Fréttablaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 72
28 3. apríl 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
VI
NN
IN
GA
R
VE
RÐ
A
AF
HE
ND
IR
H
JÁ
B
T
SM
ÁR
AL
IN
D.
K
ÓP
AV
OG
I.
M
EÐ
Þ
VÍ
A
Ð
TA
KA
Þ
ÁT
T
ER
TU
K
OM
IN
N
Í S
M
S
KL
ÚB
B.
1
49
K
R/
SK
EY
TI
Ð.
DVD spilari+King Kong á DVD + King Kong varningur
LENDIR Í BT 30. MARS!
AUKAVINNINGAR ERU:
• KING KONG Á DVD
• PEPSI KIPPUR
• KING KONG TÖLVULEIKUR
• VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI
• FULLT AF ÖÐRUM DVD MYNDUM
OG MARGT FLEIRA
ÞÚ SENDIR SMS SKEYTIÐ
BTC KKF Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ KING KONG Á DVD!
9.HVERVINNUR!
Gylfi Einarsson, leikmaður Leeds á
Englandi, hefur ekkert spilað með liði
sínu að undanförnu í ensku 1. deild-
inni. Ástæðan er sú að Gylfi veiktist
illa en er óðum að ná sér og býst
við að vera orðinn góður áður en
langt um líður.
„Ég hef legið í veikindum
í um tvær vikur. Ég fékk
slæma flensu og hélt ég
væri góður þegar mér sló
niður eftir að ég fór á
æfingu. Þá kom í ljós
að ég er með sýkingu í
lungunum og hef því verið
að taka það rólega,“ sagði
Gylfi.
Leeds var í
góðri stöðu fyrir
skemmstu og liðið átti alla mögu-
leika á að tryggja sér annað sæti
deildarinnar, og þar með beint
upp í úrvalsdeild eftir mikla
sigurgöngu. Dæmið hefur
snúist við í síðustu leikjum
og Leeds hefur vegnað
illa. „Það hefur verið
óþolandi að fylgjast með
þessu. Menn eru ekki
að grípa gæsina þegar
hún hefur gefist og við
gætum hæglega verið
fyrir ofan Sheffield United, þetta
hefur verið algjör klaufaskapur,“
sagði Gylfi en Leeds er í fjórða
sætinu sem stendur.
Landsliðsmaðurinn hefur átt erfitt
uppdráttar að undanförnu og vermt
varamannabekkinn þegar hann var heill
heilsu. „Ég er ekki sáttur með að vera
ekki að spila. Það er alltaf leiðinlegt að
vera utan vallar og þessi veikindi eru
alls ekki að hjálpa til. Ég er samt sem
áður ekkert stressaður yfir minni stöðu,
það er ekki langt síðan ég skrifaði undir
nýjan samning og mér líður mjög vel hjá
félaginu. En á meðan maður er ekki að
spila getur maður ekki verið ánægður,“
sagði Gylfi.
„Að mínu mati er ótrúlegt að við skulum
ekki vera komnir beint upp miðað við
þennan sterka hóp sem er hérna hjá
liðinu. En það þýðir ekkert að leggja
árar í bát og ég ætla mér að sjálfsögðu
að koma sterkur til baka og standa mig
í lokaleikjum tímabilsins. Við ætlum
okkur upp, það er ekki spurning.“
GYLFI EINARSSON LEIKMAÐUR LEEDS: HEFUR LEGIÐ Í VEIKINDUM UNDANFARNAR VIKUR
Aldrei sáttur ef ég er ekki að spila
HANDBOLTI „Lífið gæti ekki verið
betra,“ sagði Logi Geirsson þegar
Fréttablaðið hafði samband við
hann í gær eftir æsilegan undan-
úrslitaleik gegn Gummersbach í
EHF-keppninni í handbolta.
Íslendingarnir voru áberandi í
leiknum, Logi skoraði tíu mörk og
var markahæstur hjá Lemgo og
Guðjón Valur Sigurðsson dró
vagninn fyrir Gummersbach og
skoraði ellefu mörk. Þá skoraði
Róbert Gunnarsson þrjú en það
dugði ekki til þar sem Lemgo
komst áfram.
„Maður verður aðeins að vor-
kenna Gauja og Robba en svona er
þetta, bransinn er harður. Það er
líka svekkjandi fyrir þá miðað við
hvernig þeir klúðruðu þessu í
lokin á fyrri leiknum, þá tóku þeir
markmanninn út af í lokasókninni
og við náðum að skora yfir allan
völlinn. Það er stutt á milli hlát-
urs og gráts í þessu,“ sagði Logi
en Gummersbach vann leikinn 26-
25 en Lemgo vann þann fyrri 28-
26 á útivelli og því samtals 53-52.
Leikurinn var í járnum til að
byrja með en á 17. mínútu brutust
út slagsmál og einn leikmaður úr
hvoru liði fékk rautt spjald. Filip
Jicha fékk rautt spjald í liði Lemgo
og inn á fyrir hann kom Logi nokk-
ur Geirsson sem átti heldur betur
eftir að láta til sín taka. Florian
Kehrmann og Marcus Baur meidd-
ust báðir og verða líklega frá í
nokkrar vikur. Lemgo var því með
hálft lið en Logi tók þá til sinna
ráða þegar Gummersbach hafði
yfirhöndina í leiknum.
„Það var allt inni í dag. Það
koma svona dagar þegar allt lekur
inn, sama hvað ég gerði, það gekk
bara allt upp. Ég er búinn að vera
lengi að koma mér í gang eftir
meiðslin og því er þetta alveg stór-
kostlegt,“ sagði Logi sem skoraði
tíu mörk í gær, í öllum regnbogans
litum.
Lokamínútur leiksins voru æsi-
spennandi en Lemgo unnu upp
forskot Gummersbach og komust
einu marki yfir. „Lokamínúturnar
voru rosalegar. Gaui jafnaði í 24-
24 og svo skoruðu þeir tvö mörk til
viðbótar með okkur einum manni
færri. Þau úrslit hefðu dugað
okkur þar sem við vorum með
fleiri mörk skoruð á útivelli og því
héngum við bara á boltanum. Ég
driplaði eins og vitleysingur út
um allan völl, lét brjóta á mér og
hornamaðurinn okkar skoraði svo
síðasta markið alveg undir lokin,“
sagði Logi sem var stoppaður úti á
götum og hylltur af stuðnings-
mönnum liðsins á meðan Frétta-
blaðið talaði við hann í gær. „Við
fögnuðum eins og brjálaðir
værum og það var gríðarleg
stemmning inni í höllinni. Ég reif
mig úr að ofan, sem var hluti af
loforði heima á Íslandi, og allt var
vitlaust,“ sagði Logi áður en hann
fór út að skemmta sér með félögum
sínum í gær.
Lemgo mætir Jaliesky Garcia
og félögum hans í Göppingen í
úrslitaleikjunum. „Það verður alls
ekki auðvelt. Við erum á góðu
skriði núna og ætlum okkur auð-
vitað titilinn. Vonandi fáum við
útileikinn fyrst svo við getum
fagnað titlinum á heimavelli okkar
í Lemgo,“ sagði Logi í léttum dúr
að lokum.
hjalti@frettabladid.is
Funheitur Logi hetja Lemgo
Logi Geirsson var hetja Lemgo í síðari undanúrslitaleik EHF-bikarkeppninnar
í handbolta í gær gegn Gummersbach. Logi átti sannkallaðan stórleik, skoraði
tíu mörk og var maðurinn á bak við frækinn sigur Lemgo í einvíginu.
LOGI GEIRSSON Átti stórleik gegn Guðjóni Val Sigurðssyni og Róberti Gunnarssyni í gær.
Logi skoraði tíu mörk í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ
> Heiðar 25.-27. á Spáni
Heiðar Davíð Bragason, Íslandsmeistari
í höggleik karla, endaði í 25.-27. sæti
í einstaklingskeppninni á Sherry Cup-
áhugamótinu í golfi á Spáni en hann
lék á 294 höggum, sex höggum yfir
pari. Nigel Edwards frá Wales sigraði á
mótinu á 282 höggum en alls tóku 72
keppendur þátt. Magnús Lárusson úr
Kili endaði í 62.-63. sæti á 312 höggum,
22 yfir pari, Stefán Már Stefánsson úr GR
endaði í 68. sæti
á 318 höggum,
28, höggum yfir
pari og nýliðinn í
landsliðinu Pétur
Freyr Pétursson
varð í 71. sæti
á 319 höggum,
31 höggi yfir
pari. Íslendingar
urðu þeir 16. í
röðinni af þeim
19 þjóðum sem
tóku þátt.
Snorri Steinn í ham
Snorri Steinn Guðjónsson var í miklum
ham með liði sínu, Minden, í þýsku
úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Snorri
skoraði átta mörk í mikilvægum, 28-27
sigri á Kronau/Östringen. Minden er
samt sem áður áfram í harðri fallbaráttu.
FIMM TILNEFNDIR
Í BYGGINGARLIST
2x15#aftari 2.4.2006 20:44 Page 1