Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 2
2 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
�����������������������������
�������������������
SLYS Jónas Kristjánsson, ökumað-
ur jeppans sem féll niður um
sprungu á Hofsjökli á laugardag-
inn var, er kominn af gjörgæslu
Landspítala - háskólasjúkrahúss
og er líðan hans góð eftir atvikum.
Meiðsl hans eru ekki eins alvar-
leg og óttast var í fyrstu. Hann
tognaði og er talsvert bólginn auk
þess sem hann hlaut ýmsa minni
áverka. Hefur hann sjálfur óskað
eftir að verða fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri til hvíldar
og aðhlynningar við fyrsta tæki-
færi en hann og Tómas Ýmir Ósk-
arsson, sem lést í slysinu, eru
báðir frá Akureyri. - aöe
Slysið á Hofsjökli:
Ökumaðurinn
áfram á spítala
LÖGREGLUMÁL Játning liggur fyrir
vegna hins vopnaða ráns í lyfja-
versluninni Apótekaranum að
Smiðjuvegi í síðustu viku og telst
málið upplýst að sögn lögreglu í
Kópavogi sem fór með rannsókn
málsins.
Ógnaði maðurinn starfsfólki í
lyfjaversluninni með búrhnífi og
komst á brott með talsvert magn
rítalíns þótt fyrir liggi að hann var
á höttunum eftir sterkari lyfjum.
Hann hefur margoft áður komist í
kast við lögin. - aöe
Ránið í Apótekaranum:
Játning liggur
fyrir í málinu
FUGLAFLENSAN Fræðimenn óttast
ekki að fuglaflensan geti orðið það
skæð að heilu fuglastofnunum stafi
ógn af henni.
Ólafur Níelsen, fuglafræðingur
á Náttúrufræðistofnun Íslands,
segir ástæðulaust að óttast að
flensan geti útrýmt tegundum.
„Fuglar deyja eins og önnur dýr úr
veikindum og það eru til mörg
dæmi um að fuglar hafi dáið tugum
og jafnvel hundruð þúsundum
saman úr sjúkdómum án þess að
það hafi haft áhrif á stofna.“
Ólafur segir fuglastofna sjaldn-
ast í kyrrstöðu, þeir ýmist stækki
eða minnki og ekki verði miklar
breytingar á þeim til lengri tíma
litið. - bþs
Fjölmargar tegundir veikjast:
Fuglastofnar
ekki í hættu
BRESKIR SPÖRFUGLAR Fuglafræðingar hafa
ekki áhyggjur af afdrifum heilu fuglastofn-
anna þrátt fyrir fuglaflensu.
NORDICPTHOTOS/GETTY IMAGES
STJÓRNMÁL Nýr stjórnmálaflokk-
ur, Framfylkingarflokkurinn,
hefur verið stofnaður á Akureyri
og mun flokkurinn bjóða fram
lista á Akureyri í sveitarstjórn-
arkosningunum í vor.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun Hólmar Örn Finns-
son, eftirlitsfulltrúi skattstjórans
á Akureyri, að líkindum skipa
efsta sæti framboðslistans en
unnið er að niðurröðun á listann.
Framboðslistinn verður ein-
göngu skipaður ungu fólki og
helstu baráttumál Framfylking-
arflokksins lúta að bættum hag
ungra Akureyringa.
- kk
Bæjarpólitíkin á Akureyri:
Nýr flokkur í
bæjarmálin
SPURNING DAGSINS
Hefðum við unnið landsleik-
inn ef við hefðum bara spilað
við Trínidad?
Nei, það hefðum við ekki gert. En
þetta staðfestir það enn á ný hvað
tóbak er óhollt.
Eggert Skúlason er óhress með tap íslenska
landsliðsins í knattspyrnu gegn Trínidad og
Tóbagó á þriðjudag.
MOSKVA, AP Íranar og Rússar virt-
ust upp á kant hverjir við aðra í
upphafi nýrra viðræðna í Moskvu
í gær varðandi sameiginlegt verk-
efni þeirra um auðgun úrans í
Rússlandi. Slík samvinna gæti
auðveldað eftirlit með kjarnorku-
áætlun Írana.
Rússar hafa farið fram á að
Íranar stöðvi alla auðgun úrans á
heimavelli áður en til samvinnu
getur komið, en við komuna til
Moskvu í gær sagði Ali Larijani,
helsti talsmaður Írana í þessum
viðræðum, það af og frá að Íranar
gengju að slíku samkomulagi. - smk
Kjarnorkumál Írans:
Íranar standa
fast á sínu
KJARNAKLJÚFUR Starfsmenn vinna við
kjarnakljúf í Íran. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STÓRIÐJA Tryggvi Þór Herberts-
son, forstöðumaður Hagfræði-
stofnunar Háskóla Íslands, telur
efnahagsleg áhrif Fjarðaáls og
Kárahnjúkavirkjunar á þenslu
ofmetin og segir breytingar á fjár-
málamarkaði og vanbúinni hag-
stjórn um að kenna.
Á upplýsingafundi Landsvirkj-
unar um Kárahnjúkavirkjun í gær
ræddi Tryggvi um þjóðhagsleg
áhrif Fjarðaáls og Kárahnjúka-
virkjunar.
Snemma árs 2007 verður
Fjarðaál tilbúið og sala raforku
frá Kárahnjúkavirkjun mun hefj-
ast samkvæmt áætlunum. Full
starfsemi mun hefjast í október
sama ár. 200 milljarða kostnaður
við framkvæmdirnar mun dreif-
ast á tímabilið milli 2003 og
2007.
Tryggvi telur efnahagsleg áhrif
geta valdið þenslu til skamms tíma
ef stjórnvöld halda ekki rétt á spil-
unum og bendir á að farvegir pen-
ingamálastefnunnar séu ekki að
virka sem skyldi í dag. En hann
segir önnur áhrif vega þyngra en
framkvæmdirnar og nefnir sem
dæmi lækkun bindiskyldu Seðla-
bankans 2002, skuldabréfaútgáfu
útlendinga 2005 og ýmis hag-
stjórnarmistök. Aðaláhrifin séu
þó breytingar á íbúðalánamark-
aði, innkoma bankanna á fast-
eignamarkað 2004, hækkað láns-
hlutfall og lágmarkslán. - sdg
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON OG FRIÐRIK
SOPHUSSON FORSTJÓRI LANDSVIRKJUNAR
Tryggvi Þór var einn af fimm framsögu-
mönnum og Friðrik var fundarstjóri á fund-
inum sem fór fram á Hótel Loftleiðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR
Upplýsingafundur Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun:
Efnahagsleg áhrif ofmetin
AFGANISTAN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti kom í óvænta
heimsókn til Afganistans í gær.
Hét hann þar því að Bandaríkja-
menn myndu standa við gefin lof-
orð um stuðning við uppbyggingu
þar í landi og myndu ekki „flýja af
hólmi“ þótt andóf ykist gegn veru
bandarískra hermanna þar. Hann
spáði því enn fremur að Osama bin
Laden myndi nást, þrátt fyrir að
fjögurra ára leit að honum hafi
enn ekki skilað árangri.
„Ég er vongóður um að hann
náist,“ sagði Bush á sameiginleg-
um blaðamannafundi með Hamid
Karzai, forseta Afganistans, í garði
embættisseturs hans í Kabúl.
Bush reyndi enn fremur að
stappa stálinu í bandaríska her-
menn sem þjóna við erfiðar
aðstæður í Afganistan og lýsti
samstöðu með ríkisstjórn Karzai,
en hún er mjög háð stuðningi Vest-
urlanda. Bush talaði við banda-
ríska hermenn á Bagram-flugvelli
við Kabúl, ásamt því að eiga við-
ræður við Karzai og fleiri afganska
ráðamenn.
Bush hét því að bin Laden, leið-
togi al-Kaída, og aðrir skipuleggj-
endur hryðjuverkaárásanna á
Bandaríkin yrðu eltir uppi og
dregnir til ábyrgðar. „Þetta er ekki
spurning um hvort, heldur
hvenær,“ sagði hann.
Þetta var fyrsta heimsókn
bandarísks forseta til Afganistans
síðan her Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra í NATO réðst
inn í landið í kjölfar 11. september-
árásanna haustið 2001 og steyptu
talibanastjórninni alræmdu, en bin
Laden byggði upp al-Kaída-hryðju-
verkanetið í skjóli hennar.
Bush hafði rúmlega fjögurra
stunda viðdvöl í Afganistan áður
en hann flaug áfram frá Kabúl til
Indlands. Á fyrsta viðkomustað
hans þar í landi, Nýju Delhí, söfn-
uðust tugþúsundir manna saman
til að mótmæla komu hans. Samn-
ingar um kjarnorkumálasamstarf
landanna eru efst á baugi viðræðna
Bush við indverska ráðamenn.
Loks mun Bush heimsækja Pak-
istan í vikulokin áður en hann held-
ur aftur heim á leið. Gríðarlegur
öryggisviðbúnaður er í kringum
þetta ferðalag bandarísku forseta-
hjónanna, enda kynda herskáir
múslimar undir hatri á Bandaríkj-
unum, ekki síst í Pakistan.
audunn@frettabladid.is
SENDIRÁÐ ENDUROPNAÐ Bandarísku forsetahjónin Laura og George W. Bush, Condol-
eezza Rice utanríkisráðherra, Ron Neumann, sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan, og
afganski forsetinn Hamid Karzai klippa á borða í nýrri sendiráðsbyggingu Bandaríkjanna í
Kabúl í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bush hvetur Karzai
til dáða í Afganistan
Bush Bandaríkjaforseti lagði leið sína óvænt til Afganistans í gær áður en hann
hóf boðaða heimsókn sína til Indlands. Hann sagði Bandaríkjamenn „ekki
myndu flýja af hólmi“ þótt andóf ykist gegn veru bandarísks herliðs í landinu.
LENTUR Í NÝJU-DELHÍ Bush og indverski
forsætisráðherrann Manmohan Singh
heilsast við komuna til Nýju-Delhí í gær-
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ALDRAÐIR Hjúkrunarheimilið Sól-
tún gerði heilbrigðisráðuneytinu
tilboð fyrir tveimur árum um að
fjölga hjúkrunarrýmum á lóðinni
Sóltún 2-4 í Reykjavík um meira
en helming en engin afgerandi
svör fengust frá ráðuneytinu. Til-
boðið hefur verið margítrekað.
„Það liggur í augum uppi að við
værum búin að byggja og værum
að fara að opna þetta heimili ef við
hefðum fengið svar. Við höfum
talað við ráðherra og stjórnmála-
menn og fengið góðan hljóm-
grunn,“ segir Anna Birna Jens-
dóttir, forstöðumaður Sóltúns.
Hún segir að viðbygging við
Sóltún gæti rúmað alla þá rúmlega
80 sem nú eru í bið á Landakoti en
hátt í 500 eldri borgarar bíði eftir
rými á hjúkrunarheimili á höfuð-
borgarsvæðinu. Legudagurinn
kosti 30-50 þúsund krónur og Sól-
tún geti gert þetta mun ódýrara.
„Það þarf ekki mikinn reikn-
ingshaus til að átta sig á því að
þetta er þjóðhagslega hagkvæmt.
Okkur hefur fundist með eindæm-
um að þeir sem fara með ríkisfé
skuli ekki átta sig á þessu og við-
halda því að fólk bíði við lítil lífs-
gæði á göngum sjúkrahúsa og
flakki þar jafnvel milli deilda.“
- ghs
SÓLTÚN OG NÁGRENNI Um 1.000 íbúar í Sóltúni og nágrenni gætu leitað stuðnings og
þjónustu í tengibyggingu sem yrði reist tæki heilbrigðisráðuneytið tveggja ára tilboði
Sóltúns um að ríflega tvöföldun hjúkrunarrýma.
Hjúkrunarheimilið Sóltún býðst til að tvöfalda hjúkrunarrými:
Gæti tæmt Landakot