Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 1
Grátt eða
grænt?!?
— Bylting á villigötum
MÓL-Reykjavík. Grænum opnum svæðum í Reykjavík
fer óðum fækkandi, enda virðist mikið kapp lagt á að
hylja þau sem mest með grárri steinsteypunni. Sem
dæmi má taka svæðið á mótum Hofsvallagötunnar og
Ægissíðunnar. Þar er nú verið að f lytja heila benzínstöð,
hjólbarðaverkstæði og leigubílaaðsetur, brjóta upp mal-
bik, skipta um jarðveg, leggja raf- og vatnslagnir, mal-
bika aftur og margt annað sem fylgir slíkum fram-
kvæmdum. Tilgangur: Að koma fyrir f imm einbýlishús-
um. Einhverjum gæti fundizt að græna byltingin væri
komin á villigötur. Nema þá auðvitað að hún sé komin út
i Tjörn.
Hins vegar grænkaöi mikið I tjörninni. Hún veröur ef til vill miö-
stöð grænu byltingarinnar. Tfmamynd Róbert.
Þar átti að rísa skóli.
Til aö fá sem gleggstar upp-
lýsingar um framkvæmdirnar á
þessu svæöi, þá höföum við
samband viö embætti skipu-
lagsstjóra og var Finnur Krist-
insson þar fyrir svörum.
— Samkvæmt hinu gamla
Aðalskipulagi Reykjavikur, þá
átti upphaflega aö koma fyrir á
þessu svæði þjónustufyrirtækj-
um og skóla, sagöi Finnur. Þeg-
ar á reyndi kom hins vegar i ljós
að engin þörf var á skóla i þetta
hverfi, enda ekki barnmargt.
Þar að auki er gert ráð fyrir
skóla i Eiösgranda-skipulaginu.
— Vegna þessa var beðið um
breytingu á aöalskipulaginu i þá
átt að þarna risi upp blandað
hverfi opinberra- og einkaþjón-
ustu svo og ibúða. Það sem
gerðist siðan er að fjölbýlishús
risu upp á vestari hluta svæöis-
ins og nú á að byggja fimm ein-
býlishús — einnar hæða — með-
fram Hofsvallagötunni og Ægis-
siðunni. Til þess að koma þeim
fyrir þarf vitanlega að flytja
bæði ESSO-stöðina, hjólbarða-
verkstæðið og leigubilaaðsetrið.
Breytingin vel auglýst
— Þessi skipulagsbreyting
var vel auglýst á sinum tima, en
það mun hafa verið einhvern
siðasta daginn i aprfl 1974, að
auglýsingar birtust i öllum dag-
blöðunum auk Lögbirtinga-
blaösins, sagði Finnur ennfrem-
ur. f skjölum minum frá þeim
tima get ég ekki séð að það hafi
komið fram neinar athuga-
semdir vegna þessa skipulags,
enda voru settar mjög strangar
reglur um útlit og frágang. Til
dæmis var hjólbarðaverkstæð-
inu bannað að hafa afgreiðslu
fyrir stóra bila, heldur einungis
fólksbila og að auki verður öll
vinna að fara fram innanhúss.
— Þá voru þau skilyrði sett, að
bæði benzinstöðin og hjólbarða-
verkstæðið hafi ekki glugga á
þeirri hlið sem snýr að einbýlis-
húsunum og einnig verða tré
gróðursett milli fyrirtækjanna
og húsanna. Við hinn enda
ESSO-stöðvarinnar verður svo
komið fyrir leikskóla.
Kvartanir vegna leigubíl-
anna
Eins og fólk sem þarna hefur
átt leið um, hefur áreiðanlega
tekið eftir, þá er búið að færa
simastaur Hreyfils út á litla
torgið, rétt hjá fatahreinsuninni
við sunnanverða Ægissiðuna.
Við spurðum Finn hvernig sú
tilfærsla hefði mælzt fyrir.
— Jú, það hafa nokkrir hringt
úr nágrenninu til að bera fram
kvartanir og ég hef bent þeim á
að snúa sér til borgarráðs.
Borgarstjórn sneri sér svo til
umferðardeildarinnar og þeir
sögðu sem satt er, aö erfitt væri
að bæta úr þessu. I rauninni
væri ekkert unnið með því að
færa stöðina nema þá að flytja
til óþægindin. Það er sjálfsagt
að taka til greina kvartanir, en
við verðum að hugsa um allan
fjöldann.
Borgin borgar 10. millj.
ESSO afgang
Slíkar framkvæmdir og til-
færslur sem þessar hljóta að
Frh. á bls. 39
í Edens
fínum rann
Það var engu likara en Edenslundum viða um sunnanvert landið i
gær, og þar voru Adam og Eva á fcrli — reyndar ekki eins fáklædd
og forðum daga...
Þessi mynd var tekin í siðustu viku, þegar framkvæmdir á svæðinu voru að hefjast. Bæði ESSO-stöðin og hjólbarðaverkstæðið lengst til
hægri veröa fiutt vcstar og einbýlishúsin fimm koma f þeirra stað. Tima mynd: Róbert.
Byggða-
9/ OO
safn
Stranda
manna
— opna
ÁGrund-
fl.rta.nga.
— bls. 4 og 5