Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Einn léttur
ÍSKALDUR!
����������
����������
Dauðinn er skringilegur hluti af lífinu. Fæstir hugsa neitt
um hann en sjá hann meira sem
eitthvað sem við þurfum að hafa
áhyggjur af seinna. Maðurinn lifir,
verður gamall og deyr svo saddur
lífdaga. En það er ekki alltaf
þannig. Sumir deyja ungir. Og
stundum deyja lítil börn sem voru
aðeins rétt byrjuð að lifa. Það er
okkur mönnunum óskiljanlegt
þegar ung manneskja deyr.
EN í rauninni erum við sjálf börn.
Við höldum að við séum svo miklu
þroskaðri en börnin. En við erum
það ekki. Við erum bara börn eins
og þau, sem skiljum ekki gang lífs-
ins nema að takmörkuðu leyti. Líf
okkar er bara sekúndubrot af tíma
heimsins. Við millilendum bara
hér á leið okkar annað.
ÞESSI heimur er ekkert sérstak-
lega góður staður að vera á. Hann
er ekki barnvænn. Hann er upp-
fullur af erfiðleikum, sjúkdómum,
sársauka og dauða. Hér bíður
okkar bara dauði. Lífið er þjáning
í eðli sínu. En eftir dauðann er
bara kærleikur og friður. Þetta líf
er eins og myndbrotin sem sýnd
eru í bíó áður en alvöru myndin
byrjar. Að þurfa ekki að horfa á
þau er jafnvel léttir.
LÍTIÐ barn sem fer til útlanda
með mömmu sinni getur ekki skil-
ið hvað er að gerast. Það þarf þess
ekki. Það þarf ekki að óttast. Því
nægir að treysta. Og eins er með
okkur. Ef við treystum Guði þá
þurfum við ekkert að óttast. Dauð-
inn er enginn endir. Hinn látni er
ennþá til og heyrir í okkur. Við
getum talað við hann eins og áður.
Fyrir honum er allt jafn raunveru-
legt og fyrir okkur. Hann er á
sama stað og er djúpt inni í okkar
eigin hjarta, þar sem kærleikur-
inn á heima.
LÍFIÐ er blekking. Það er leikrit.
Hið raunverulega líf leikarans er
ekki á sviðinu. Sviðsmyndin er
plat. En hún verður að vera því
annars væri lítið varið í leikritið
og enginn kæmi að sjá það. trúin
frelsar okkur. Trúin er forsenda
kærleikans. Guð er til og hann
elskar okkur. Kærleikurinn deyr
aldrei. Kærleikurinn sigraði dauð-
ann. Og dauðinn er ekki til.
NOTUM dauðann. Hann er tæki-
færi fyrir okkur til að læra að
meta hvert annað betur. Elskum
hvert annað. Gleymum öllum
barnalegum ágreiningi. Notum
tækifærið til að fyrirgefa og vera
saman á meðan við getum. ■
Dauðinn
er ekki til