Fréttablaðið - 03.04.2006, Page 20

Fréttablaðið - 03.04.2006, Page 20
[ ]Leiktæki í garðinn eru ómissandi fyrir smáfólkið. Þau fást til dæmis í Markinu þar sem nú er hægt að fá rólur á afslætti. Annar hfRekstrarverkfræðistofan Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is a Eignaskiptay rlýsingar atvinnu- og íbúðahúsnæði fyrir ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir www.svefn.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Algengt er að í nýjum húsum séu lagðar hitaleiðslur í öll gólf í stað þess að notast við hefðbundið ofnakerfi. Eigendur eldri húsa eru einnig farnir að skipta gamla ofnakerfinu út fyrir gólfhitalagnir í auknum mæli. Skarphéðinn Skarphéðinsson for- maður Félags pípulagningameist- ara segir að ýmsar leiðir megi fara við að leggja hita í gólf í eldri húsum. „Þegar skipta á gamla hitakerfinu út fyrir hitalagnir í gólfum þarf að byrja á því að kanna þröskulda og hvaða hæð fólk hefur frá gólfinu þegar búið er að fjarlægja gólfefni. Ef að hæðin er bara einn til tveir senti- metrar getur verið mjög erfitt að eiga við þetta og sumir hafa farið út í það að fræsa niður í gólfið til þess að geta komið fyrir rörum og fleytt svo yfir þau,“ segir Skarphéðinn. Ef hæðin frá gólfi er nægileg eru ýmis gólfhitakerfi í boði sem þægilegt er að nota. „Hringás er til dæmis með mjög lágt kerfi sem heitir Flooré en það er þunn- ur dúkur með 12 millimetra rörum. Þetta hitakerfi er þannig að það er hægt að leggja parkett og flísar beint ofan á það án þess að fleyta fyrst. Dúkurinn er snið- inn saman eftir ákveðinni for- skrift og svo er rörunum smellt ofan í og gólfefnið sett beint ofan á kerfið.“ Skarphéðinn segir að Fjöltækni og Tengi bjóði einnig upp á mjög góð gólfhitakerfi en til þess að nota þau þurfi hæðin frá gólfi að vera meiri en þegar Flooré-kerfið er notað. Gólfhitakerfin eru þannig að hvert herbergi er með sjálfstætt hitakerfi. „Lögnin fer síðan í gegnum dyragættina í eina dreifi- kistu sem er gott að hafa einhvers staðar inni í þvottahúsi eða þar sem fer lítið fyrir henni og þar er hægt að stjórna hitanum.“ Skarphéðinn segir að sífellt fleiri séu farnir að notast við gólf- hitakerfi. „Margir sem eru að endurnýja gömlu kerfin sín fara út í það að leggja gólfhitalagnir því það er ekki dýrara að leggja hitakerfi í gólfið heldur en að endurnýja gömlu ofnana. Með gólfhitakerfi má líka spara heita vatnið því vatnshitastigið er ekki nema svona 45 til 55 gráður og það er alltaf verið að keyra sama vatnið sem hitaveituvatninu er síðan blandað inn á. Sparnaðurinn getur því verið tölverður.“ Gott að hafa gólfhita Lagnirnar fara í eina dreifikistu þar sem stjórna má hitanum. Gólfefni má leggja beint ofan á Flooré-hitakerfið. Dúkurinn er lagður fyrst og rörin eru síðan sett ofan í hann. Skarphéðinn Skarphéðinsson er formaður Félags pípulagningameistara.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.