Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
2. mars, 61. dagur
ársins 2006
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.32 13.40 18.49
Akureyri 8.21 13.25 18.30
Fyrirlestur um tengsl mataræðis
og blóðþrýstings verður haldinn
í dag klukkan sex á annari hæð í
Laugum. Farið verður yfir hvernig
hægt er að ná árangri í blóð-
þrýstingsmeðferð með breytingu
á mataræði. Lagðar verða fram
tillögur um matseðla. Fyrirlestur-
inn er opinn öllum.
Buxnadragtir eru það sem allar
konur ættu að eiga í fataskápn-
um þessa dagana. Vinsælustu
dragtirnar í dag eru aðsniðnar
með mjúkum línum. Sniðið er
beint en dragtin á engu að síður
að vera víð. Litirir eru allt frá
klassísku gráu upp í sakleysisleg-
an hvítan lit og allt þar á milli.
Skipulagsdagar í Ikea eru nú
að syngja sitt síðasta. Dögunum
líkur 5. mars og óskipulagðir
ættu því að nýta tækifærið og
kaupa inn nokkra hluti til að
koma lagi á heimilið.
ALLT HITT
[TÍSKA HEIMILI HEILSA]
Sigurjón er mikið
fyrir boli með ýmsum
myndum og merkjum
á. Hann er forfallinn
bítlaaðdáandi og safnar
allskonar bítladóti.
,,Bítlabolirnir mínir eru
heilagir,“ segir Sigurjón
Brink tónlistarmaður. Hann
kveðst vera mikill bítlaað-
dáandi og safna því ýmis-
konar bítladóti. ,,Ég nota
bolina mjög mikið og er far-
inn að safna þeim. Ég keypti
til dæmis nokkra í Dogma á
Laugaveginum sem er frá-
bær hljómsveitabolabúð og
nú er ég að prófa að panta
bítlaboli á netinu.“
Aðrar flíkur sem eru
Sigurjóni kærar eru meðal
annars þær sem kærastan
hans hefur gefið honum.
,,Til dæmis jólagjöfin fyrir
tveimur árum. Það er hlýr
jakki sem ég var búinn að
gleyma að ég ætti. Mér
fannst ég ekki eiga neinn
jakka þegar fór að kólna í
veðri svo það kom sér mjög
vel að finna þennan inni í
skáp um daginn. Hann er
mér kær þessa dagana en
bítlabolirnir eru mér heil-
agir. Þeir fá ekki að fara í
þurrkarann, það er alveg
pottþétt.“
Sigurjón kveðst hafa
nokkuð hversdagslegan stíl.
,,Ég fer eiginlega aldrei í
jakkaföt, það gerist ekki
nema á mjög sérstökum
stundum. Mér líður best í
gallabuxum og þegar ég fer
eitthvað spari skipti ég yfir-
leitt bara jakkafatabuxun-
um út fyrir gallabuxur en
held öllu hinu. Síðan kýs ég
að vera eiginlega alltaf í
strigaskóm og er sjúkur í
boli með alls konar mynd-
um og dóti á, ég á eiginlega
meira af því en mig grunar.
Kærastan mín tekur nefni-
lega sjötíu prósent af ská-
paplássinu svo ég þarf að
dreifa þessu víðar um húsið.
Maður er af og til að finna
eitthvað sem hafði alveg
gleymst. Það er samt svolít-
ið gaman, eiginlega eins og
maður hafi farið að versla,“
segir Sigurjón að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Bítlabolirnir
eru heilagir
Sigurjón í einum bítlabolanna sinna. Á píanóinu stendur forláta bítladiskur sem Sigurjón fékk að gjöf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
IÐKENDUR SAHAJA-JÓGA KYNNA
STARF SITT Á LAUGARDAGINN.
Á laugardaginn er alþjóðlegi
sahaja-jóga dagurinn sem er
um leið alþjóðlegur Kundalini-
vakningardagur, tileinkaður virkjun
lífsorkunnar. Iðkendur sahaja-jóga
víða um heim taka sig saman
þennan dag og kynna starf sitt. Á
Íslandi er hópur fólks sem stundar
sahaja-jóga reglulega og kynnir það
fyrir öðrum en þessi hópur hefur
sjálfur mjög góða reynslu af því að
stunda þetta jóga. Á laugardaginn
mun hópurinn skipta sér í minni
hópa sem verða á ferðinni í miðbænum frá klukkan 12.00 til
þess að kynna sahaja-jóga fyrir fólki og veita því kundalini-
vakningu á staðnum. Á laugardagskvöldið klukkan 20.00
verður svo haldið jógapartí í Listasetri Lafleur, Hólmaslóð 4, 101
Reykjavík. Þar geta gestir fengið ókeypis kynningu á sahaja-jóga
með óformlegum hætti undir fallegri og afslappandi tónlist.
Sahaja-jógadagur
TÍSKUVIKA Í
MÍLANÓ
Nú eru tískuvikur í New
York, London og Mílanó
að baki. Sýningar Prada
og Dolce og Gabbana
voru einn af hápunktum
tískuvikunnar í Mílanó.
TÍSKA 2
SUMARLEGIR
LITIR
Vorið er handan við
hornið og um að gera
að lífga upp á fataskáp-
inn. Flíkur og fylgihlutir
í rósrauðum lit gera
það svo sannarlega.
TÍSKA 3
20%
kynningarafsláttur