Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 80

Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 The pursuit of perfection FJARLÆGÐINA Þegar Lexus IS250 ber þig mjúklega eftir veginum og þú finnur aflið, sem þér er gefið, verður fjarlægðin nálæg. Fyrr en varir ertu kominn á áfangastað og þér líður eins og þú hafir aldrei lagt af stað. Innrétting, munaðarþægindi og tæknibúnaður, sem tekur öðru fram, eru umgjörð um líf þeirra sem vilja ná langt. Á Lexus IS250 verður fjarlægur draumur að veruleika. Sjáðu, snertu og prófaðu Lexus IS250. Við erum sannfærðir um að niðurstaðan verður gagnkvæm virðing. Það mun ef til vill koma þér á óvart en við sáum það fyrir. Við gerum nefnilega sömu kröfur til lúxusbíla og þú og njótum þess að tvinna saman afl og hugvit. Verð frá 3.800.000 kr. ÞÚ SNERTIR Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 31 59 6 0 2/ 20 06 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � Um daginn vaknaði ég við fugla-söng í fyrsta sinn á þessu vori, já vori segi ég því enn og aftur hef ég látið fífla mig af sólinni og birt- unni. Tilfinningin segir mér að vorið sé komið þótt skynsemin standi á hinni öxlinni og minni á að íslenskur vetur stendur iðulega langt fram á vor. Ég er svo sem ekki ein um að hafa látið plata mig. Hjá samferðafólkinu tek ég eftir að vorfiðringurinn er alls staðar að vakna með tilheyrandi gleði og tilhlökkun. Og það er vitanlega ekki að ástæðulausu sem við höfum látið blekkjast svona mörg. DAG eftir dag er annaðhvort hlýtt eða bjart, nema hvort tveggja sé. Vetrargosarnir í garðinum eru farnir að blómstra þó að ekki megi gleyma því að auðvitað er raun- veruleg ástæða fyrir því að þetta fínlega en jafnframt harðgerða blóm er einmitt kennt við vetur- inn. Svo eru runnarnir líka víða farnir að bruma og þar sem skjól- sælast er jafnvel komnir að því að springa út. Allt styður þetta til- finninguna fyrir því að vorið sé komið. Á MÓTI kemur svo reynslan. Hvað hefur maður ekki oft látið taka sig í bólinu með þessum hætti áður. Verið sannfærður um að nú væri vorið komið og setið svo uppi með löng kuldatímabil og hret á hret ofan með tilheyrandi von- brigðum. Þá er nú betra að hlusta á skynsemina og muna að vorið kemur ekki á góunni hér á Íslandi. Iðulega er það ekki einu sinni komið á sjálfan sumardaginn fyrsta þegar harpa heilsar. En kannski er vorið bara hugarástand. Og ef svo er, má þá ekki bara trúa á tilfinninguna og gefa skynsem- inni langt nef. Ákveða að vorið sé komið, njóta þessara björtu og fal- legu daga og taka svo bara þann slag þegar hretið kemur. Í DAG er fyrsti dagur marsmán- aðar sem er býsna langur mánuð- ur, að minnsta kosti miðað við febrúar. Mars getur svo sannar- lega verið kaldur mánuður líka og veðrið býsna rysjótt. Eitt hefur þessi ágæti mánuður þó fram yfir undangengna fjóra mánuði. Það er blessuð birtan sem öllu breytir. Og hér getum við leyft reynslunni að styðja við tilfinninguna. Það er liðin tíð að venjulegur vinnudagur hefjist í myrkri og ljúki svo líka í myrkri. Sú tíð rennur ekki upp að nýju fyrr en í haust og það er langt þangað til. Lifi birtan! ���������� ����������� ������������� AUGL†SINGASÍMI 550 5000

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.