Fréttablaðið - 01.03.2006, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
The pursuit of perfection
FJARLÆGÐINA
Þegar Lexus IS250 ber þig mjúklega eftir veginum og
þú finnur aflið, sem þér er gefið, verður fjarlægðin nálæg.
Fyrr en varir ertu kominn á áfangastað og þér líður eins
og þú hafir aldrei lagt af stað. Innrétting,
munaðarþægindi og tæknibúnaður, sem tekur öðru
fram, eru umgjörð um líf þeirra sem vilja ná langt. Á
Lexus IS250 verður fjarlægur draumur að veruleika.
Sjáðu, snertu og prófaðu Lexus IS250. Við erum
sannfærðir um að niðurstaðan verður gagnkvæm
virðing. Það mun ef til vill koma þér á óvart en við sáum
það fyrir. Við gerum nefnilega sömu kröfur til lúxusbíla
og þú og njótum þess að tvinna saman afl og hugvit.
Verð frá 3.800.000 kr.
ÞÚ SNERTIR
Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
31
59
6
0
2/
20
06
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
Um daginn vaknaði ég við fugla-söng í fyrsta sinn á þessu vori,
já vori segi ég því enn og aftur hef
ég látið fífla mig af sólinni og birt-
unni. Tilfinningin segir mér að
vorið sé komið þótt skynsemin
standi á hinni öxlinni og minni á að
íslenskur vetur stendur iðulega
langt fram á vor. Ég er svo sem
ekki ein um að hafa látið plata mig.
Hjá samferðafólkinu tek ég eftir
að vorfiðringurinn er alls staðar
að vakna með tilheyrandi gleði og
tilhlökkun. Og það er vitanlega
ekki að ástæðulausu sem við
höfum látið blekkjast svona mörg.
DAG eftir dag er annaðhvort hlýtt
eða bjart, nema hvort tveggja sé.
Vetrargosarnir í garðinum eru
farnir að blómstra þó að ekki megi
gleyma því að auðvitað er raun-
veruleg ástæða fyrir því að þetta
fínlega en jafnframt harðgerða
blóm er einmitt kennt við vetur-
inn. Svo eru runnarnir líka víða
farnir að bruma og þar sem skjól-
sælast er jafnvel komnir að því að
springa út. Allt styður þetta til-
finninguna fyrir því að vorið sé
komið.
Á MÓTI kemur svo reynslan.
Hvað hefur maður ekki oft látið
taka sig í bólinu með þessum hætti
áður. Verið sannfærður um að nú
væri vorið komið og setið svo uppi
með löng kuldatímabil og hret á
hret ofan með tilheyrandi von-
brigðum. Þá er nú betra að hlusta á
skynsemina og muna að vorið
kemur ekki á góunni hér á Íslandi.
Iðulega er það ekki einu sinni
komið á sjálfan sumardaginn
fyrsta þegar harpa heilsar. En
kannski er vorið bara hugarástand.
Og ef svo er, má þá ekki bara trúa
á tilfinninguna og gefa skynsem-
inni langt nef. Ákveða að vorið sé
komið, njóta þessara björtu og fal-
legu daga og taka svo bara þann
slag þegar hretið kemur.
Í DAG er fyrsti dagur marsmán-
aðar sem er býsna langur mánuð-
ur, að minnsta kosti miðað við
febrúar. Mars getur svo sannar-
lega verið kaldur mánuður líka og
veðrið býsna rysjótt. Eitt hefur
þessi ágæti mánuður þó fram yfir
undangengna fjóra mánuði. Það er
blessuð birtan sem öllu breytir. Og
hér getum við leyft reynslunni að
styðja við tilfinninguna. Það er
liðin tíð að venjulegur vinnudagur
hefjist í myrkri og ljúki svo líka í
myrkri. Sú tíð rennur ekki upp að
nýju fyrr en í haust og það er langt
þangað til.
Lifi birtan!
����������
�����������
�������������
AUGL†SINGASÍMI
550 5000