Fréttablaðið - 03.04.2006, Síða 74
3. apríl 2006 MÁNUDAGUR30
Þorskhnakkar-fiskbollur-laxaflök
saltfiskur-nætursaltað-kinnfiskur
Línuýsa úr Breiðafirði
Ekta góður plokkfiskur
Mikið af flottum fiskréttum
Risahörpuskel og Rækja
Lúðusneiðar-túnfiskur-humar-surimi
Kartöfluréttir-forréttir-ís-rúgbrauð
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1 sími 587-5070
Exit.is kynnir frábæra
Hótel- og stjórnunarskóla í Sviss,
mánudaginn 3. apríl. kl. 15.00
að SÓLON, 2. hæð.
FÓTBOLTI Barcelona og Real Madr-
id gerðu stórmeistarajafntefli á
Nývangi á laugardagskvöldið þar
sem liðin skoruðu sitt markið hvort.
Ronaldinho kom Barcelona yfir úr
vítaspyrnu eftir að Roberto Carlos
hafði brotið á Mark van Bommel.
Ronaldo jafnaði svo metin með frá-
bæru marki í fyrri hálfleik en
vendipunktur leiksins kom skömmu
áður þegar Brasilíumaðurinn
Carlos setti sig á háan hest.
Hann mótmælti vítaspyrnu-
dómnum harkalega en fékk ekkert
upp úr krafsinu nema gult spjald.
Hann var ekki hættur og skömmu
síðar fékk hann sitt annað gula
spjald, einnig fyrir að deila við
dómarann og var því sendur
snemma í sturtu. Frank Rijkaard,
stjóri Barcelona, telur að atvikið
hafi eyðilagt vonir liðs síns um
sigur.
„Áður en Carlos var rekinn af
velli var þetta opinn leikur en um
leið og þeir urðu einum færri
misstu þeir dampinn og einbeittu
sér að vörninni. Við reyndum að
drífa okkur of mikið eftir það þegar
við vorum að leita að öðru markinu
en enduðum á því að skapa færri
færi en við gerum venjulega gegn
fullskipuðu liði. Þrátt fyrir að vera
ekki ýkja sáttir við jafnteflið eru
þetta góð úrslit fyrir okkur. Á
þessu stigi tímabilsins eigið þið
enn eftir að sjá það besta frá
Barcelona,“ sagði Rijkaard eftir
leikinn en liðsmenn hans voru
óheppnir að fara ekki með sigur af
hólmi, því þeir glutruðu fjölda
góðra marktækifæra.
Með sigrinum er Barcelona
ellefu stigum á undan Madrid á
toppi La Liga þegar aðeins sjö
umferðir eru eftir. - hþh
Barcelona og Real Madrid skildu jöfn á laugardaginn:
Barcelona lánlaust
EKKERT GEFIÐ EFTIR Carles Puyol og Zinedine Zidane takast á í leiknum á Nou Camp á
laugardagskvöldið. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
GLÍMA „Ég er varla búinn að átta
mig á þessu ennþá,“ sagði Jón
Birgir Valsson við Fréttablaðið í
gær eftir glæstan sigur sinn í
Íslandsglímunni um helgina.
Íslandsglíman er elsta og sögu-
frægasta íþróttamótið á Íslandi
en hún hefur verið haldin frá
árinu 1906 að undanskildum árum
fyrri heimsstyrjaldarinnar og var
þetta því 100 ára afmæli Íslands-
glímunnar.
„Ég sigraði þetta frekar óvænt.
Ég gegni hlutverki formanns
Glímusambandsins og hafði í
mörg horn að líta fyrir mótið. Þar
sem mótið fór fram á Akureyri
var þetta enn meira krefjandi og
ég lagði hugann ekki við Íslands-
glímuna sjálfa fyrr en rétt fyrir
fyrstu keppni og eftir setningar-
ræðu mína,“ sagði Jón Birgir sem
lagði Pétur Eyþórsson, félaga sinn
úr KR, í úrslitaglímunni.
„Ég lagði í mótið með því að
hafa gaman af þessu en skyndi-
lega var ég kominn í þessa kjör-
stöðu. Ég hef æft mjög mikið í
vetur og það með Pétri, við þekkj-
um því hvor annan mjög vel og ég
vissi alveg hvað ég þurfti að gera í
úrslitunum. Ég var alveg rólegur
og beið bara færis áður en ég
skellti honum með vinstrifótar
klofbragði,“ sagði Jón Birgir.
Þetta er í þrettánda sinn sem
Jón tekur þátt í Íslandsglímunni
og í annað sinn sem formaður.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu
Íslandsglímunnar sem formaður
Glímusambandsins ber sigur úr
býtum en besti árangur Jóns Birg-
is í Íslandsglímunni fyrir mótið
var þriðja sæti.
„Þetta er eitthvað sem glímu-
menn keppa eftir ef þeir ætla að
ná árangri. Þeir leggja allir upp
með að vinna Grettisbeltið en það
tekst ekki öllum. Ég tók mér fimm
ára hlé frá glímunni og hafði gefið
algerlega upp vonina, því sætara
er þetta fyrir vikið. Þetta er
draumi líkast fyrir mig,“ sagði
Jón Birgir að lokum. - hþh
Jón Birgir Valsson, formaður GSÍ, sigraði óvænt í Íslandsglímunni um helgina:
Draumur að taka Grettisbeltið
JÓN BIRGIR VALSSON Með Grettisbeltið að
vopni. FRÉTTABLAÐIÐ/LÁRUS KJARTANSSON
FÓTBOLTI Stuart Pearce er undir
mikilli pressu eftir enn eitt tapið á
heimavelli en Middlesbrough náði
sér í þrjú stig á City of Manchester
Stadium í gær gegn heimamönn-
um í Manchester City. Það var Lee
Cattermole sem skoraði eina mark
leiksins með góðum skalla í fyrri
hálfleik eftir sendingu frá Stewart
Downing, en þetta var fyrsta
úrvalsdeildarmark hans.
Leikurinn þótti alls ekki mikið
fyrir augað en aðstæður til knatt-
spyrniðkunar voru ekki til fyrir-
myndar, völlurinn var mjög slæm-
ur og veðrið ekki upp á sitt besta.
Þrátt fyrir skárri síðari hálfleik
voru heimamenn ekki nálægt því
að jafna metin en leikmenn Boro
voru nær því að bæta við. Það tókst
ekki og eitt mark dugði þeim til
sigurs.
West Ham og Charlton skildu
jöfn, 0-0 á Upton Park í Lundúnum
þar sem Hermann Hreiðarsson
spilaði annan leikinn í hjarta
Charlton-varnarinnar. Teddy
Sheringham varð fertugur í gær
en þurfti að dúsa á bekknum til að
byrja með. Hann fékk svo besta
færi leiksins en Thomas Myhre
varði stórkostlega frá Sheringham
og niðurstaðan varð markalaust
jafntefli. - hþh
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu í gær:
Pressan á Pearce eykst
LEO CATTERMOLE Fagnar vel og innilega
fyrsta marki sínu í ensku úrvalsdeildinni.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
BADMINTON Helgi Jóhannesson
varði Íslandsmeistaratitil sinn í
einliðaleik karla með því að leggja
Tryggva Nielsen í hörkuspenn-
andi úrslitaeinvígi með tveimur
lotum gegn einni. Helgi tapaði
fyrstu lotunni með miklum mun
en tvær næstu vann hann, báðar
eftir bráðabana. Hann var í erf-
iðri stöðu í báðum þeim lotum en
náði á ótrúlegan hátt að vinna sig
út úr því og tryggja sér sigur.
„Þetta var magnað úrslitaein-
vígi, hreint út sagt ótrúlegt. Ég
veit eiginlega ekki sjálfur
almennilega hvað gerðist. Ég tap-
aði fyrstu lotunni illa og það var
erfitt að ná að rífa stemninguna
upp en það tókst. Ég fékk að tala
við þjálfarann minn í 90 sekúnd-
ur eftir fyrstu lotuna og hann
benti mér á ákveðna punkta,
meðal annars hvar Tryggvi náði
að setja boltann í gólfið hjá mér.
Ég einbeitti mér að þeim stöðum
og þá opnuðust tækifærin fyrir
mig. Hann gerði nokkur ódýr mis-
tök og því fór þetta svona,“ sagði
Helgi kampakátur við Fréttablað-
ið eftir sigurinn.
„Þetta var rosaleg spenna, ég
var 14-10 og 16-14 undir í lotunum
og það er ekki staða sem maður
vill koma sér í. Ég hafði samt allt-
af trú á sjálfum mér og það var
frábær tilfinning þegar ég sá að
sigurinn var í höfn, hoppaði og
skoppaði um allan völlinn eins og
vitleysingur. Það var ekki leiðin-
legt að ná að verja titilinn og að
gera það í svona spennandi
úrslitaleik gerir þetta enn
sætara,“ sagði hinn þrefaldi
Íslandsmeistari. Helgi og Broddi
Kristjánsson lögðu Njörð Ludvigs-
son og Magnús Inga Helgason í
úrslitum í tvíliðaleik, 15-12, 13-15
og 15-7 áður en Helgi og Drífa
Harðardóttir lögðu systkinin
Magnús og Tinnu Helgabörn í
tvenndarleik, 15-12 og 15-11.
Ragna Ingólfsdóttir sigraði
fjórða árið í röð í einliðaleik
kvenna en hún lagði Söru Jóns-
dóttur örugglega í úrslitum, 11-1
og 11-2. Ragna og Katrín Atla-
dóttur unnu Tinnu Helgadóttur
og Helgu Jóhannesdóttur í úrslit-
um tvíliðaleiks kvenna, 15-4 og
15-12. - hþh - egm
Þetta var magnað einvígi
Helgi Jóhannesson vann Tryggva Níelsen í úrslitaleiknum í einliðaleik karla á
Íslandsmótinu í badminton í gær og varð þrefaldur meistari. Helgi sigraði í tví-
liðaleik með Brodda Kristjánssyni og í tvenndarleik með Drífu Harðardóttur.
HELGI JÓHANNESSON Gerði sér lítið fyrir og
vann þrefalt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL