Fréttablaðið - 03.04.2006, Page 73
MÁNUDAGUR 3. apríl 2006 29
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
31 1 2 3 4 5 6
Mánudagur
■ ■ LEIKIR
20.00 Skallagrímur og Keflavík
mætast í úrslitakeppninni í körfu-
bolta karla í Borgarnesi.
20.00 KR og Njarðvík mætast í
úrslitakeppninni í körfubolta karla í
vesturbænum.
■ ■ SJÓNVARP
19.50 Íslandsmótið í körfubolta
karla á Sýn. Bein útsending frá leik
Skallagríms og Keflavíkur.
Einnig verður fylgst með leik KR og
Njarðvíkur frá DHL-höllinni.
19.55 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik Blackburn og Wigan.
21.50 Ítölsku mörkin á Sýn.
22.15 Ensku mörkin á Sýn.
22.50 Spænsku mörkin á Sýn.
Heiðar Davíð Bragason, Íslands-meistari í höggleik karla, endaði í
25.-27. sæti í einstaklingskeppninni á
Sherry Cup-áhugamótinu í golfi á Spáni
en hann lék á 294 höggum (+6). Nigel
Edwards frá
Wales sigraði á
mótinu á 282
höggum (-6).
Alls voru 72
keppendur í
karlakeppninni
en Magnús
Lárusson úr Kili
endaði í 62.-63.
sæti á 312 höggum (+22), Stefán Már
Stefánsson úr GR endaði í 68. sæti á
318 höggum (+28) og nýliðinn í lands-
liðinu Pétur Freyr Pétursson varð í 71.
sæti á 319 höggum (+31). Karlalandslið-
ið endaði í 16. sæti af 19 þjóðum sem
tóku þátt.
Íslandsmeistaramótið í kata fór fram í íþróttahúsi Grafarvogs um helgina.
Íslandsmeistarar félaga í kata er Breiða-
blik, Karatefélag Akraness (KAK) varð
í öðru sæti og Þórshamar í því þriðja
með. Þá voru krýndir nýir Íslandsmeist-
arar í einstaklingsflokkum þau Helgi
Jóhannesson, Breiðablik og Eydís Líndal
Finnbogadóttir KAK. Þetta er í fyrsta sinn
sem Breiðablik er Íslandsmeistari félaga
í kata.
Valur vann KA, 8-1, í deildarbikarnum um helgina. Danski framherjinn
Jakob Spangsberg skoraði
þrennu fyrir Val en Guð-
mundur Benediktsson,
Pálmi Rafn Pálmason,
Sigurbjörn Hreiðarsson,
Andri Valur Ívarsson og
Hálfdán Gíslason eitt
mark hver. Hreinn Hringsson minnkaði
muninn fyrir KA.
Á fundi formanna og framkvæmda-stjóra félaga í Landsbankadeild
karla, sem fram fór í höfuðstöðvum KSÍ
í dag, föstudag, var kjörin ný stjórn SED
– Samtaka félaga í efstu deild. Jónas
Þórhallsson úr Grindavík var endurkjör-
inn formaður og með honum í stjórn
samtakanna verða Jónas Kristinsson úr
KR og Jón Rúnar Halldórsson úr FH.
Íslendingar voru í eldlínunni að venju í handboltanum
í Þýskalandi um
helgina. Gylfi Gylfason
skoraði þrjú mörk fyrir
Wilhelmshaven, sem
tapaði fyrir Hamborg
33-30 en Heiðmar
Felixson skoraði sjö
mörk fyrir Hannover
Burgdorf, sem vann Ahlen 25-24 á
útivelli í 2. deild nyrðri.
Íslandsmeisturum ÍBV var vel tekið á höfninni í Vestmannaeyjum þegar
liðið sneri heim
frá Reykjavík þar
sem það hampaði
titlinum. Með sigri
á HK tryggði ÍBV
sér titilinn en við
komuna til Eyja var
flugeldum skotið upp og heljarinnar
veisla fór fram í höfninni þar sem ÍBV-
lagið var áberandi í fagnaðarlátunum.
ÚR SPORTINU
FORMÚLA-1 Það gekk allt á aftur-
fótunum hjá Ferrari-liðinu í kapp-
akstrinum í Ástralíu um helgina.
Vandræðin byrjuðu strax í tíma-
tökunni þegar Felipe Massa sneri
bíl sínum og klessti á öryggisvegg
en betur fór en á horfðist. Michael
Schumacher náði aðeins ellefta
sæti í tímatökunni og átti því ærið
verkefni framundan til að tryggja
sér stig. Það gekk ekki eftir og
báðir ökuþórarnir klesstu bíla
sína og fullkomnuðu þannig mar-
traðarhelgi þar sem allt gekk á
afturfótunum.
„Ég tók mikla áhættu þegar ég
ætlaði að fara fram úr Jenson
Button en bíllinn hans var í ein-
hverju ólagi. Ég var rétt fyrir
aftan hann en bíllinn varð þá
skyndilega undirstýrður. Ég lenti
út af brautinni í hraðri beygju og
skall á vegginn þar sem dekkin
fóru undan með miklum látum,“
sagði Schumacher um atvikið
þegar hann snarsneri bíl sínum í
brautinni.
Massa telur að Christian Klein,
sem ekur fyrir Red-Bull, hafi
orðið þess valdandi að Brasilíu-
maðurinn féll úr keppni. „Ég var
með Klein á vinstri hönd og Scott
Speed á þeirri hægri. Klein ók á
mig, ég snerist í hring, og lenti svo
á Rosberg og hentist á vegginn.
Ég gat ekkert gert við þessu og
var bara eins og farþegi í látun-
um,“ sagði Massa.
Það var Spánverjinn Fernando
Alonso sem hampaði sigri en hann
sýndi stóíska ró í tilþrifamikilli
keppni og kom 1,8 sekúndum á
undan Kimi Raikkonen á McLaren
í mark. Ralf Schumacher á Toyota
varð þriðji en Alonso er með 28
stig af 30 mögulegum í fyrstu
þremur mótum ársins og hefur því
hafið titilvörn sína eins og best
verður á kosið. „Þetta var klikkuð
keppni og ég skil sum augnablikin
ekki til fullnustu. Ég var með
tuttugu sekúndna forskot en það
forskot hvarf eins og dögg fyrir
sólu eftir að öryggisbílarnir
flykktust að eftir tíu hringi. En
bíllinn var fullkominn og sigurinn
var aldrei í hættu. Það voru engin
vandræði og 28 stig í fyrstu þrem-
ur keppnunum er draumi líkast,
vonandi heldur sigurgangan frá
síðasta ári áfram,“ sagði kampa-
kátur Alonso eftir keppnina.
- hþh
Fernando Alonso sigraði í Formúlu-1 kappakstrinum í Ástralíu um helgina:
Martaðarhelgi fyrir Ferrari
ÓHAPP Felipe Massa á Ferrari ekur aftan á Niko Rosberg á McLaren. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Robbie Fowler, sóknar-
maður Liverpool, skoraði gegn
WBA í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu um helgina. Með
markinu komst Fowler ofar en
Kenny Dalglish á listanum yfir
markahæstu menn Liverpool.
Fowler hefur skorað 173 mörk
fyrir Liverpool en Ian Rush er
markahæsti leikmaðurinn en
hann skoraði 346 mörk á glæstum
feri sínum hjá liðinu.
„Það er frábært fyrir mig að
vera orðinn sá fimmti markahæsti
í sögu Liverpool en Kenny Dalglish
er alvöru Liverpool-goðsögn. Að
komast nálægt honum á listanum
er mikið afrek og það að komast
ofar en hann gerir mig mjög glað-
an,“ sagði Fowler sem kom aftur
til Liverpool í janúar. - hþh
Markahrókar Liverpool:
Fowler kominn
yfir Dalglish
ROBBIE FOWLER Er í hópi goðsagnanna hjá
Liverpool. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES