Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 19

Tíminn - 07.08.1977, Blaðsíða 19
Sunnudagur 7. ágúst 1977 19 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Sími 86300. Verö f lausasölu kr. 70.00. Áskriftargjafd kr. 1.300 á mánuöi. Blaöaprent h.f. ERLENT YFIRLIT Völd hersins aukast í Kína Dvalinn mikli Greinargóður maður komst nýlega svo að orði, að borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins minnti að vissu leyti á skjaldböku. Þetta sérstæða dýr liggur i dvala timum saman, en lifnar svo til lifsins og getur þá orðið furðu athafnamikið. Skjaldbakan er einnig sérstæð að þvi leyti, að hún getur orðið dýra elzt. Borgarstjórnarmeirihlutinn er að verða elztur allra slikra meirihluta á Norðurlöndum og má segja, að þar svipi honum til skjaldbökunnar. Annað er þó meira likt með þeim. Borgarstjórn- armeirihlutinn reykviski er jafnan i eins konar dvala fyrstu þrjú ár hvers kjörtimabils. í byrjun fjórða ársins eða þegar eitt ár er eftir til borgar- stjórnarkosninganna, ris hann úr dvalanum og verður þá oft hinn sprækasti fram yfir kosning- arnar. En þá sækir dvalinn hann heim aftur. Þessi saga er nú að endurtaka sig einu sinni enn. Nú eru meira en þrjú ár af yfirstandandi kjörtimabili og næstum allan þann tima hefur borgarstjórnarmeirihlutinn legið i værum dvala. Fyrir skömmu siðan reis hann úr dvalanum og kom þá strax auga á, að miðbænum gamla hefði hnignað. Nú varð að sýna borgurum, að hér væri ekki værugjarnt fólk á ferð. Kynntar voru miklar og itarlegar áætlanir um endurreisn gamla mið- bæjarins. En borgarstjórnarmeirihlutinn sá meira en hnignun miðbæjarins, þegar hann reis úr dvalan- um. Hann sá einnig, að atvinnulifi borgarinnar hafði hnignað, a.m.k. samanborið við ýmsa aðra kaupstaði og kauptún. Þá hafði fólksflótti legið úr höfuðborginni til nágrannabyggða. Borgarstjórn- armeirihlutinn var ekki seinn á sér frekar en fyrri daginn, þegar hann loks ris úr dvalanum. Borgarstjórinn hefur tilkynnt nýja atvinnuáætlun fyrir Reykjavik. Sjálfstæðisflokkurinn mun þvi ekki siður en Alþýðubandalagið flagga atvinnu- áætlun fyrir næstu kosningar. En hvað er annars svo hið rétta um hnignun miðbæjarins og hnignun atvinnulifsins i Reykja- vik? Þessi hnignun hefur verið að gerast i langan tima. Miðbærinn hefur verið að dragast aftur úr áratugum saman, þvi að borgaryfirvöldin hafa vanrækt að gera nokkuð til að rétta hlut hans. Svipuð er sagan af togaraútgerðinni og fisk- vinnslunni i Reykjavik. Þessum atvinnugreinum, sem um skeið voru undirstöðuatvinnugreinar i Reykjavik, hefur farið hnignandi áratugum sam- an. Sú hnignun var komin til sögu áratuginn áður en Byggðasjóður var stofnaður og er þvi vonlaust að ætla að skrifa hana á reikning hans, nema þá að örlitlu leyti. Skýringin á þvi, að Reykjavik hefur þannig dregizt aftur úr á atvinnusviðinu, er þvi ákaflega einföld og augljós. Meðan bæjarstjórnir og sveit- arstjórnir hafa haft frumkvæði um margvislega atvinnuuppbyggingu, hefur borgarstjórnarmeiri- hlutinn i Reykjavik legið i dvala og rétt rumskað siðasta árið fyrir kosningar. Þá hafa verið birtar glæsilegar áætlanir, fólkið trúað á þær vegna áróðurs öflugra fjölmiðla, meirihlutinn hefur haldið velli og að kosningunum loknum hefur sig- ið á hann sami dvalinn og fyrr. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur skákað i þvi skjólinu, að með framangreindum vinnubrögðum gæti hann orðið eins gamall og skjaldbaka. Þess vegna sé honum óhætt að leggjast i dvala eftir hverjar kosningar. Á þessu mun ekki verða nein breyting, nema kjósendur gripi á eftirminnilegan hátt i taumana. Yeh boðar mikla eflingu hans EINS og frá hefur verið skýrt áður hefur Teng Hsi ao-ping fengið aftur öll þau em bætti sem hann var sviptur eftir fráfall Chou En-lais en frávikning hans þá kom mjög á óvart, þvi að flestar spár hnigu í þá átt, að hann myndi verða eftirmaður Chous, enda hafði Chou augljóslega undir- búið það og ætlazt til þess. Hinn róttæki armur kommún- ista undir forustu Chiang Chings, konu Maós, beitti sér hins vegar gegn honum og fékk þvi framgangt, að Maó vék honum til hliðar og valdi i staðinn Hua Kuo-feng. Hann tók við embætti forsætisráð- herrans, sem Chou hafði gegnt. Hua launaði þeim Chiang Ching og félög- um hennar illa, þvi að þeg- ar Maó féll frá, snerist hann gegn þeim og átti sinn þátt i þvi, að þau voru svipt völdum og siðan alveg vikið til hliðar. Þetta mun Hua þó ekki hafa gert fyrr en honum var ljóst, hvernig valdahlutföllin voru og andstæðingar Chiang Chings með hershöfðingjana i broddi fylkingar, myndu bera sigur úr býtum. Þá snerist hann með þeim, en hafði fyrst eftir fráfall Maós borið káp- una á báðum öxlum og þá oft hallmælt Teng i ræðum sinum. Eftir að Hua hafði verið kjör- inn eftirmaður Maós sem for- maður flokksins og var jafn- framt eftirmaður Chous sem forsætisráðherra, virðist hann hafa talið sig standa traustum fótum og ætlað sér einum sem mest völd. Herinn, sem átti mestan þátt i að Hua komst til valda, mun hins vegar hafa haft gætur á honum og ekki ætlað honum einræðisvald. Smátt og mátt fór að bera meira á Yeh Chien-ying varnarmálaráðherra og að lokum kom svo, að honum var teflt fram sem jafningja Hua. Þá þótti ljóst, að Hua hefði ekki slik völd og áður var ætl- að, heldur stæði Yeh honum orðið jafnfætis i valdastigan- um. En þetta hefur honum ekki þótt nógu tryggt, þar sem Yeh er orðin 78 ára og ekki heilsuhraustur. Fyrir bein eða óbein áhrif hans hefur Teng skotið upp að nýju og þykir nú ljóst orðið, að þeir Hua, Teng og Yeh skipta nú með sér völd- unum og Hua muni sizt valda- meiri en þeir Teng og Yeh. Ekki er ósennilegt, að sá sið- astnefndi ráði mestu. ÞETTA ÞÓTTI m.a. koma i ljós, þegar minnzt var 50 ára afmæ'lis kinverska hersins fyrirfáum dögum. Yeh hélt þá aðalræðuna og talaði eins og sá, sem valdið hefur. Hann deildi hart á Bandarfkin og Sovétrikin og þó einkum hin siðarnefndu, sem hann taldi stefna enn greinilegar að heimsyfirráðum en Bandarik- in. Hann sagði Kinverja verða Teng Hsiao-ping að vigbúast af kappi, þvi að brátt myndi koma til styrj- aldar milli Bandarfkjanna og Sovétrikjanna og Kina yrði þá að geta varið sig, ef þörf krefði. Allt kapp yrði þvi lagt á að búa herinn nýtizkuvopnum, svo að hann gæti hrundið öll- um árásum, sem kynnu að verða gerðar á landið. Þá myndi herinn frelsa Formosu, þegar réttur timi væri kominn til þess, en ekki yrði neitt sam- ið um innlimun hennar i Kina, enda væri hún hluti þess. Yeh lagði höfuðáherzlu á, að her- inn væri og þyrfti að vera hið mikla afl, sem þjóðin gæti allt- af treyst á. Fregnir frá Kina benda til þess, að hér verði ekki látið lenda við orðin tóm, heldur sé unnið kappsamlegar að efl- ingu hersins en nokkru sinni áður. Aróðurinn um rússnesku hættuna hefur veriö magnaður um allan helming. Margir er- lendir fréttaskýrendur, ekki sizt rússneskir, halda þvi fram, að herinn sé ekki ein- göngu efldur til að verjast hættum utan frá. Honum sé ekki siður ætlað að verjast hættum innan frá, þvf flokks- vél kommúnista sé hvergi nærri nógu .'-.terk til að halda uppi aga og reglum eftir frá- fall Maós. Stjórnendurnir verði þvi aö treysta á herinn i vaxandi mæli og að sama skapi aukist völd hans. RÆÐA YEHS staðfestir það, sem mörg vestræn blöð héldu fram eftir endurreisn Tengs, að hún væri merki um, að herinn ráði orðið mestu i Kina, en Teng hefur alltaf not- ið vinsælda innan hans. Jafn- framt spáðu blöðin þvi að Kin- verjar myndu mjög auka vopnakaup sin og yrði það vatn á myllu vopnaframleið- enda i Bandarikjunum og Vestur-Evrópu. Fyrst og fremst munu þó Kinverjar leggja kapp á að auka eigin vopnaframleiðslu, en leitast jafnframt við að afla sér sem mestrar tækniþekkingar frá Vesturlöndum, m.a. meö vopnakaupum. Jafnframt þessu er endur- reisn Teugs talin merki um, að Kinverjar muni leggja vax- andi áherzlu á eflingu fram- leiðslunnar og i þeim tilgangi vikja frá ýmsum kommúnistiskum kenningum, sem framfylgt var i valdatið Maós. Teng er sagður leggja meiri áherzlu á árangur en að- ferðir og þvi er oft vitnað til þeirra orða hans, að veiði kötturinn mýs, skipti ekki máli hvort hann sé hvitur eða svartur. Þ.Þ. Teng Hsiao-ping, Hua Kuo-feng og Yeh Chien-ying Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.