Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 32

Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 32
 32 Sunnudagur 7. ágúst 1977 Anfon Mohr: Árni og Berit Ævintýraför um Asíu mrn.fm kindum og nautum. Einnig alls konar fiskur og allt hlægilega ódýrt að þeim fannst. „Borgin” var svo sára- litil og héraðið svo feiknastórt. Dálitið var hér lika af grænmeti, svo sem gulrætur, næp- ur, salat og rabarbari. En grænmetið var dýrt og erfitt að fá það. Fyrsti hálfur mánuð- urinn, sem Árni vann i blýnámunum, var honum hræðilega erfið- ur. Verðirnir voru grimmlyndir, vinnan erfið og ofraun fyrir óharðnaðan ungling, eins og Árna . Oft lá honum við að örvilnast. Hvernig gæti hann af- borið þetta? Skyldi hann ekki örmagnast áður en dagurinn væri úti? Skyldi hann þola þennan þrældóm i fjögur ár. En smátt og smátt vandist hann þessu öllu. Oft var hann þó barinn með svipum og stundum sparkað i hann, en hann harðnaði bara við hverja raun. Hendur hans urðu harðar, og hann fékk sigg i lófa. Auk þess lærði hann af félög- um sinum alls konar brellur og undanbrögð, sem gerðu honum vinn- una léttari. Og svo voru það sunnudagarnir! Aldrei hafði Árna grunað það, að hann gæti hlakkað svo til hvildardagsins, og aldrei hefði hann getað skilið það áður, að hann gæti notið þeirra svo innilega. Laugar- dagskvöldin voru þó ef til vill allra bezt. Þá var mánudagurinn svo langt undan. Sunnudagsmorg- uninn var lika yndis- legur. Þá mátti hann liggja og móka og teygja úr sér, meðan Berit út- bjó hádegismatinn. Það var lika dýrlegt að vita allan helgidaginn fram- undan. Annars var frelsið takmarkað. Á öllum timum dags gátu fang- amir búizt við þvi, að varðmaður ræki inn höfuðið, til að vita, hvort allt væri i röð og reglu. Aldrei fékk Árni að fara út fyrir girðinguna um svæðið, sem heyrði fangabúðunum til, og hlekkina þungu varð hann að dragast með bæði nætur og daga. En hann hafði vanizt hlekkjunum undra fljótt. Hann hafði nú gengið með þá i þrjá mánuði og hann var hættur að veita þeim nokkra athygli. Þeir vom orðnir eins og hluti af honum sjálfum. Honum fannst hann hafa haft þá miklu lengur. Honum fannst hann hafa hálf gleymt, hvernig það var að ganga hlekkja- laus. Berit þjáðist enn meira en Árni, yfir ánauð hans og hlekkj- um. Hana hryllti alltaf við, er hún heyrði hringlið i hlekkjunum, þegar Árni hreyfði sig. Það var sárt að vita bróður sinn þjást i hlekkjum. 1 næstu fjögur ár yrði hann lika ætið að vera i þessum ógeðs- legu, gráu fangafötum með svörtu röndunum. Hún lofaði guð fyrir að hafa farið með honum, ef hún gæti eitthvað létt honum lifsbaráttuna. Laugardagskvöldin og sunnudagarnir voru Berit ekki minna virði en Árna. Alla vikuna hlakkaði hún til þessara hvildarstunda Árna. Alla virku dagana brutu þær vinkonurnar heil- ann um það, hvað þær gætu gert ástvinun sin- um til ánægju um helg- amar. Erfitt var stund- um að láta sér detta eitt- hvað nýtt i hug. Werchojansk hafði ekki upp á svo margt að bjóða af lystisemdum. Berit hafði mikið yndi af blómum. Hún var ó- þreytandi að tina blóm og kaupa blóm. Hún komst að raun um það, sér til mikillar > undr- unar, að i nágrenninu var viða mikið af falleg- um blómum. 1 brekku fyrir sunnan þorpið fann hún meðal annars liljur, hvitar og rauðar, J m barnatiminn skrautlegar fjólur og margs konar blóm, sem hún vissi ekki hvað hétu. Hún hafði alltaf elskað blómin siðan hún var smá krakki. Hún fann blóm, þar sem aðrir sáu engin blóm. Blómin, sem Berit skreytti ibúð- imar með, lifguðu upp þessar fátæklegu vistar- verur. Á hverju laugardags- kvöldi var „skemmtun” i einhverjum bjálka- kofanum. Þar komu saman öll hjónin úr bjálkakofunum og syst- kinin Árni og Berit. Þarna var sungið og spilað á mandólin (Balalaika), etið og drukkið, og reynt að gleyma útlegðinni um stund. Karlmennimir urðu þó að vera i sinum gráleitu, ógeðslegu fangabúningum og með hlekki um fætur, en kon- umar reyndu að búa sig eins vel og þær höfðu tök á. Berit fór i hátiðab- úning, sem hún hafði keypt i Tomsk. Hann var fallegur og klæddi Berit vel, og var úr svo hald- góðu efni, að hann gat vel enzt sem hátiðabún- ingur i næstu fjögur ár. Dja, maður Tanieu, var lifið og sálin i þessum samkomuum. Iifsgleði hans og lifs- fjör var óvenjulegt, og þegar hann hló sinum létta, glaða hlátri, þá Hl/flÐ / óSkoPl/A/Urf !LT Ll BflkiJÍö OeRÍ \JiÐ 5 SifiL'iUR ? urðu allir að hlæja lika. Tania geislaði af gleði, þegar ástvinur hennar lét spaugsyrðin fjúka og það var alveg ótrúlegt, hve margt honum datt i hug. Berit undraðist oft, hve gleðin var hjartan- leg og lét á þessum sam- komum. Allir karlmenn- imir voru i hlekkjum og fangabúningi. Þeir voru þreyttir eftir þrældóm og. sárir eftir misþyrm- ingar og þó hlógu þeir og sungu, eins og allt væri i ágætu lagi, en oft voru þó söngvarnir sorg- blandnir, gamlar þjóð- visur og þjóðlög. Stundum vantaði einn eða tvo, sem lágu rúm- fastir eftir svipuhögg og misþyrmingar. En þrátt fyrir það, reyndu allir að gleyma erfiðleikunum og gefa sig gleðinni á vald. Allir forðuðust að hugsa um morgundag- inn og alla löngu vinnu- dagana framundan. 15. Hægt og sigandi liðu sumarmanuðirnir. Dag- arnir smástyttust. Blómin fölnuðu. Nú tindi Berit ber i stað blóma. Einu sinni fann hún villt „ripsber”, en þau náðu ekki fullum þroska og vorumjög súr. Dagamir urðu svalari. Mýbitið hætti að angra. Enginn saknaði þess. Hinn 20. ágúst kom fyrsta frostnóttin. Berit tók eftir þvi, er hún kom út úr bjálkakofanum um morguninn, til að ná i vatn. Það var hemað yfir polla. Haustið var komið. Þessi dagur var lika að fleiru merkilegur. Þennan dag kom fyrsti pósturinn til Wer- chojansk frá þvi að syst- kinin komu þama i vor. Þettavarlika eina póst- fverðin áður en veturinn gekk i garð. Á okkar timum hefur flugið bætt úr þessari einangrun. En árið 1914 voru þangað engar flugsam- göngur. Þangað lágu engar leiðir, nema norð- ur eftir stórfljótunum á fljótaskipum og með hestvögnum eftir slitr- óttum vegum milli fljót- anna. Meira að segja árið 1928, þá kom póstur aðeins tvisvar til þrisvar sinnum á ári. Það er þvi skiljanlegt, að koma

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.