Tíminn - 26.07.1977, Blaðsíða 19
Þribjudagur 26. júli 1977.
19
islendingar hlutu 2. sætið i
Kalott keppninni i Sotkamo i
Finnlandi um helgina. i kvenna
keppninni urðu Islenzku stúlk-
urnar I 2. sæti. Finnar sigruðu i
kvennakeppninni, hlutu 146 stig.
island hlaut 138 stig, Noregur
124,5 stig og Sviar ráku lestina
með 105 stig. Finnar sigruðu
einnig i keppninni samanlagt,
hlutu 366 stig. tsland varð I öðru
sæti með 302 stig, Noregur i 3.
sæti með 293 stig, og Svíar I 4.
sæti með 243 stig. i fyrstu grein
keppninnar setti Sigrún Sveins-
dóttir nýtt islandsmet, hljóp 400
m grindahlaup á 65.1 sek. og bætti
metið um 1,5 sek.
Óskar Jakobsson setti nvtt Is-
landsmet i spjótkasti kastaði
spjótinu 76,31 m og bætti þvi
metið um hálfan metra. Thelma
Björnsdóttir, 13 ára stúlka úr
Kópavogi, setti nýtt telpna- og
meyjamet i 3000 m hlaupi, hljóp á
10:33,2 min. og hafnaði I 6. sæti,
sem er mjög góður árangur hjá
svo ungum hlaupara.
Ingunn Einarsdóttir var tiður
gestur á hlaupabrautinni. Hún
sigraði i 100 m hlaupi á 12.1 sek.,
var i öðru sæti i 200 m hlaupinu á
24.8 sek, og sigraði svo i 400 m
hlaupi á 55,7 sek. Sigurborg Guð-
munsdóttir setti persónulegt met
i öllum spretthlaupunum: varð i
4. sæti i 100m hlaupinu á 12,5 sek.,
i þriðja sæti i 200 m hlaupinu á
25.sek. og i 4. sæti i 400 m
hlaupinu á 58,1 sek.
Ingunn bætti við sinum þriðja
sigri i 100 m grindahlaupi, hljóp á
14,4 sek. Lára Sveinsdóttir
hafnaði þar i öðru sæti rétt áf eftir
Ingunni, hljóp á 14,5 sek.
Vilmundur Vilhjálmsson var
sterki maðurinn i spretthlaup-
unum, sigraði i 100 m hlaupi á 10,4
sek. Sigurður Sigurðsson varð
annar og sigraði i sinum riðli á
10.9 sek. Vilmundur sigraði svo i
200 m hlaupinu örugglega á 21,5
sek. Þar var Sigurður Sigurðsson
þriðji á 22,2 sek. Vilmundur átti
svo i hörkukeppni i 400 m hlaup-
inu og hafnaði i öðru sæti á 48,0
sek.
Hreinn Halldórsson sigraði af
öryggi i kúluvarpskeppni Kalott
keppninnar en varð samt að sjá
eftir sigri i einvigi sinu við bezta
kúluvarpara Finna, Stahlberg,
sem keppti sem gestur á mótinu.
Stahlberg kastaði 20,48 m.,
Hreinn 19,81 m.
Jón Diðriksson sigraði glæsi-
lega i 800 m hlaupinu á sinum
næstbesta tima, 1:50,9 min.
Gunnar Páll Jóakimsson tryggði
sér annað sætið með góðum enda-
spretti og fékk timann 1:51,9 min.
1 hástökki kvenna sigraði Þór-
dis Gisladóttir og náði slnum
næstbezta:árangri, stökkl,75m.
Lilja Guðmundsdóttir átti i
hörkubaráttu i 800 m hlaupinu við
norska stúlku og varð önnur á
2:09,7 min. Aðalbjörg Hafsteins-
dóttir hafnaði i 7. sæti.
Friðrik Þór óskarsson hreppti
1. sætið i langstökki eftir hörku-
keppni við Kuukasjarvi frá Finn-
landi, stökk 7,08 m, Finninn stökk
7,06 m. 1 1500 m hlaupi kvenna
sigraði Lilja Guðmundsdóttir
örugglega, fékk timann 4:29,0
min.
1 langhlaupunum hjá körlunum
höfnuðu Islendingar alls staðar i
siðustu sætum. Agúst Þorsteins-
son setti þó nýtt unglingamet i
10,000 m hlaupinu, hljóp á 32 min.
og 23 sek.
Ingunn Einarsdóttir halaði inn
mörg stig fyrir Island um helg-
ina.
Sj úkraþj álf arinn
í gaddaskóna
tslendingar voru fáliðaðir i Kalott keppninni I Finnlandi um
helgina. Meira að segja sjúkraþjálfari liðsins, Halldór Matthias-
son, þurfti að bregða sér i gaddaskóna. Hann tók þátt i 3000 m
hindrunarhlaupi og stóö sig vel.
-
aP’.' ÍK,
óskar Jakobsson sést hér i kringiukasti. Hann setti Islandsmet I spjótkasti i Finnlandi um helgina.
Timamynd: Gunnar
Guðrún Ingólfsdóttir sigraði I
kúluvarpinu, varpaði 12,25 m.
Hún varð i fimmta sæti kringlu-
kastinu, kastaði 36,02 m. Marla
Guðnadóttir náði sinum bezta
árangri I spjótkasti, kastaði 38,74
m og hafnaði i fjórða sæti.
Islenzku kringlukastararnir
voru eitthvaðmiður sin. Erlendur
Valdimarsson kastaði aðeins
53,32 m og hafnaði i öðru sæti.
Óskar Jakobsson var svo þriðji
með 53,22 m.
1 langstökki kvenna varð Lára
Sveinsdóttir i þriðja sæti, stökk
5,39 m, og Ingunn Einarsdóttir I
fimmta sæti, stökk 5,22 m.
Islenzku keppendurnir stóðu sig
yfirleitt vel, settu tvö Islandsmet
og tvö Kalott met. Auk þess voru
sett nokkur persónuleg met.
Tvö Islands-
met sett og
eitt jafnað
— á Meistaramóti íslands í sundi
Tvö islandsmet voru sett og eitt
jafnað á meistaramóti islands i
sundi um helgina. Þórunn Al-
freðsdóttir setti met I 200 m bak-
sundi, synti á 2,38,3 min og tók
þar með nokkuð gamalt met sem
Salóme Þórisdóttir átti, sem var
2,39,6 mín. Sveit Ægis I 4x100 m
skriðsundi bætti met sitt um 2,1
sek., synti á 4,36,6 min. Bjarni
Björnsson Ægi jafnaði met sitt i
200 m baksundi. Systkinin Þórunn
Alfreðsdóttir og Axel og Hermann
Alfreðssynir voru mjög sigursæl
á mótinu og sigruðu i 16 greinum
samanlagt.
Islandsmeistarar urðu sem hér
segir:
1500 m skriðsund: Bjarni Björns-
son Ægi, 17.25,9 min.
800 m skriðs. kvenna: Þórunn Al-
freðsd., Æ, 10:12,2 min.
400 m bringus. karla: Hermann
Alfreðsson, Æ., 5:48,9 min.
100 m flugsund kvenna: Þórunn
Alfreðsd. Æ., 1:10,1 min.
200 m baksund karla: Bjarni
Björnsson, Æ., 2:23,5 min.
400 m skriðsund kvenna: Guðný
Guðjónsdóttir, A., 5:13,7 min.
200 m bringusund karla: Her-
mann Alfreðsson, Æ., 2:42,5 min.
100 m bringusund kvenna: Sonja
Hreiðársdóttir, Æ., 1:25,0 min.
100 m skriðsund karla: Sigurður
Ólafsson, Æ., 57,1 sek.
100 m baksund kvenna: Guðný
Guðjónsdóttir, A., 1:17,6 min.
200 m flugsund karla: Axel Al-
freðsson, Æ., 2:26,2 min.
Þórunn Alfreðsdóttir sést hér I
flugsundinu. Hún setti is-
landsmet i 200 m baksundi á
islandsmótinu i sundi um
helgina. Timamynd: Róbert
400 m fjórsund kvenna: Þórunn
Alfreðsdóttir, Æ., 5:41,5 min.
4x100 m fjórsund karla: Sveit
Ægis 4:26,8 min.
4x100 m skriðsund kvenna: Sveit
Ægis, 4:36,6 min.
100 m flugsund karla: Axel Al-
freðsson, Æ., 1:05,4 min.
200 m baksund kvenna: Þórunn
Alfreðsdóttir, Æ., 2:38,3 min.
400 m skriðsund karla: Sigurður
Ólafsson, Æ., 4:23,5 mln.
400 m skriðsund karla nr. 2:
Bjarni Björnsson, Æ., 4:23,5 min.
200 m bringusund: Sonja
Hreiðarsdóttir, Æ., 2:53,7 min.
100 m bringusund karla: Her-
mann Alfreðsson, Æ., 1:12,5 min.
100 m skriðsund kvenna: Guðný
Guðjónsdóttir, A., 1:06,8 min.
100 m baksund karla: Bjarni
Björnsson, Æ., 1:10,4 min.
200 m flugsund kvenna: Þórunn
Alfreðsdóttir, Æ., 2:29,5 min.
400 m fjórsund karla: Axél Al-
freðsson, Æ., 5:12,0 min.
4x100 m fjórsund kvenna: Sveit
Ægis, 5:11,8 min.
4.200 m skriðsund karla: Sveit
Ægis, 8:34,4 min.
Sonja Hreiðarsdóttir vann
bezta afrek mótsins og hlaut þvi
Pálsbikarinn sem Asgeir As-
geirsson heitinn gaf. Sigurður
Ólafsson fékk bikar fyrir bezta
afrek á milli meistaramóta fyrir
200 m skriðsund, 2:00,3 min.
íslendingar í 2.
sæti í Kalott-
keppninni - Fi
hlutu efsta s