Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.03.2006, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 16.03.2006, Qupperneq 36
 16. mars 2006 FIMMTUDAGUR20 hagur heimilanna DVD-myndir eru auglýstar á mjög lágu verði í versl- anabæklingum en ekki fylgir með í auglýsingunum að margar af þessum ódýru myndum eru án íslensks texta. Verslanir kaupa þessar ódýru myndir beint að utan. Elko flytur DVD-myndir beint inn og Óttar Örn Sigurbergsson, inn- kaupastjóri hjá Elko, segir að þeir auglýsi ekki sérstaklega þegar dvd-myndir eru ekki með íslensk- um texta. Það er ekki heldur tekið fram þegar dvd-myndirnar eru keyptar. Kvartanir hafa borist vegna þessa en flestir gera sér grein fyrir því ef dvd-myndir eru einungis með enskum texta að sögn Óttars. Til að sporna við mis- skilningi merkir Elko allar DVD- myndir sem eru með íslenskum texta en engar sérstakar merking- ar eru á öðrum DVD-myndum. BT verslanir flytja einnig DVD- myndir beint inn. Yfirleitt er tekið fram í auglýsingum þegar DVD- myndir eru með íslenskum texta en ekkert tiltekið ef íslenskan texta vantar að sögn Gunnars Guð- jónssonar sem sér um innkaup á kvikmyndum og afþreying- arefni hjá BT. Gunnar bend- ir jafnframt á að allar DVD- myndir hafi textamerkingu frá framleiðanda á bakhlið. Gísli Tryggvason, tals- maður neytenda, telur það mikilvægt að neytendur séu upplýstir um það þegar ekki er íslenskur texti á DVD-myndum, að minnsta kosti þegar um unga neytendur er að ræða. Það geta verið óskráðar reglur um að neytendur eigi rétt á þessum upplýsingum þótt það standi ekki í lögum frá Alþingi. Anna Birna Halldórsdóttir, for- stöðumaður markaðssviðs Neyt- endastofu, segir málið ekki hafa verið tekið fyrir hjá Neyt- endastofu. Engar reglur eru til um hvað skuli taka fram í auglýsing- um en hún telur eðlilegt að það sé kynnt ef íslenskan texta vanti á DVD- myndir þótt það sé ekki skylda. sdg@frettabladid.is Myndir án íslensks texta Hafin er sala einnota DVD-diska hér á landi og víst að margir fagna því sem orðnir eru leiðir á vanskilagjöldum á myndbandaleigum. Diskarnir kallast 48DVD sem merkir að hægt er að horfa á efni á viðkomandi disk í 48 stundir eftir að hann er spilaður fyrsta sinni. Eftir þann tíma er diskurinn ónýtur og óhætt að henda honum en hægt er að horfa eins oft og fólk vill innan þess tíma. Helgast það af sérstakri tækni sem notuð er í framleiðslu diskanna en fullyrt er að DVD- spilarar verði ekki fyrir neinum skaða þó að einnota diskar séu spilaðir. Diskarnir eru seldir í verslunum Olís, 10/11 og Hagkaupa og kosta kringum 500 krónur stykkið. ■ Verslun og þjónusta Einnota bíómyndir Hvernig myndast hinn indæli ilmur af nýbökuðu brauði og hvernig náum við fram þeirri lyftingu og léttleika sem ein- kennir gott brauð? Grunnhráefni gerbrauðs eru hveiti, vatn, salt og ger. Hvert þessara hráefna gegnir mikilvægu hlutverki við brauðgerðina. Um leið og farið er að hnoða hráefn- unum saman fara ýmis ferli af stað. Til að byrja með leysir vatnið þurrefnin upp þannig að hráefnin blandast vel saman. Hveitið, sem er uppistöðuefni brauðsins, inniheldur meðal annars prótín, sterkju og ensím. Prótínin mynda svokallað glúten þegar mjölinu er hnoðað saman við vatnið. Glútenið verður að þéttriðnu neti sem kemur til með að veiða kolsýruna frá gerinu og þannig lyftist brauðdeigið við hefun og bakstur. Við hnoðun dreifast loftbólur gersins svo að brauðið fær jafna áferð, verður mjúkt og slétt. Oft er deigið látið hvílast áður en það er mótað. Við hvíldina slaknar á glútennetjunni þannig að deigið verður meðfærilegra við mótun. Nú fá ensímin líka tíma til þess að brjóta sterkjuna niður í sykursameindir og mynda þannig nauðsynlega næringu fyrir gerið auk þess að mynda bragð- og ilmefni brauðsins. Eftir hvíld og mótun er deigið látið hefast og taka þá gersveppirnir til starfa. Gersveppir eru lifandi frumur sem breyta sykri í loft- tegundina kolsýru og vínanda ef þeim eru búin hagstæð lífsskilyrði. Gerfrumur dafna best við 35°C. Ef vökvinn er of heitur drepast gerfrumurnar (54°C) og þá verður deigið þungt og klesst. Of kaldur vökvi eða umhverfi lamar mátt þeirra svo það tekur lengri tíma fyrir deigið að lyfta sér. Salt er mikilvægt í brauðgerð þar sem það stýrir hraða gerjunar þannig að kolsýrumyndun gersins verður jafn- ari. Salt styrkir líka bragð brauðsins en saltlaust brauð verður klístrað, of hefað og bragð þess verður vatnskennt. Gerbrauð eru látin lyfta sér á volgum stað í ½-1 klukkustund eða þar til þau hafa tvöfaldað sig að stærð. Að lokum er komið að bakstrinum. Hitinn í ofninum veldur því að kolsýran þenst út þannig að deigið lyftir sér enn frekar. Þegar hitinn í brauðinu nær 54°C deyr gerið og ensímin verða óvirk. Sterkjan úr mjölinu hleypur við baksturinn og lögun brauðsins festir sig. Að lokum brúnast skorpan við það að sykrur og prótín á yfir- borði mynda karamellu við hitann, en þessi brúnun er einmitt einn af mikilvægustu þáttunum í myndun lokkandi brauðilms og ljúffengs bragðs af nýbökuðu brauði. idunn@myllan.is Niðurhal á tónlist heldur áfram að vera meðal þess vinsælasta sem margur gerir á netinu og hér á landi hefur þjónusta tonlist.is náð nokkrum vinsældum. Er það eina íslenska vefsvæðið sem býður þjónustuna gegn gjaldi en í staðinn fá notendur aðgang að einhverju mesta safni hér á landi af íslenskri tónlist. Áskriftarmöguleikar að tonlist.is eru margvíslegir. Hægt er að velja úr þremur leiðum. Mánaðaráskrift kostar 1.495 krónur. Þriggja mánaða áskrift kostar 2.990 og ársáskrift 9.900. Með þessum áskriftum öðlast fólk ótakmarkaðan aðgang að allri íslenskri tónlist sem vefsvæðið hefur að geyma og geta notendur spilað og vistað öll lög. Einnig er í boði að kaupa stök lög og kostar hvert lag þá 99 krónur. Um 30 þúsund íslensk lög eru í gagnabanka tonlist.is. Erlendis er enn hægt að verða sér úti um tónlist án gjalds með hinum ýmsu forritum og á hinum ýmsu vefsvæðum. Slíkt er í flestum, ef ekki öllum, tilfellum ólöglegt enda fá þá flytjendur eða höfundar þess engar greiðslur fyrir hugverk sín. ■ Hvað kostar... að sækja sér tónlist Ýmsir möguleikar Fullt er orðið á öll auka hjónanámskeið í Hafnarfjarðarkirkju undir stjórn séra Þórhalls Heimissonar en námskeið hans um hvernig viðhalda beri ást og virðingu innan hjónabandsins hafa notið mikilla vinsælda síðustu tíu árin. Hafa alls 7.500 manns sótt námskeiðin á þeim tíma og greinilegt að brýn þörf er á þeim. Er nú svo komið að fullt er orðið á öll námskeið hans og allir salir kirkjunnar orðnir fullir fram á sumar. Mun séra Þórhallur að öllum líkindum bjóða áfram upp á námskeiðin næsta haust og um að gera að fylgjast vel með tilkynningum um slíkt hafi fólk áhuga. ■ Verslun og þjónusta Fullt á hjónanámskeið GÍSLI TRYGGVASON MATUR & NÆRING IÐUNN GEIRSDÓTTIR MATVÆLAFRÆÐINGUR Gerbrauð - nýbakað og ilmandi DVD-MYNDIR Í REKKA Ekki gera allir kaupendur sér grein fyrir því að íslenskan texta vanti á dvd-myndir sem þeir kaupa. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLLBERGMANN VERÐ Á TÓBAKI > Verðlagning á venjulegum pakka af tóbaki miðað við verðlag á landinu öllu í nóvember hvers árs. ■ Sólveig Baldurs- dóttir, sem ritstýrir Gestgjafanum, segist kunna fullt af húsráð- um. Til dæmis sé í lagi að frysta rjóma. „Það er í góðu lagi að frysta rjóma. Ef þeyta á rjóma sem hefur verið frystur er best að gera það meðan ísnálarnar eru ennþá í honum. 2. Ísmolar í skál bráðna ekki eins fljótt ef settur er lítill diskur á hvolf á botninn á skálinni. Þá liggja ísmolarnir ekki í vatninu og bráðna því mun hægar. 3. Ef maturinn er óvart of saltur er best að setja nokkrar sneiðar af hráum kartöflum ofan í pottinn því kartöflurnar draga í sig saltið. GÓÐ HÚSRÁÐ Í GÓÐU LAGI AÐ FRYSTA RJÓMA „Mín langbestu kaup voru þegar ég skipti á gítar við Matta úr Pöpunum fyrir tæpum áratug. Ég lét hann hafa gamlan og handónýtan Fender gítar en fékk forláta Ibanez gítar í staðinn sem hefur verið mér til ómældrar ánægju,“ segir Akureyringurinn Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Magnús er liðtækur gítarleikari og grípur í gítarinn þegar tækifæri gefst til. „Ég dunda mér við að semja eitt og eitt lag, aðallega til heimilis- og einkanota. Ég hef fengið skilningsríkt viðmót frá konunni og öðrum í fjölskyldunni varðandi lagasmíðina en hef þó ekki verið hvattur til útgáfu enn sem komið er.“ Á námsárunum í Reykjavík var Magnús í hljómsveit með Guðjóni Bergmann jógakennara og fleirum. „Mín glæstasta stund með gítarinn var þó sennilega á árshátíð líkamsræktarinnar Átaks á Akureyri. Það var gott „comeback“ fyrir mig og gítarinn.“ Verstu kaup Magnúsar tengjast bílaviðskiptum. „Ég keypti eitt sinn smábíl af Suzuki gerð og ég held mér sé óhætt að fullyrða að verri kaup hef ég ekki gert. Ég keypti bílinn nýjan en um leið og hann var farinn úr ábyrgð þá bilaði stýrisbúnaðurinn. Bilunin lýsti sér þannig að í hvert sinn sem þessari litlu tík var gefið inn þá var eins og hún fengi sjálfstæðan vilja og beygði til hægri. Þetta var eins og að að aka Dodda bílnum; maður vissi aldrei hvert ferðinni var heitið.“ Magnús Seldi Dodda bílinn sinn við fyrsta tækifæri en fláði ekki feitan gölt í þeim viðskiptum. „Ég þurfti að borga dágóða upphæð með bílnum til að losna við hann en var því fegnastur þegar þetta kríli hvarf sjónum mínum. Síðan þá hef ég bara átt jeppa og ætla aldrei aftur að kaupa svona ltila tík,“ segir Magnús. NEYTANDINN: MAGNÚS ÞÓR ÁSGEIRSSON Á hægrisinnuðum Dodda bíl 37 7 K R . 50 7 K R . 57 1 K R . 27 2 K R . 1996 2000 2003 2005 Heimild: Hagstofa Íslands Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma 567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar MARKISUR www.markisur.com VILTU SKJÓL Á VERÖNDINA?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.