Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 83
FIMMTUDAGUR 2. mars 2006 43
Hvernig er stemning-
in?
Hressileg stemn-
ing í anda Ameríku.
Veggirnir eru prýddir myndum af
leikurum frá Hollywood, fræg-
um hafnaboltaköppum og fleiru
áhugaverðu og til dæmis hangir
skotapilsið hans Jóns Páls til sýnis
á einum veggnum. Innréttingin er
aðallega úr viði, bekkir og stólar
prýddir leðri, umfram allt hlýleg
og heimilisleg stemning. Tónlistin
einkennist af gamaldags tónum
frá fyrri áratugum í bland við
íslenska slagara í anda Sálarinnar
og Nýdanskrar. Ruby Tuesday-veit-
ingastaðirnir hafa sprottið upp út
um allan heim og alls staðar er
sami fílingurinn.
Matseðillinn:
Það eru engir smáskammtar hér og
alvöru hamborgarar, rif og steikur
eru allsráðandi. Einnig er hægt að
fá alls kyns samlokur, pastarétti,
kjúklingasalöt og stærðarinnar sal-
atbar þar sem hver getur valið það
sem hann vill. Börnin fá svo eitt-
hvað fyrir sinn smekk á barnamat-
seðlinum en á honum má meðal
annars finna fiskinagga, kjúklinga-
lundir, spaghetti, hamborgara og
ostborgara.
Vinsælast:
Rifin eru vinsælust enda klassísk-
ur matur sem mettar vel. Með rif-
unum fylgja annaðhvort franskar,
bökuð kartafla eða ferskt salat eftir
því sem viðskiptavinurinn kýs. Með
öllum aðalréttum er svo hægt að
fá ferskt salat úr salatbarnum gegn
vægu gjaldi.
Réttur dagsins:
Boðið er upp á sérstakt hádegistil-
boð sem er að stærstum hluta eins
á hverjum degi. Þá eru á tilboði
borgari dagsins, kjúklingasalat,
pasta með kjúklingi, kjúklingasam-
lokur, djúpsteikt ýsa eða salatbar
sem samanstendur meðal annars
af ávöxtum, grænmeti, pasta og
kotasælu.
Í amerískum
anda
VEITINGASTAÐURINN
RUBY TUESDAY
SKIPHOLTI 19 OG HÖFÐABAKKA 9
A
Í
S
/
n
o
t
í
F
– Mest lesið
Auglýsing í Fréttablaðinu virkar einfaldlega betur
Fréttablaðið kemur skilaboðum þínum og fyrirtækis þíns til fleiri lesenda en
nokkuð annað dagblað. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 43% fleiri
Íslendingar undir 50 ára Fréttablaðið en Morgunblaðið. Það gefur augaleið
að auglýsingu þinni er best borgið í því dagblaði sem flestir lesa.
*
S
k
v
. F
jö
lm
ið
la
k
ö
n
n
u
n
G
a
llu
p
ja
n
ú
a
r
2
0
0
6
.
Nærð þú athygli
alls hópsins?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
4
5
2
Suður-afrískir dagar standa nú
yfir í Vínbúðum og má finna fjöl-
mörg vín á kynningarverði. Engin
vín frá Suður-Afríku hafa náð við-
líka vinsældum og vínin frá Drost-
dy-Hof. Rauðvínið Cape Red í 3
lítra kössum hefur slegið í gegn og
hefur undanfarin þrjú ár verið
mest selda vínið í Vínbúðum.
Fyrstu vín Drostdy-Hof komu á
markað fyrir þrjátíu árum og var
lagt upp með það að leiðarljósi að
bjóða vínunnendum upp á vönduð
blönduð vín sem mætti treysta á
að héldust stöðug frá ári til árs og
þyrftu ekki langa geymslu fyrir
neyslu. Allt hefur þetta gengið
eftir og þykja Drostdy-Hof vín
Suður-Afríku til sóma á alþjóða-
markaði, sérstaklega
ef borið er saman
verð og gæði.
Drostdy-Hof Cape Red
Kennt við Góðrarvon-
arhöfða, blanda úr
pinotage o.fl. afrískum
þrúgutegundum.
Alhliða ávaxtaríkt vín
þar sem uppruninn
leynir sér ekki. Djúp-
rautt vín með góða með-
alfyllingu, mjúkt og
ávaxtaríkt, með krydduð-
um jarðarkeim. Passar
flestu kjötmeti.
Kynningarverð á suður-
afrískum dögum 3.290 kr.
Drostdy Steen
Chenin Blanc
Chenin blanc
þrúgan nefnist
steen á afrikaans,
máli S-Afríku-
manna. Rætt er um
þessa þrúgu sem
næstu tískuþrúgu í
heiminum. Frísklegt
hvítvín með góðan
ferskan ávöxt og
tónað af blómkennd-
um kryddum. Gott
með fersku fisk-
fangi.
Kynningarverð á
suður-afrískum
dögum 2.990 kr.
DROSTDY HOF:
Vinsælasta vínið á kynningarverði