 20 - frumsýning sun. 5. mars kl. 20 lau. 11. mars kl. 20 sun.12. mars kl. 20 fös. 17. mars kl. 20 sun. 19. mars kl. 20 fös. 24. mars kl. 20 sun. 26. mars kl. 20 Hátíðin tekur á sig mynd DAGSKRÁIN KYNNT Efnt var til blaðamannafundar í Iðnó í gær þar sem Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, og fleiri aðstandendur hennar kynntu fjölskrúðuga dagskrá Listahátíðarinnar í vor. MIRIAM MAKEBA Ætlar að ljúka sögulegum ferli sínum með tónleikum í Laugardals- höllinni. NFS ER Á VISIR.IS Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.