Fréttablaðið - 03.04.2006, Síða 78
3. apríl 2006 MÁNUDAGUR34
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Útvarpsmaðurinn Hallbjörn Hjartarson, eigandi
Kántríbæjar á Skagaströnd, segist halda mikið upp á
bandaríska sveitasöngvarann Dwight Yoakam.
„Mér finnst tónlistin hjá honum vera dálítið lífleg
og skemmtileg. Strákurinn syngur vel og beitir rödd
sinni vel í lögunum. Mér finnst framkoma hans og
söngur skemmtilegur og að mínu mati er hann
fremri öllum öðrum í Bandaríkjunum. Garth Brooks
hefur verið talinn sá besti en að mínu mati er
Dwight miklu, miklu fremri,“ segir Hallbjörn.
Hann segist eiga erfitt með að nefna uppáhalds-
lagið sitt með Dwight en það sem fyrst kemur í
hugann sé Pocket of a Clown. „Þau eru mörg miklu
betri en til að geta nefnt eitthvað þá er þetta það
fyrsta sem mér dettur í hug,“ segir hann.
Í gamla daga átti Hallbjörn tvo uppáhalds-
kántrísöngvara; þau Johnny Cash og Dolly Parton.
„Ég elska Dolly Parton en í seinni tíð hef ég verið að
spila hann Johnny minn miklu minna en ég gerði
áður,“ segir hann. „Maður er búinn að spila hann
daginn út og daginn inn síðan maður man eftir sér
en ég bregð honum alltaf á þegar ég er beðinn um
það.“
Hallbjörn segist aftur á móti spila Dolly Parton
frekar reglulega. „Hún er mitt uppáhald. Það eru
líka svo falleg á henni brjóstin. Þau eru hennar
aðaltromp fyrir utan sönginn,“ segir hann og bætir
við: „Maður tekur að minnsta kosti eftir þeim, það
er ekki hægt annað. Þau gefa hverjum kvenmanni
sinn svip.
SÉRFRÆÐINGURINN HALLBJÖRN HJARTARSON OG BESTI SVEITASÖNGVARINN
Dwight Yoakam miklu fremri en Garth
HALLBJÖRN HJARTARSON
Kántríkóngurinn af Skagaströnd heldur
mikið upp á Dwight Yoakam.
MYND/EINAR ÖRN JÓNSSON
Hin sjaldséða hljómsveit Leaves
birtist á Gauknum í kvöld og spil-
ar fyrir rokkþyrsta aðdáendur
sína. Drengirnir hafa legið í dvala
síðan um jólin en fannst kominn
tími til að láta sjá sig á ný meðal
borgarbúa. Fækkun hefur orðið í
sveitinni síðan hún tróð upp síðast
en Arnar Ólafsson gítarleikari er
hættur. „Þetta var allt í góðu, hann
var búin að gera tvær plötur með
okkur og fannst komið gott,“ segir
Hallur Már Hallsson en viður-
kennir að aukinn kraftur einkenni
nú sveitina. „Brotthvarfið var því
hvorki slæmt fyrir okkur né
hann,“ bætir hann við.
Hljómsveitin hefur verið önnum
kafin við upptökur á nýrri breið-
skífu í Höfðatúni þar sem Hljóð-
setning var eitt sinn til húsa. „Við
eigum það ásamt umboðsmanni
okkar og þetta er töluverð breyting
frá því sem áður var,“ útskýrir
Hallur. „Þá þurftum við að klára
allar upptökur á mánuði og fá
kannski upptökustjóra erlendis
frá. Núna getum við legið meira
yfir efninu okkar,“ bætir hann við
en tónleikagestir mega eiga von á
því að heyra nýtt efni frá hljóm-
sveitinni í bland við gamalt.
Ekkert launungarmál er að
sveitin hefur alltaf sett markið
hátt og afrekaði það meðal annars
að komast á plötusamning hjá
Island Records og dótturfyrirtæki
Dreamworks. Hún spilaði á tíu tón-
leikum með skosku rokksveitinni
Supergrass og Hallur telur að
markmiðið hafi ekkert breyst. „Við
höfum alltaf verið mjög metnaðar-
gjarnir og viljum spila erlendis,“
segir hann en stefnt er að útgáfu
nýjustu breiðskífunnar í bæði
Japan og Bandaríkjunum. - fgg
Leaves birtast á ný í Reykjavík
ROKKSVEITIN LEAVES Mannabreytingar hafa átt sér stað hjá hljómsveitinni en meðlimir
segjast fyrir vikið vera orðnir mun kraftmeiri. FRÉTTABLAÐIÐ / SIGURJÓN
LÁRÉTT
2 fuglsnef 6 skammstöfun 8 kletta-
sprunga 9 fley 11 borðaði 12 ólögl.
innfluttningur 14 snjóhrúga 16 utan
17 traust 18 fálm 20 smáorð 21
fimur.
LÓÐRÉTT
1 goggs 3 einnig 4 gutla 5 varkárni
7 nagdýr 10 ar 13 hola 15 fiskur 16
upphrópun 19 hef leifi.
LAUSN
Stéphane Aubergy, víninnflytj-
andi og framkvæmdastjóri Vín-
ekran Bourgogne ehf., er afar
ósáttur við hátt áfengisgjald á
Íslandi sem hann telur valda því
að fjöldi neytenda fer á mis við
eðalvín. Mótmæli eru Frökkum í
blóð borin og Stéphane hefur nú
brugðist við áfengisgjaldinu með
því að selja rauðvín á kostnaðar-
verði og því fást rauðvínstegund-
irnar Art de Vivre og Pujol nú á
1000 krónur í verslunum ÁTVR.
„Ég er aðallega að gera þetta
svo fólk láti eftir sér að bragða á
þessum vínum,“ segir Stéphane,
„og svo ekki síður til að vekja
athygli á því að sumir innflytjend-
ur stýra vöruúrvalinu í vínbúðun-
um þótt reglur ÁTVR geri ráð
fyrir að vilji neytenda ráði ferð-
inni.“
Stéphane segir vínúrvalið hjá
ÁTVR hafa batnað mikið með
árunum og þar hafi margt gott
verið gert hvað reglugerðir og
úrval varðar. Hann bendir þó á að
það sé þó ekki endilega vilji neyt-
enda eða raunverulegar vinsældir
tiltekinna vína sem ráði því hvaða
vín fara úr reynslusölu í kjarna-
sölu. „Stærri innflytjendur geta
stýrt þessu með því að kaupa
sjálfir sínar vörur í miklum mæli
og verða þannig ofan á þegar vín
eru valin í kjarnasölu. Það eru því
ekki endilega alltaf bestu vínin
sem eru í boði,“ segir Stéphane og
telur að enn megi gera betur í
þessum málum.
Þótt Stéphane vilji aðgang
fólks að eðalvínum sem greiðast-
an telur hann íslenska vínmenn-
ingu ekki hafa náð þeim þroska að
tímabært sé að selja áfengi í mat-
vöruverslunum. „Þá yrðu minni
innflytjendur örugglega undir.
Við komumst þó í það minnsta að
hjá ÁTVR og ég er hræddur um að
úrvalið yrði takmarkað í matvöru-
verslunum. Það væri nær að hafa
almennilegar sérverslanir með
vín þar sem fólk getur smakkað
og fengið ráðleggingar hjá sér-
fræðingum. Í stórverslunum í
Frakklandi eru vínfræðingar en
það yrði tæpast hægt að leita ráða
hjá unglingum í matvöruverslun-
um á Íslandi. Annars eiga vínin
helst að fá að tala og selja sig
sjálf.“
Stéphane segist standa í vín-
innflutningi sínum af hugsjón.
„Við Frakkar erum auðvitað fædd-
ir með í það minnsta einn putta í
vínglasi og þegar ég flutti hingað
fannst mér margt vanta, þó aðal-
lega léttvín frá minni framleið-
endum. Vínúrvalið er ekki nógu
gott. Ég byrjaði því að flytja inn
vín í litlu magni, aðallega fyrir
sjálfan mig og veitingahús. Mér
finnst ég bera ábyrgð á ánægju
fólks og þá ekki bara þeirra sem
drekka vínin heldur líka bændanna
sem vilja að margra ára vinna
þeirra fari alla leið og komist til
neytenda.“
Stéphane leggur ekki síður
mikið upp úr því að fólk temji sér
eðlilega umgengni við vín og legg-
ur áherslu á að víns eiga að neyta
með mat. „Vín á að drekka með
mat og það sem gerir vínmenn-
inguna svo sterka í gamla heimin-
um er að víngerðin tengist matar-
gerð í hverju héraði fyrir sig svo
náið. „Þess vegna er svo mikil-
vægt að áherslan sé á fjölbreytn-
ina en þegar sumir innflytjendur
kaupa af sjálfum sér til þess að
tryggja sér hillupláss í vínbúðum
þá eru þeir um leið að draga úr
fjölbreytninni. Mér finnst svona
viðskiptasiðferði ekki eðlilegt,“
segir Stéphane sem vonast til að
verðlækkunin beini sjónum kaup-
enda að afurðum minni vínfram-
leiðenda.“
thorarinn@frettabladid.is
STÉPHANE AUBERGY: VÍNINNFLYTJANDI MEÐ HUGSJÓNIR
Mótmæli með verðlækkun
STÉPHANE AUBERGY Segir marga víninnflytjendur of upptekna af því að fá sem mestan pening fyrir ódýr vín og skaði þannig ímynd vín-
framleiðslulanda. „Vín er landbúnaðarvara en ekki iðnaðarvara, léttvín byggir á náinni tengingu manns, jarðar, plöntu og veðurfars.“
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
LÁRÉTT: 2 gogg, 6 eh, 8 gjá, 9 far, 11
át, 12 smygl, 14 skafl, 16 út, 17 trú, 18
fum, 20 að, 21 frár.
LÓÐRÉTT: 1 nefs, 3 og, 4 gjálfra, 5 gát,
7 hamstur, 10 ryk, 13 gat, 15 lúða, 16
úff, 19 má.
HRÓSIÐ
... fær Halldór Ásgeirsson sem
gerði sér lítið fyrir á föstudaginn
og byrjaði kvöldið með því að
spila með hljómsveit sinni
Furstaskyttunni á Músíktilraun-
um en rauk svo beint niður í
Háskólabíó þar sem hann keppti
með liði MH í Morfís mælsku-
keppninni þar sem hann var
valinn Ræðumaður Íslands.
��������
��� �� �� ��� ���
��� ��� ��� ��� ������
��� ��� ��
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
���������
�����������������������
�������������
������������������������������
��
��������
�����������
��������������
���� ���������
�������������������������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI