Fréttablaðið - 16.03.2006, Síða 53

Fréttablaðið - 16.03.2006, Síða 53
GRAND ROKK Öðruvísi laugardagskvöld: GYÐINGAMÚSÍK INGE MANDOS - FRIEDLAND ZIMT og KOL ISHA flytja sönglög, dansa og sálma á jiddísku og ladínó DJAMMIÐ UM HELGINA: Allt um djammið PRAVDA Fimmtudagskvöld: VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 99 KR/SKEYTIÐ. TAKTU ÞÁTT! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO, DVD MYNDIR, VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI OG MARGT FLEIRA! 11. HVER VINNUR! FRUMSÝND 17. MARS SÍÐUSTU SÝNINGAR Á HIMNARÍKI Lau. 25. mars. kl. 20 Fös. 31. mars. kl. 20 Síðasta sýning. VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur fös. 17. mars kl. 20 sun. 19. mars kl. 20 fös. 24. mars kl. 20 sun. 26. mars kl. 20 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MARS 13 14 15 16 17 18 19 Fimmtudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  19.30 Tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar Íslands með píanó- leikaranum Stephen Hough undir stjórn Davids Charles Abell.  20.00 Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar halda tónleika í Salnum. Vinsæl dægurlög í útsetn- ingum Ólafs Gauks, m.a. lög Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálms. Miðaverð 2.500 kr.  20.00 Hljómsveitirnar Morð- ingjarnir, Múgsefjun, Mania Locus og Skítur spila á Fimmtudagsforleik í kjallara Hins Hússins. Allir vel- komnir.  20.30 Inge Mandos-Friedland, Zimt og Kol-isha flytja dagskrá með söngvum og hljóðfæramúsík gyðinga í Skálholtskirkju.  21.30 María Magnúsdóttir söngkona heldur tónleika á Café Rósenberg í góðum félagsskap ásamt hljómsveit. Djass, blús og sál- artónlist. Aðgangseyrir 1000 kr. ■ ■ FYRIRLESTRAR  16.00 Dr. Theodor Paleologu, verðandi sendiherra Rúmeníu á Íslandi, heldur fyrirlestur um “stjórn- málaguðfræði” (political theology.) Fyrirlesturinn fer fram í Hátíðarsal í aðalbyggingu Háskóla Íslands og er öllum opinn. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Í haust verður boðið upp á fjöl- breyttara tónsmíðanám í Listahá- skóla Íslands en þekkst hefur hér- lendis. Þá verður hægt að stunda 90 eininga nám til B.A. gráðu á vegum skólans en þessi stefnu- breyting er liður í endurskipulagn- ingu innan tónlistardeildarinnar. Kjartan Ólafsson, tónskáld og próf- essor við Listaháskólann, segir að það séu spennandi tímar framund- an. „Námið mun endurspegla þátt- töku tónlistarinnar bæði í menn- ingarlífinu og atvinnulífinu almennt og þau ólíku verksvið sem tónskáld starfa á,“ segir Kjartan og bendir á að vísir hafi verið að þessum áherslum innan deildar- innar en nú sé sá tímapunktur þar sem námið sé skilgreint að nýju. Nemendur sem hefja nám í haust munu geta sérhæft sig í tón- smíðum með áherslu á ákveðnar brautir, s.s. nýmiðlun, kvikmynda- tónlist, tónlist fyrir leikhús eða listdanssýningar, eða almennar tónsmíðar. Enn fremur verður í fyrsta sinn boðið upp á nám í upp- tökustjórn á vegum skólans þar sem nemendur kynnast tækni og innviðum upptökuvera og fá verk- þjálfun bæði sem útsetjarar og upptökustjórar. „Nemendurnir munu einnig taka virkan þátt í tón- listarlífinu innan skólans,“ áréttar Kjartan. Listaháskólinn hefur tækjavæðst mjög hratt allt frá stofnun og bendir Kjartan á að þar sé komin upp góð aðstaða fyrir nemendur í upptökustjórn, m.a. fullkomið „surround“ hljóðupp- tökuver. „Þessi breyting er möguleg vegna þess það er mikil samvinna milli deilda í Listaháskólanum,“ segir Kjartan en áherslan í tón- listardeildinni er á sérhæft ein- staklingsmiðað nám. „Nemendur geta breikkað menntun sína með því að taka áfanga innan annarra deilda en námið nú hefur snerti- fleti við allar hinar deildirnar,“ útskýrir hann en þannig geta nemendur í tónsmíðum samið eða unnið tónlist og hannað hljóð t.d. fyrir kvikmyndir, leik- eða dansverk sem aðrir nemendur skólans taka þátt í. Með tilkomu Listaháskólans og tónlistardeildarinnar sem stofnuð var árið 2001 var farið að kenna tónsmíðar á háskólastigi hérlendis en áður höfðu tónsmíð- ar verið kenndar í Tónlistarskóla Reykjavíkur, að undirlagi Jóns Nordal, allt frá árinu 1981. „Með tilkomu tónlistardeildarinnar var tónsmíðanámið lögfest og þá varð það hluti af háskólaum- hverfinu,“ segir Kjartan. Nú stunda á annan tug nemenda tón- smíðanám í Listaháskólanum og munu nokkrir útskrifast í vor. „Þetta er mjög sérhæft nám á breiðum grunni,“ segir Kjartan og bætir við að það sé misjafnt hversu margir útskrifast ár hvert en fjöldi þeirra eykst þó með ári hverju. Umsóknarfrestur fyrir tón- smíðanámið í haust rennur út nú um helgina, nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Listahá- skólans, www.lhi.is. Fjölbreyttara nám FIMMTUDAGUR 16. mars 2006 KJARTAN ÓLAFSSON Tónskáld og prófessor við Listaháskólann segir að það séu spennandi tímar framundan. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.