Tíminn - 05.08.1977, Side 19
Föstudagur 5. ágúst 1977
■HMU'SI
%
Anna Jónsdóttir
Fædd 22. apríl 1906.
Dáin 24. júlí 1977.
Anna Jónsdóttir fæddist i
Brautarholti á Kjalarnesi. Hún
fluttist snemma með foreldrum
sinum að Ásgautsstöðum i
Stokkseyrarhreppi og siöan til
Reykjavikur. Sveitin og bærinn
voru henni því kunn frá upp-
vaxtarárunum og það kom sér
lika vel, þvi lifið bar hana milli
þessara staða sitt á hvað og all-
staðar undi hún sér vel. Foreldrar
voru Kristjána Benediktsdóttir
frá Vöglum i Fnjóskadal, traust
kona og myndarleg og Jón Jóna-
tansson, fæddur á Stóru-Þúfu i
Miklaholtshreppi. Jón var áhuga-
maður og framfarasinnaður,
hann fór fyrir með notkun nýrra
tækja við jarðvinnslu og heyskap
og hvatti og kenndi i þeim efnum.
Jón varð alþingismaður Arnes-
inga um tima, meðan hann bjó i
Flóanum. Þau hjón komu upp
stórum barnahópi, sem hafa sýnt,
að vegarnesti það er þau hlutu frá
foreldrum sinum hafa þau ávaxt-
að vel. Eitt þeirra systkina, barna
Kristjönu og Jóns, var Anna, sem
nú er kvödd hinztu kveðju, með
mikilli þökk og virðingu. Rita ég
þessi kveðjuorð i nafni okkar
Védisar, systur minnar og fjöl-
skyldna okkar, en öllum 'sam-
éiginlega reyndist Anna frábær-
lega vel.
Anna var frið og fingerð, itur-
vaxin stúlka og hélt reisn sinni og
góðri framgöngu fram á siöustu
daga. Hún var góðum gáfum
gædd, var vel lesin og fylgdist
með i þjóðlifinu, mundi vel at-
burði og menn þeim tengda.
Minnið var svo trútt, að lengst af
var ekki komið að tómum kofan-
um hjá henni, þegar eitthvað var
orðið fátæklegt eða þokukennt hjá
öðrum.
Anna kunni vel til verka og var
rétt sama við hvað hún fékkst.
Hún var vel menntuð/hafði verið
kornung i Samvinnuskólanum.
Hún lærði matreiðslu og sauma i
Danmörku og helgaði sér margt á
ýmsum sviðum, sem reynslan og
lagnin geta kennt þeim, sem
sköpunarhæfnina hafa í eðli sinu.
Við bættust siðan mikill dugnaður
og kjarkur, sem einkenndu Onnu
fram á siðasta dag. Það gekk allt-
af vel undan, sem i var ráðizt og
enginn griður gefinn að koma þvi
i höfn. Gilti þar einu þótt lang-
timaverk væri og þolinmæði og
þrautseigju þyrfti til, allt vannst
með timanum
Anna kom að Laugarvatni á
frumbýlingsárum héraðsskólans,
sem ráðskona við mötuneyti og
tók sinn þátt i uppbyggingu hans.
A þeim árum kynntist hún m.a.
móður minni og okkur systkinun-
um, kornungum. Finn ég það vel
nú, að þau gömlu kynni gerðu
okkur systur minni það ennþá
ánægjulegra að eignast önnu
fyrir stjúpmóður, þótt löngu
seinna væri. Við vorum uppkomin
allvel, þegar Anr.a kom á heimili
okkar og settist þar i húsmóður-
sætið. Þá voru liðin fjögur ár frá
láti móður okkar. Dáðumst við
strax að fiminni og myndar-
skapnum og þótti vænt um að vel
var hugsað um föður okkar eftir
nokkurra ára skert heimilislíf,
þótt allir væru okkur einstaklega
góðir. Þóttumst við þó áður fyrr
hafa átt góðu að venjast, en
bjuggumst ekki við jafngóðum
hlut okkar og raun varð á.
Sambúðin var alla tíð góð og
einlæg. Þaö er mikið vandaverk
að koma svona inn i lif unglinga,
inn á heimilið, svo vel fari. Það
gerði Anna með miklum sóma og
reyndist okkur sem bezta móöir.
Hefði hún vart getað reynzt sin-
um eigin börnum betur.
Þá er það hún amma, já, hún
var góö. öll barnabörnin kölluðu
hana ömmu sina, og það var hún
sannarlega. Þar er sömu sögu að
segja, umhyggja, hlýja og hagur
þeirra borinn fyrir brjósti,
snemma og seint. Var margt látið
af hendi rakna til þeirra, þótt hinn
góði hugur, sem að baki bj ð, hafi
verið dýrmætastur. Fyrir alla þá
fórnarlund og góðan stuöning,
senda þau nú ömmu sinni inni-
legar kveðjur, hljóðum huga.
Anna giftist Bjarna Bjarnasyni,
skólastjóra á Laugarvatni, hinn
26. mai 1950, og var annað hjóna-
band beggja. Þau bjuggu i Garði
á Laugarvatni til ársins 1965, en
fluttu það haust til Reykjavikur
og bjuggu þar æ siðan. Sambúð
þeirra var góð. Faðir minn var
allmiklu eldri en Anna og var
heilsuhraustur alla tið. Hún var
búin að hljóta meiðsli i baki og
átti oft við vanheilsu að striða.
Þau reyndu þvi að hlúa hvort að
öðru á siðustu árunum, þar til
faðir minn lézt, 2. ágúst 1970.
Anna bjó áfram i Reykjavik, kaus
að vera sjálfri sér nóg, svo lengi
sem hún gæti. Litu þá systkini
hennar, nágkonur og frændfólkið
til með henni og sýndu henni
mikla hjálpsemi, oftar en tjáir að
nefna. Anna veiktist skyndilega
og lá i mánuð á sjúkrahúsi, áður
en hún lézt.
Að leiðarlokum er okkur
þakklætið efst i huga. Það er
dýrmæt reynsla, að hafa átt
samleið með kjarnmiklu fólki.
Ein af þvi var Anna Jónsdóttir. —
Blessun Guðs fylgi þér.
Þorkell Bjarnason.
Hrefna Kristín
Jónsdóttir
Fædd 29. júni 1976.
Dáin 26. júlí 1977.
Föstudaginn 5. ágúst var til
moldar borin litil yndisleg systur-
dóttir.
Þessi litli sólargeisli er horfinn
á braut, eftir aðeins eins árs dvöl
hér á jörðu. Hún lézt á sjúkrahösi
i London.
Hrefna Kristin var dóttir elsku-
legra foreldra, Guðlaugar Kröyer
og Jóns Björnssonar að Irabakka
30 Reykjavik.
Þær mæðgur dvöldust þér á
Hallormsstað um hálfma'naöar
tima i júni, i sól og bliðviðri og
hún, þessi litla sibrosandi engla-
telpa, var orðin svo sólbrún og
hraustleg. Já við vorum sannar-
lega vongóð um að aðgerðin
mikla myndi takast, en guð
ræður. Við skiljum ekki.
Minningarnar um þennan hálfa
rnánuð, verða mér og minni fjöl-
skyldu ógleymanlegar.
Amma og afi biðja fyrir kveðju
og þakkir fyrir allar gleðistund-
irnar sem hún veitti þeim.
Eslku foreldrar, ég vil biöja
góðan guð að styrkja ykkur i
harmi.
BlesSum sé minning Hrefnu
Kristinar. E.K.
Kerrur —-
Heyvagnar
Fyrirliggjandi flestar
stærðir og gerðir af
öxlum með og án
f jaðra, gfindur og ná
i kerrur. Einnig
notaðar kerrur af
ýmsum stærðum.
Hjalti Stefánsson
Simi 8-47-20.
Skrifstofustörf
Rafmagnsveitur rikisins óska að ráða
skrifstofufólk nú þegar.
Verzlunarskóla eða hliðstæð menntun
æskileg.
Laun eru skv. kjarasamningum rikis-
starfsmanna.
Upplýsingar um störfin gefur starfs-
mannastjóri.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Reykjavik
TILKYNN I N G
N R. 18/19771
Verðlagsnefnd helur ákveðið eltirlarandi luímarksverð hverrar seldrar vinnu-j
siundar rafvirkja í framhaldi af kjnrasaniningum Ira 22. júní 1977. (Allir taxtar
eru .án söluskatts).
Nybvggingavinna:
1. ár. Dagvinna: Eflirvinna: Næturvinna:
Ralvirkjar 1.071 1.395 1.714
r I0‘, 1.1 19 1.454 1.790
4- 10",. 4 I0‘ l.i 71 1.522 1.873
4- IO‘V 4 1 51 '.197 1.556 1.914
. 10", 4- 10" + 15"c l.25b 1.655 2.010
— h 10",- 4-. 10' + 25«'« 1.314 1.708 2.102
?. og >. ár.
Ral’v irkiar 1.090 1.417 1.744
t 10", 1.1 59 1.481 1.825
— f 10", -f 10" 1.195 1.551 1.909
t- 10", -4- 15", 1.220 1.587 1.953
— -f- 10", + I0‘ + 15", 1.285 I.6b7 2.052
• 10", + I0‘ t 25‘, 1 542 1.745 2.147
l-ftir 3 ár.
Rafvirkjar 1.126 1.464 1.802
, I0‘, 1.177 1.530 1.883
. 4--. T 10",,+ 10" 1.255 1.605 1.975
— i 10«, +15" 1.263 1.642 2.021
— 10",, + 10" + 15", 1.350 1.728 2.127
— + I0‘, -t 10' + 25% 1.595 1.81 1 2.228
\k\;eðis\ inna: 'I ímaeining kr. 1.1)29
Önnur vinna:
Rafvirki.,1 7 I0‘, 1.251 1.626 2.001
— + 10", + 10", 1.305 1.695 2.084
— + 10«, + I0‘, i ‘ 10% 1.560 1.768 2.176
— + 10«, + 15«, 1.529 1 727 2.126
Ral virkjui • 10' , r 10« , . + 15", 1.588 1.805 2.221
— + 10«,- + 10«„ + 10",. 4 15", 1.454 1.890 2.327
— 10«, + 10«, 4-25",. 1.446 1.879 2.313
10',.+ !0‘. • 10'. ■ ■ 25‘. 1.517 1.972 2.427
2. og 3. ár. Rafvirkjar t 10% 1.271 1.652 2.034
t- 10", -4 10', 1.325 1.723 2.121
4 10",.+ 10', t I0‘, 1.385 1.800 2.216
— + 10", .4 15', 1.552 1.758 2.164
— ( 10",- i 10'. t I5';„ 1.415 1.839 2.263
— 4- 10% -f 10", .+ I0'Y ■ ■ 15", 1.483 1.928 2.373
— + 10",-4 10", * 25% 1.474 1.916 2.359
— + 10",. -t 10", 4- I0"„ i 25". ! .548 2.013 2.478
Eftir 3 ár.
Rafvirkiai 1 10",. 1.309 1.702 2.095
— + 10% + 10", 1.367 1.777 2.187
— + 10"í,+ 10", 4- 10"„ 1.430 1.859 2.288
-4 10",- I 15", 1.395 1.814 2.233
— 4 10«'}, + 10",. ■ f- 15% 1.462 1.900 2.338
— + 10% + 10",. 4 10"„ | 15", 1.534 1.995 2.455
— + I0"„ ) 10",. t 25"„ 1.525 1.982 2.440
— 4 10«++ 10", , »- 10"„ ! 1 25". 1 604 2.085 2.566
Álagsprósenlur:
I0"ó Námskeiðsálag
lO'L. Viðgerðarvinna
I0"(( Óþrifaleg og óholl vinna — hæðarálag
I0"í- Rafmagnsdeild Vélskólans
I5"(. 1‘lokkssljórar
25"í. Raftieknar
Auk ofangrcindrá álaga á laun. getur komið (il löggildingarálag 45"/«.
Rcykjavík. 20. júlí 1977.
Vcrðlagsstjórinn.
TILKYNNING NR 19/1977
Verðlagsncfnd helur ákveðið 'lirlarandi iu marksverð hverrar seldrar \ innu
stundar málmiðnaðarmanna og h 22. júní Í977. (Allir lavlar em á l’xélav irkja siiluskatts » Iramlialdi af kjarav mmingum fra
Sveinar: Dagvinna Eflirv inna: Næturvinna:
Sveinar 1. áriö 1.218.00 1.584.00 1.948.00
Sveinar 2. og 5. árið 1.238.00 1.608.00 1.980.00
j Svcinar eltir 3 ár 1.272.00 1.654.00 2.056.00
j Sveinar eltir 5 ár * 5", 1.500.00 1.688.00 2.078.00
Sveinar el’tir 5 ár + 10", 1.326.00 1.72 1.00 2.122.00
Sxeinar eftir 3 ár + 15", 1.554.00 1.760.00 2.166.00
Swinar eltir 5 ár í- 20", 1.580.00 1.794.00 2.208.00
Sveinar eftir 3 ár + 25"„ 1 408.00 1.850.00 2.252.00
Sveinar eftir 3 ár 4 30"„ 1.434.00 1.864 00 2.296.00
Sveinar el’tir 5 ár 4 35"„ Alagspróscntur: 10", óþrilaálag -- lueöa.rálag I0"„ námskeiðsálag I5"„ llokksstjórar 1.462.00 1.900.00 2.538.00
Aðstoðarmenn:
1. taxti hvrjunarluim 1.078.00 1.402.00 1.726.00
eftir 1 ár 1.094.00 1.422.00 1.750.00
2. taxti bvrjuiuirlaun 1.094.00 1 422.00 1.752.00
- — eftir 1 ár l.l 10.00 1.442.00 1.776.00
5. taxti byrjunurlaun l.l 14.00 1.450.00 1.784.00
— — eftir 1 ár 1.126.00 1.464.00 1.800.00
! laxti byrjunarlaun 1.128.00 1 46b.OO 1.804.00
- — eftir 1 ár 1.156.00 1.478.00 1.818.00
5. taxti bvrjunarlaun 1.162.00 1 510.00 1.858.00
— — cftir 1 ár 1.180.00 1.554.00 1.888.00
Slippvinnumenn 1,238.00 1.608.00 1.980.00
Rcykjavík, 20. júlí 1977. Verðlagsstjórinn.
Auglýsið í Tímanum