Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 28
28
Sunnudagur 7. ágúst 1977
Á frekar fámennum stað skammt austur af Dallas í
Texas býr kona, sem menn ganga framhjá, án þess að
veita neina sérstaka athygli. Andstætt flestum kyn-
systrum sínum á fertugsaldri er hún þakklát fyrir að
geta gengið um verzlanir, benzínstöðvar og aðra staði án
þess að vekja eftirtekt.
Þessi kona er Marina Nikolaevena Prussakova Oswald
Porter, hin 36 ára gamla ekkja Lee Harvey Oswalds,
morðingja John F. Kennedys, fyrrum forseta Banda-
rikjanna.
■
lliii
Marina Oswald Porter, ekkja morðingjans. Nú ætlar hún að gefa út bók, og
verður Marina því brátt í sviðsljósinu að nýju.
EKKJA OSWALDS
GEFUR UT BÓK
Var i sviðsljósinu
Fyrir 14 árum var Marina Os-
wald ein af þekktustu persónum
Bandarikjanna. Sjónvarps-
stöðvar, blöð og timarit kepptust
um aö birta af henni myndir og
eiga viötöl viö hana. A þeim tima
var eína leiðin til að fá viötal viö
frú Oswald að borga henni nógu
stórar peningafúlgur. Fyrir slika
peninga endurtók hún hvað eftir
annað að maður hennar hefði
skotiö Kennedy og staðiö einn að
morðinu.
— Ég held aö hann hafi viljaö
komast i blööin til að verða þekkt-
ur sagði hún við Warren-nefndina
árið 1964. — Þaö skipti ekki máli
fyrir hann, hvern hann myrti.
Hann vildi einungis veröa þekkt-
ur.
Þeir, sem þekktu Marinu á sjö-
unda áratugnum hafa gizkaö
lauslega á, aö hún hafi fengiö
milli 200 og 300 þúsund dollara
frá samúðarfullum Bandarikja-
mönnum fyrir viötöl og fyrir sölu
á munum Oswalds. A timabili átti
að framleiöa mynd, þar sem hún
léki sjálfa sig i „Countdown in
Dallas”. Marina var þá einungis
22 ára gömul en tengdamóðir
hennar mun hafa staöið á bak við
hana að einhverju leyti i þessu
mikla gróða fyrirtæki, sem fylgdi
þvi að vera eiginkona forseta-
morðingjans.
Vildi ekki brosa
Þegar Marina komst fyrst I
sviðsljósið tóku menn eftir þvi, að
hún brosti aldrei Astæðan var sú,
að hún hafði brotna tönn. Þegar
einum ljósmyndaranum tókst að
ná af henni mynd brosandi, sagöi
hún einum fjármálaráðgjafa sin-
um, að hún óttaöist, að fólk mundi
ekki senda henni peninga af þvi
að hún væri með brotna tönn, og
fólkinu þætti hún þvi ljót.
Þegar peningarnir fóru aö
streyma inn, fékk hún sér tann-
viðgerö og læröi að brosa. Þá
lærði hún einnig að nota snyrti-
tæki, lét klippa háriö og krulla
það og byrjaði að klæða sig eftir
nýjustu tizku. Einnig fór hún að
taka þátt i skemmtanalifinu og
eignaöist marga kærasta.
Marina sagöi oft i blaðaviðtöl-
um, að sér þætti þjóðin hálfvit-
laus, að senda sér svo mikla
peninga, en meö peningunum
kom lika annað — vinamissirinn.
Smátt og smátt og smátt fækkaði
vinum hennar og hjálparhellum,
lögmenn og ráðgjafar fóru fyrst,
en svo að lokum Robert, bróðir
Oswalds.
Hún fékk hundruð bónorðs-
bréfa, en eftir að hafa kynnzt
Kenneth nokkrum Porter tvi frá-
skildum manni, giftist hún honum
tveim árum eftir atburðinn i
Dallas.
Þrátt fyrir sagnir um mikinn
auð ber heimili þeirra litil merki
þess ríkisdæmis.
Stormasamt hjónaband
Aðeins þrem mánuðum eftir
giftinguna kærði Marina mann
sinn, Kenneth fyrir að hafa ógnað
sér með byssu. Hann bar þvi við,
að einn daginn, þegar hann kom
heim til sin eftir vinnu hafi hann
fundið dætur Marinar einar
heima i reiðuleysi á
meðan Marina var að skemmta
sér hjá nágrannanum.
Svo var það fyrir þrem árum,
að Kenneth sótti um skilnað og
fékk hann fjórum mánuðum
siðar. Niðurstaða dómstólsins var
mjög óvenjuleg, þar sem eigin-
maður fékk megniö af eignum
þeirra hjónanna, umráðaréttinn
yfir barni þeirra, en Marina fékk
einungis innanstokksmuni og um-
ráðaréttinn yfir dætrum slnum
tveim.
Engin skjöl hafa fundizt sem
sanna að þau hafi gifzt aftur,
þannig aö siöan 1974 virðast þau
hafa búið saman i „óvigðri” sam-
búð.
Marina fékk fljótlega vinnu
sem sölukona hjá stórri verzlun.
Virðist hún hafa staðið sig mjög
vel sem slík, þvi vinnuveitendur
hennar hafa ekkert um hana sagt
nema gott eitt.
Marina hverfur
1 kringum 1970 var Marina
horfin af sjónvarpsskermum og
siöum timaritanna.
Flótti hennar byrjaði reyndar
strax árið 1965, þegar hún giftist
Kenneth Porter án þess aö boða
fréttamenn og ljósmyndara á
staðinn.
I Dallas reyndu þau að lifa sinu
eigin lifi en þeim mistókst og
nokkrum árum siöar fluttust þau
til héraösins Rockwall, skammt
austur af Dallas. Ein af ástæöun-
um var sú, segir Marina, aö
Kenneth hafi verið vikið úr starfi
sinu sem verkstjóri hjá Texas
Instrument vegna þess aö hann
var giftur ekkju moröingjans.
Þau hafa siðan búið i Rockwell
Marina og Kenneth 1968.