Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 23

Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 23
Sunnudagur 7. ágúst 1977 23 Helgarsagan íTZes DHAUMURINN LQVÍSU Kynntist Lovisu. Hún var ári yngri, en ótrúlega fullorðins leg. I augum hans var hún eins og draumur, sem aldrei gat rætzt.. Ernst Gustaf Johannes Nett- man, stendur á malarstignum i garöinum, klæddur röndóttri skyrtu og meö derhúfu. Létt sumargola lyftir ferköntuöum matrósákraganum upp aö ljós- gulu hárinu, sem er orðiö allt of sitt í hnakkanum. Sólin er hátt á himninum og skuggi drengsins hefurskriðið milli fótanna f brúnu skónum. Hann biöur. Allan fyrripartinn hefur hann beðið þess að sjá stóra flutningabilinn aka upp aö hliöi nágrannahússins, beðið þess aö fá loksins að sjá fólkið sem á að búa i læknishúsinu. Gamlilæknirinn er dáinn og Jó- hannes saknar hans ekki. Gamli læknirinn var þverhaus, sem þoldi ekki einu sinni að saklaus flugdreki lenti i kastaniutrénu hans, eða að bolti kæmi veltandi gegn um limgerðið. Auk þess var hann piparsveinn og barnahópur Nettmans apótekara hafði verið plága i augum hans. Jóhannes hafði séð nýja lækn- inn koma og heilsa upp á pabba. Þá kyssti hann mömmu á hönd- ina, sló saman hælunum og sagði: — Frú min! Það er mér óblandin ánægja að kynnast yður! Siöan hafði hann hrært upp i fimm vatnsgreiddum kollum barnanna, áður en hann fór að ræða læknisfræði við pabba. Jóhannes hafði aldrei heyrt neinn tala jafn furðulega og nýja lækninn. Mamma var þessu ekki vön heldur og hún blóðroðnaði i andliti og þurrkaði hendurnar á kjólnum — en það var óvani, sem hún var alltaf að reyna að losna við. Nýi læknirinn hét Zemmerman. Angi ættarinnar kom frá Þýzka- landi að hann sagði, og svo var ef til vill lika um pabba ætt. Nöfnin þeirra voru ekki ósvipuð. En Gúsfaf pabbilýstir þvi yfir, að að- eins væru hreinræktaðir heiðmerkurbændur i sinni ætt og svo einn einasti apótekari, hann sjálfur. — Merkilegt, sagði dr. Zemmerman. — En frúin? Lika úr heiðmörkinni? Orðiö heiðmörk hljómaði svo undarlega i munni hans, að það var rétt eins og um eitthvert ein- stakt fyrirbæri væri að ræða og auðvitað roðnaði mamma aftur. — Frá Sóleyri, hvislaði hún eins og það væri leyndarmál, sem henni hefði fram að þessu tekizt að dylja fyrir heiminum. Nýja lækninum hefur sennilega ekki fundizt Sóleyri merkilegur staður, þvi brátt virtist sem hann hefði alveg gleymt návist mömmu. Þegar sherry glösin voru tóm, skrapp hann með pabba i apótekið, og við sáum ekki meira til hans þann daginn. En frú Zemmerman hafði ekki sézt. Skyldi hann eiga börn? Um það hafði hann ekkert sagt. Þess vegna erþað, að Jóhannes stendur á malarstignum og getur varla beðið lengur. Anton, Kar- lotta, Svava og Signý eru að baða sig, en hann ætlar ekki að gefast upp fyrr en hann hefur komizt aö þvi, hvernig nágrannarnir lita út. Ekki þó hann deyi úr sólsting undir derhúfunni. — A hvað ertu að glápa? Ef til vill hefur Jóhannes þegar fengið sólsting, þvi hann hefur ekki tekið eftir nokkrum hlut. En nú kemur hann auga á grannleitt litið andlit hinum megin við lim- gerðið. Telpu með brún augu og dökkt hár. — Erkannskebannað aðhorfa? segir Jóhannes, þó tungan sé svo stór og þykk i munninum, að hún likist helzt heilli, soðinni kartöflu. — Bara ef þú glápirekki á mig! — A þig! hnussar Jóhannes i fyrirlitningartón. — Það er til fleira að horfa á. — Eins og hvað? Við þessu á Jóhannes ekkert svar, þvi hvað er eiginlega til að horfa á? Stóri kuðungurinn eða græna glerkúlan, en það hefur hann haft fyrir augunum frá fæö- ingu oghannþekkirhvern einasta stein i malarstignum og hvert strá á grasflötinni, eins og hann hefur skriðið mikið. Hann er að hugsa um að fara inn. En telpan stendur kyrr. — Hvað heitirðu? spyr hún og erekki jafn frekjuleg i málrómn- um. — Jóhannes. Jóhannes Nett- man.Ernst Gustaf Jóhannes. — Almáttugur! Annars heiti ég Gertrude Maria Lovisa Zemmer- man. Pabbi minn er læknir. — Ég veit það. Hann hefur komið hingað i heimsókn til okk- ar. I sama bili er kallað frá læknis- húsinu og Gertrude Maria litur svo snöggt við, að siða hárið fest- ist næstum þvi i limgerðinu. — Nú má ég ekki vera að þvi að tala við þig lengur. En mamma og ég komum kannske bráðum i heimsókn. Kiukkustundu siðar koma þær. Jóhanneshefur setiö á veröndinni allan timann, þvi hann vill ekki ■missa af þessu. Hann getur ekki imyndað sér, hvernig móðir telpu, sem heitir Gertrude getur litið út. Kannski er hún stór og dökk yfirlitum með hrafnsvart hár og yfirskegg eins og gamla majórsfrúin. En í ljós kemur, að honum hef- ur skjáltast hrapallega. Læknis- frúin er litil og litlaus, næstum eins og.skuggi. Ef maöur athugar hana vel, er hún i rauninni lik Gertrude, en það hverfur um leið og læknisfrúin opnar munninn. Þær mamma verða strax vinkon- ur og brátt sitja þær i sóf anum og spjalla endalaust og læknisfrúin fær lit i vangana af sherrýinu og röddin verður hljómmeiri. Gertrude heitir raunverulega

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.