Fréttablaðið - 16.03.2006, Síða 6
[ ]
Teppavefnaður er ævaforn at-
vinnugrein. Mikill munur er á
fjöldaframleiddum verkmiðju-
teppum og þeim sem hand-
hnýtt eru en verslunin Zedrus
í Hlíðarsmára 11 býður upp á
teppi í síðari flokknum.
„Nú er svo mikið um fjöldafram-
leiðslu og ég vildi bjóða fólki upp á
sérstakar vörur á viðráðanlegu
verði til að persónugera heimili
sín,“ segir Ester Sveinbjarnardóttir
viðskiptafræðingur og eigandi
Zedrus.
Mikil fræði eru á bak við gerð
teppanna og margt sem hafa skal í
huga þegar fjárfest er í þeim. „Í
fyrsta lagi er að skoða bakið, þar
er hægt að telja hversu margir
hnútar eru í teppinu. Því þéttari
sem hnútarnir eru, því meiri gæði
og því endingarbetri eru teppin.
Ullin þarf að vera grófhreinsuð
því ekki má þvo lanólið, það er ull-
arfituna, úr. Fitan verndar ullina,
hrindir frá óhreinindum og afraf-
magnar teppið. Einnig þarf skurð-
urinn ofan á teppinu að vera jafn
því annars myndast skuggi í það,“
segir Hlín.
Hér má sjá nokkur teppi úr
Zedrus.
Jurtalitað teppi frá Túrkmenistan. Appel-
sínugulur litur táknar sjálfstæði, djúpt
innsæi og alsælu. Villiblómin eru tákn
löngunar, opnu blómin eru sólartákn,
græni liturinn er litur guðanna og táknar
grósku og gjafir náttúrunnar. 260.000
hnútar á fermetrann, 84 x 122 á 23.000 kr.
Teppið er unnið í Ankarihéraði í Afganistan.
Ullin er af hálsi kindanna þar sem hárin
eru lengri en það gerir teppið stinnt og
endingarbetra. Mynstrið er í raun óður til
gjafa náttúrunnar sem heldur lífi í fólkinu.
Fiskarnir eru tákn um lífsins vatn. 380.000
hnútar á fermetrann.
Handgert teppi frá Pakistan. Mynstrið heitir Kashan og er ævafornt. Átta arma stjarna með keilulaga örmum er skírskotun til guðsins Gula,
móður lífsins, og er tákngervingur drifkrafts og fullkomnunar ásamt því að vera fornt tákn um gersemar Múhameðs. Talan átta er tákn um
upprisu eða upphaf og blómahafið í miðjunni táknar paradís. 460.000 hnútar á fermetrann, 95 x 157 cm á 58.000 kr. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Mynstruð hefð úr austri
Bænamotta gerð af Belutch-hirðingjum.
Myndirnar í teppunum sýna nánasta
umhverfi vefaranna, blóm, dýr og tré. Rauði
liturinn táknar ástríður, kraft, viljastyrk og
lífsgleði. Blái liturinn er litur hvíldar, friðar
og öryggis en einnig tjáningar, hraða og
ákveðni. Guli liturinn er litur sólar og ljóss,
hann tengist rökhugsun og skýrleika. Opin
blóm eru sólartákn, þau hvítu eru tákn um
velgengni og hagsæld og rauð um ástríður.
210.000 hnútar, 77 x 130 cm á 12.500kr.
Teppi frá Afganistan. Blómamynstrið er
tekið úr nánasta umhverfi vefaranna.
Þessi teppi eru gríðarlega vinsæl núna
sem hækkar verð þeirra. 320.000 hnútar á
fermetrann, 150 x 196 á 98.000 kr.
Teppi frá Bidjar-héraði í Íran úr ull og silki.
106 x 153 cm á 195.000 kr.
Motta úr ull og silki með 460.000 hnútum
á fermetrann. Hún er frá Bidjar-héraði í
Íran. 112 x 186 cm á 175.000 kr.
Antíkmunur sem notaður var sem sessa í
tjöldum hirðingjanna og sem poki við flutn-
inga á milli staða. 41 x 72 cm á 9.700 kr.
Skrúfur þarf reglulega að herða í flestöllum húsgöngum. Gott að
taka sér fjölhausa skrúfjárn í hönd á sunnudagseftirmiðdegi og ganga
á línuna.
Laugavegi 67
Sími: 551 8228
LUCKY WANG
NYC
fæst í Sípu
PÍANÓSTILLING.IS
Kristinn Leifsson - Leifur Magnússon
S. 661-7909
Margar stærðir og gerðir eldstæða, opin eða
með hurð, einnig opin í gegn (tvær hurðir)
Verð frá kr. 82.000.-
Einnig úrval af aukahlutum fyrir arininn
���������
����������������� ������������� �����������
gæði, ending og góð þjónusta
Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 • Reykjavík
Rúmfatnaður fyrir
alla fjölskylduna
Kringlukast í DUKA
mörg góð tilboð